18.9.2008 | 23:44
King Bakkus
Vandræðagemsinn Gascoigne | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
18.9.2008 | 23:34
Innflytendur
Það er kanske"að æra óstöðugan"að skrifa um innflytendamál.Mér er andsk..... sama þó að ég fái á mig stimpilinn"rassisti"Ég hef verið uppnefndur fyrr og meira segja uppnefndur upp úr uppnefninu.Ég hef siglt til flestra Arabalanda allavega þeim sem liggja að sjó.Þar hefur með örfáum undantekningum verið tekið vel að móti mér.Og mér er vel til fólks í þessum löndum.Nú er komin hingað hópur af fólki frá einu af þessum löndum
Góð samskifti milli kynþátta enda óvitar
Og ég býð þetta fólk velkomið hingað.Og ég hef ekkert á móti því á neinn hátt annan en að ég velti fyrir mér hvernig staðið er að móttökunni það er ekki nóg að koma fram í sjónvarpi brosa hringinn og tala á háu nótinu um hve vel þetta gangi(er það ekki komin 1 vika)"Sjaldan er gíll fyrir góðu nema úlfur á eftir renni?"Það er ekki nóg að byrjunin sé góð.
Borgarhlutinn Rosengård í Malmö Svíþjóð
Það er alveg sama hvað hver segir,fólk frá þessum löndum hefur átt erfitt uppdráttar í þeim löndum sem þeir hafa leitað hælis í.Þessvegna spyr ég hversvegna í ósköpunum á okkur 300.000 manna þjóð að takast það sem milljóna þjóðir í kringum okkur hefur misstekist með.Þá meina ég að taka þannig á móti fólkinu að flestir verði ánægðir.Ég veit ekki til að neinn bæjarfulltrúi á Akranesi hafi t.d.heimsótt borgarhlutan"Rosengård"í Malmö.
Ilmar Reepalu.Borgarfulltrúi í Malmö.Hefur marga fjöruna sopið í málum innflytenda í Malmö
Þegar ég bjó á Skåni þá var þessi borgarhluti alræmdur.Svíar voru hættir að hætta sér þar inn.Það varð að fella niður strætisvagnaferðir inn í hverfið niður vegna tíðra grjótkastsárása á vagnana.Í Stockholmi voru strætisvagnaferðir felldar niður í borgarhlutanum Tensta og hraðlestin til Nynäshamn.Fv borgarstjórinn í Stockhólmi,Annika Billström(flokksystir ráðherra iðnaðar hér á landi)varaði við að það væru að skapast"gettoer"i Svíþjóð
Ég myndi halda að bæjarstjórnarmenn hefðu fullt erindi og kynna sér málið þar.Ekki til að sjá einhverja"glæpamenn"heldur til að fræðast um hvað fór þarna úrskeiðis.Af hverju misstu Svíar tökin á fólkinu sem býr þar.Að mínu mati eiga svíar sjálfir stærstu sökina hvernig fór þarna.
Annika Billström fv borgarstjóri í Stockholmi
Í Svíþjóð upplifði ég slíkan andsk..... tvískinnungshátt og hræsni að það hálfa hefði verið nóg í þessum málum.Þau voru ekki rædd af hreinskilni og einhverju viti nema í bakherbergum og skúmaskotum.Innflytendum til mikillar bölvunar.Þeir sem vilja,vita það að mismunur á trú,siðum og menningu allri er gífurlegur.Meira að segja mataræði.Hvernig verður t.d.kjötmálið leyst.Margt af fólkinu étur ekki svínakjöt.Og kindin verður að vera skorin á háls til að kjötið verði borðað.Er fólkið frætt um hvernig kindin er drepin hér á landi.Lygi í því máli gæti orðið erfið ef upp kæmist.
Innfæddir Svíar komu oft fram háskælandi í sjónvarp eða blöðum,ef því fannst eitthvað bjáta á t.d. ef leyfislausu fólki var vísað úr landi en þessir andsk..... hræsnarar hleyptu svo ekki"invöndrurum"inn fyrir dyrnar hjá sér.Frægt er þegar Moderataframbjóðandinn "missti"sig í umræðunni um innflytendamál en hélt að búið væri að slökkva á micrafóninum.Það sama virðist vera í uppsiglingu hér.Að hafa allt aðra opinbera skoðun en í einkaviðtölum.Hér má enginn nú orðið tala um þessi má öðruvísi en að vera stimplaður"rassisti"
Stjórnmálamenn utans eins flokks hafa allir skriðið upp í rassg.... á sjálfum sér og húka þar skjálfandi og þora ekki að taka umræðuna um hvernig best væri að varast þeim misstökum sem nágrannaþjóðir hafa gert í þessum málum.Mig langar að sjá framan í þann mann sem eitthvað þekkir til í nágrannalöndunum sem heldur því fram að engin mistök hafi þar verið gerð og að allt sé þar í sóma.Ég skora á þá sem halda því fram að koma fram og færa rök fyrir því.Það er með endemum þessi andsk..... íslenski misskilningur að við séum svo"klárir"í öllu sem að innflytendum snýr að okkur komi ekkert við hvernig öðrum þjóðum misstókst.
Mér fannst ráðherra iðnaðar leggja sig lágt og nota lúsleg stjórnmálabrögð þegar hann notar sér það að allir í Frjálslyndaflokknum eru ekki alveg sammála um útfærslu þessara mála.Annars fannst mér hann vera skriðinn svo langt upp í samskonar g.. og ég minntist á hér að framan á foringa hins stjórnarflokksins í Kastljósinu í kvöld að engin von sé um að neitt af viti komi frá honum allavega ekki í bráð.Annars held ég að hann taki með sjálfum sér undir: "Socialdemokraternas nya motto:"Ja till massinvandring! Bara de inte bosätter sig där jag bor"(úr nýlegu sænsku blaði)
Frægasti"sonur"Rosengården knattspyrnumaðurinn.Zlatan Ibrahimović,
Frá 1 ágúst 2007 hafa Svíar greitt flóttafólki sem ekki fær hæli sem eftirfarandi:10 000 sv krónur per barn, 20 000 sv krónur per fullornir och maximalt 50 000 sv krónur per fjölskyldu til að fara heim til sín aftur.Ég hreinlega bið alla þá guði sem við trúum á að hjálpa okkur frá að falla í sömu"nnflytendagryfju" og nágrannalöndin.Ég endurtek vöndum okkur vel.Þetta er svolítið sem við höfum ekkert vit á sama hvað hver segir.Og það held ég að fólk sjái það ef það gengur ekki með sömu æsingagleraugu og ráðherra iðnaðar.Séuð þið ávallt kært kvödd og megi þeir félagar Allah, Guð Búdda og kýrnar í Indlandi leiða okkur öll í myrki þess sem við þekkjum ekki
PS.form greinarinnar breynglaðist aðeins í gær því breyti ég henni nú í það áformaða
Stjórnmál og samfélag | Breytt 19.9.2008 kl. 13:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
18.9.2008 | 00:21
54 skipsránið og fl
Enn og aftur,enn og aftur hefur sjóræningum tekist að ræna flutningaskipi í Adenflóanum.Nú var það Hong Kong flaggað skip að nafni Stolt Valor sem er 26 000 ts kemíkaltankskip byggt 2003 með 22 manna áhöfn(1 rússa,1 manni frá Bangladesh,2 filipínum og 18 indverjum) fyrir barðinu á þeim.Skipið sem var á leið til Asíu og var statt um 100 sml frá strönd Sómalíu.Eftir því sem ég man lengst er Stolt skipafélagið norsk,að uppruna,allavega.
Er nokkur furða að maður hristi sinn gamla gráa haus í forundran yfir aðgerðarleysi hinna svokölluðu"Sameinuðu Þjóða"Þessi andsk..... klúbbur útbrunninna stjórnmálamanna og"pabbadrenga"Ég get ekki sagt annað.Hvað á maður annars að hugsa um þessi samtök sem kenna sig við sameiningu en virðast algferlega máttlaus er á hólmin er komið.Mér er fjan.... sama hvað"fína fólkið segir"um nauðsyn þess að vera í þessum máttlausu andsk..... samtökum.
Eru sjómenn orðnir algerlega réttindalausir hvar sem er í heiminum nú til dags.Hvar eru nú samtök sem kenna sig við"saving"hitt og þetta.Hvernig væri að þetta fólk færi og hlekkjaði sig við aðalstöðvar SÞ í NY með"saving seemans"borðum.Þó skilst mér að utanríkisráðherrar EU séu búnir að ákveða að skipuleggja skipalestir með vopnuðum fylgdarskipum,eins og ég faktíst bloggaði um að þyrfti að gera fyrir nokkru. Þó ekki geri ég ráð fyrir að þeim hefi borist bloggið mitt til eyrna.
Arthur Bowring(Artur Bogason þeirra Hong Kong skipaeiganda)lýsir ástandinu sem"incredibly dangerous place"SÞ hefur látið það afskiftalaust að 54 skipum hefur verið rænt á þessu ári.12 síðan í júlí.Mér er spurn hvern andsk.... höfum við að gera í þetta svokallaða Öryggisráð á meðan að stórveldin 3 Rússar;Kínverjar og Bandaríkjamenn eru þar með neitunarvald.Henda miljónum í það að komast í þetta fjanda.. ráð sem engu ræður nema með"leyfi"stórveldana.Hvernig væri nú að nota peningana í t.d. að hjálpa fólki sem sér lán sín vaxa um milljónir á mánuði.Guðni vill að Geir hinn harði fari til Brussel og reyna að komast inn í peningabandalagið bakdyrameginn.
Ég held að sá góði maður Guðni ætti nú bara að halda kja... og minnast ekki á ástandið.minnugur sinnar þáttöku t.d.í Búnaðarbanka"ráninu"og feiri"glapræðum"fv stjórnarOg hinn ætti að halda sér á"klakanum"og reyna að koma böndum á málin og reyna að forða þjóðinni frá "shortkaupum" bankanna í húsnæðismálum eins og þau eru í dag.Ég læt þessu nöldri mínu um um ómögulega stjórnmálamenn og kraftlaus alþjóðasamtök lokið.Kveð alla ef einhverjir eru,sem hafa lesið kært.Lifið heil og megi ja hvaða guð skildi maður þurfa að biðja að vera með okkur öllum á þessum síðustu og verstu tímim.Ég er hræddur um að hinn sanni sé ekki öllum hugleikinn nú um stundir
Tefldu í túni/teitir vóru,/var þeim vettergis/vant úr gulli,/uns þrjár kómu /þursa meyjar /ámáttkar mjög/úr Jötunheimum.(úr Völuspá)Verðbólga,Gengisfelling,Ónýt króna hafa þær sennilega heitið"drósirnar"úr Jötunheimum.
13.9.2008 | 02:15
Gamall félagi!!!
Ég var að horfa á sjónvarpsmyndina Taggart í kvöld þegar gömlum félaga úr hinum gamla nú eiginlega útdauða kaupskipaflota íslendinga skaut upp á skjáinn siglandi á"River Clyde"
Þ.e.a.s.Aasfjord ex Írafoss ex Keflavík.Skemmtileg tilviljun í skemmtilegri sjónvarpsmynd.Og meira um skip.Fyrir nokkrum dögum rændu sjóræningar enn einu skipinu á Adenflóanum.Nú var það S-Kóreanskur"Bulk carryer"með 21 manna áhöfn 13 Indverjum og 8 Kóreumönnum.
Skipið sem heitir Bright Ruby var á leið frá Úkraníu til Colombo,með fullfermi af áburði í bulk.Það gegnir furðu máttleysi SÞ í þessum málum.Einnig undrast ég kæruleysi skipstjórnarmanna sem mér finnst t.d.í þessu ráni..Við héldum þeim frá með öflugum"smúlum"sem við beindum að öllu sem hreyfðist í átt til okkar í minna en 1/2 mílu ranges.
Einhvern veginn finnst mér skipshafnir svona stórra skipa eiga geta sloppið frekar frá þessum óþokkum en áhafnir minni skipa.En vitanlega er"hægara um að tala en í að komast"eins og þar stendur.Lifið heil og ávallt kært kvödd
12.9.2008 | 23:22
Um daginn og ??
Það er ekki gott að vera jákvæður svona hvurndags eins og ég hafði ætlað mér,nú um stundir.Hvað eru svokallaðir"ráðamenn"eiginlega að hugsa.Það er auðséð að það eru 3 korter í kosningar.Víst er er,að lægju kosningar fyrir dyrum myndu þessir herrar ekki haga sér eins og þeir gera
Ráðherra fjármála hefði ekki stefnd félagi ljósmæðra eins og hann gerði.Ljósmæður eiga mikla samúð í þjóðfélaginu nú um stundir það er á hreinu.En skilar sú samúð sér í skoðanakönnunum og eða í kjörkassa.Það held ég nefnilega ekki.Það virðist vera alveg sama hvað fólk tekur stórt upp í sig hvað þetta varðar alltaf halda þeir sem svo stjórna þessu,velli.
Hvað er orðið um mótmæli vörubílstjóra.Hverju skiluðu þau.Nú heyrist ekki múkk í þeim.Hefur olían hér á landi lækkað eitthvað að ráði?Hver skipaði hverjum hvað og hvenær???Eru ekki olíufélögin að"fá fyrir sinn snúð"í lækkuðu heimsmarkaðsverði?Ná þar upp í þær sektir er þau hlutu.Það er með endemum hve langtímaminni hins almenna borgaraí þessu landi nær skammt.Það er staðreynd að kvennastéttir þjóðfélagsins eru ílla launaðar.Það eru allir sammála um.
En hvað er þá í veginum.Kosningar eftir kosningar er þessum stéttum lofað bættum kjörum ásamt fleirum utangarðsstéttum.En alltaf eru þessi loforð svikin.Svokallaðar ummönnunarstéttir eru ásamt öldruðum og öryrkjum algerar hornrekur.Þessar stéttir sem eðli málsins samkvæmt ættu að vera það vel launaðar að fólkið sem í þeim eru geti lifað mannsæmandi lífi.
Tökum ummönnun við aldraða sem dæmi.Mér er sagt og það af konu sem starfaði í henni að brandarinn um gömlu konuna sem taldi sig vera í útlöndum og bað fólkið sem hún heyrði að talaði íslensku um að koma sér heim til Íslands sé enginn brandari,heldur blákaldur íslenskur veruleiki.Það er ekki nóg með að þessu gamla fólki sem kom fótunum undir það þjóðfélag sem við lifum í dag séu boðin smánarlaun heldur er þjónustunni við það mjög svo áfátt á sumum dvalarheimilum.Ég get talað af reynslu um hve dýrmætt það er að hafa gott fólk í þessum störfum.
Í mínu tilfelli er um að ræða konur sem þrífa hjá mér einu sinni í viku.En í því sambandi er ekki hægt annað að segja en ég sé lukkunar pamfíll.Ég kveið fyrir þegar sú sem hefur gengt þessu starfi hjá mér af mikilli prýði fór í sumarfrí.En sá kvíði var ástæðulaus í staðin kom virkilega skemmtilega kona sem vann sit verk vel.Svona þarf þetta að vera á öllum sviðum svokallaðrar umönnunar.Þó að ég geti hrósað happi geta það ekki allir á landinu.Það hlýtur að vera öllum þjóðfélögum til góða að eldri borgurum þess líði vel og að fólki sem nálgast þann aldur sjái fram til sæmilegra kjara og umönnunar.Burtséð frá hvaða stöðu það sé í og eða af hvaða ástæðum sú staða sé.
Það er alveg sama hvort opnað er blað,fyrir útvarp eða sjónvarp allt er sagt að sé komið langleiðina til andsk..... Svo til að kóróna allt þá verður það sennilega Björgúlfur Guðmundsson sem bjargar"Óskabarninu"frá falli.Satt að segja kaldhæðni örlaganna í ljósi sögunar.Ég man að ég las viðtal við Björgúlf,Kjartan,Helga og Pál.Aðalmennina í svokölluðu"Hafskipsmáli"í gömlu Mannlífs hefti fyrir nokkrum árum.
Þar lætur Björgúlfur hafa eftir sér."Hafskipsmálið er geymt en ekki gleymt.Ég hef alltaf verið hallur undir Björgúlf.Það má rekja til náfrænda hans sem var mikill vinur minn.Nú vona ég að honum takist að bjarga"Óskabarninu".En nóg um það.
Það eru dökkir tímar í kaffireikningnum hjá mér."Torfi á viktinni" farinn aftur í frí.Megi hann njóta frísins í faðmi fjölskyldunnar á vegum Tyrkja.Lesandi um lengdarbauga og ganga þar á guðs vegum þó svo að Allah,ráði þar kannske flestu.Og ég verð að láta mér lynda"heimabrugg"Ef einhver hefur nennt að lesa þetta kveð ég þann sama kært.
12.9.2008 | 20:30
Afmæli
Það hefur verið hálfgerður"lurkur"í mér undanfarið.Þrepið yfir á áttræðisaldurinn var kannske stærra en maður hélt.Hófið sem systkini mín héldu mér í"Ljónagryfjunni"var þeim til mikils sóma og mér til mikillar ánægju.
Tekið við gjöf úr hendi væntanlegs þingmanns
Ég vil þakka þeim kærlega fyrir það og þeim sem gerðu mér þann heiður að heimsækja mig þangað þakka ég kærlega fyrir það og þær gjafir er mér voru færðar.
"formaðurinn"að halda tölu og veislustjórinn Garðar Steindórsson t.h
En samt fór það neins og ég óttaðist að ég kann hreinlega ekki að haga mér í slíkum bjóðum.Innan um margt fólk er ég eins og vængbrotinn hæna.
Það þarf nú stærri mynd af svona góðum hóp
Þó að ég geti myndast við að reyna að rífa kja.. yfir öllu hér á bloginu þá er ég einn við það.Hér með bið ég þá vini mína sem ég hreinlega"vanrækti"í þessu hófi fyrirgefningar og afsaka mig með fákunnáttu á samskiftasviðinu.
Með hálfsystkinum stjúpu og lítilli frænku.Beta mágkona með sonardóttirina Emilíu Ósk.Hann sjálfur,Stjúpan Halldóra Jónsdóttir Ragnhildur Helga hálfsystir og Brynjar hálfbróðir.
Með miklu velgerðarfólki að"Vestan"Hauk og Ástu frænku
Annað mikið velgerðarfólk fyrir"Sunnan"Rúnar og Bína frænka
Ég er góður í 2 til 3 manna hóp og helst fá að hafa orðið.En margmenni er mér eiginlega ofviða.En ég ætla að láta myndir sem vinur minn síðan í Stýrimannaskóla Gísli Ólafsson tók í"bjóðinu"
2 breiðir bræður með frekar mjórri systir.Það mætti halda að maturinnn hafi allur farið í bræðurna en svo var nú ekki.
Æskufélagi Gísli Summ á tali við Dóru stjúpu.Tv Sigvaldi Jónsson föðurbróðir
Æskuvinur með frú.Baddi og Munda
Góðir vinir til margra ára Sigurbjörn og Malla
"Vestfjarðarmafían"Nei ekki svo ljót orð ,Með frænkunum að vestan
"Magga frænka"Margrét Jónsdóttir föðursystir
Kristbjörg hálfsystir og Óskar mágur
Með hálfsystkinum Brynjari Kristbjörg,Ragnhildur Helga
Þarna hefur dóttirin Ragnhildur Halldóra bæst í hópinn
Með stjúpu sinni,dóttir og dótturdætrum Lindu Andreu og Ingibjörgu Söru.
Ragnhildur Helga systir og Steini mágur
Helga Lóa frænka og Ragnhildur Halldóra dóttir.
Ég læt þessari upptalningu lokið,og kveð þá sem skoðað hafa kært.
12.9.2008 | 18:36
Klukkaður aftur
Minn góði blogvinur Helgi Þór hefur"klukkað"mig.Annar blogvinur minn Hafsteinn Viðar Ásgeirsson gerði það fyrir ári síðar.Er formúlan kannske önnur??En ég læt þá gömlu duga í bili:
1.Fæddur í Keflavík 29-08-1938.Nýbúinn að halda upp á 70 ára afmælið í"Ljónagryfjunni"í Reykjanesbæ
2,Ólst upp á Ísafirði og í Borgarnesi
3 Byrjaði í mai 1953 sem hjálparkokkur og skipsjómfrú(hreinsaði ælubakkana)á M/S"Eldborg"MB-3 sem þá var í vöru/farþegaflutningum:Reykjavík-Akranes-Borgarnes.
4, 1954 Byrjaði mína alvöru sjómensku sem háseti á Björg frá Siglufirði sem réri frá Grundarfirði
5.Eftir það háseti og bátsm á ýmsum togurum og bátum
6 Þvældist í gegn um Fiskimannin með próf 1963
7.2 dætur með 2ur konum.Giftur annari í 12 ár
8,Dyggur þjónn"Bakkusar"í tæp 30 ár en sagði upp vistinni fyrir 26 árum og hef lítið sem ekkert haft saman við hann að sælda síðan nema að reyna að flytja hann milli landa.Eftir slys fór aftur í Stýrimannaskólan og kom út með Farmannapróf 1981.Eftir það stm og skipstj.aðallega hjá"Ríkisskip"Eftir misheppnaðan innflutning á varningi(sjá ofar) sem hefði átt að vera mér óviðkomandi fór ég í"Langfart"
9.Sigldi hjá erlendum aðilum aðallega Dönum í 15 ár.Fékk krabbamein í visst stjórntæki og missti það.Flutti svo til Vestmannaeyja,Ætlaði að framhalda þvælingi um heimin en fékk hjartaslæmsku í 1stu útmunstringu.Uppúr því hjartaaðgerð með tilheyrandi flutningi á æðum sem virtist vera nóg af í hægri fæti.Fór svo fullsnemma á sjó og damlaði með vini mínum Garðari Sveinssyni í Norðursjónum að passa rafmagnskapla.Kom heim eins og ílla undin tuska en fór fljótlega á Reykjalund.Og kom þaðan út vel yfirfarinn og sprækur.
10.Síðan þess látið leti og ómennsku hafa áhrif á lífernið og þyngdina.Legið yfir tölvunni og leitað að einhverju til að rífa kja... yfir.Er nýfluttur í "Himnaríki"að mínu mati.(þjónustuíbúð fyrir aldraða við"Elló"í Vestmannaeyjum)Líður þessvegna með eindæmum vel hér,vonandi í sátt við alla hér á Eyjunni..Gerir minna til með "Landann"Svo verður það spurningin hvort ég fer "upp"eða"niður"frá þessari lokaviðkomustöð.Mjög líklega niður því ég er mikið fyrir að fara auðveldustu leiðina.Er búinn að setja mig í vandræði með þetta árans klukk.Hvað gerir maður svo?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
- kolbrunerin
- gudruntora
- gmaria
- dala
- nafar
- valmundur
- johannesgylfi
- gudrunmagnea
- rheidur
- gretarmar
- magnusthor
- nilli
- georg
- lydurarnason
- reykur
- johanneliasson
- helgigunnars
- hector
- kerfi
- kallimatt
- jonsnae
- jp
- jaj
- hva
- valurstef
- sigurjonth
- einherji
- fiski
- jakobk
- harhar33
- rs1600
- iceman
- thorirniels
- kjartan
- oliskula
- 1kaldi
- gretar-petur
- jon-o-vilhjalmsson
- skulablogg
- floyde
- ragnarb
- meistarinn
- palmig
- aevark
- morgunbladid
- zumann
- jensgud
- gutti
- gudni-is
- saethorhelgi
- geirfz
- iceship
- fuf
- saemi7
- ketilas08
- kokkurinn
- einarorneinars
- xfakureyri
- siggith
- stormsker
- valli57
- markusth
- luf
- framtid
- vefritid
- jakob
- postdoc
- jenni-1001
- mal214
- partners
- iceberg
- valdivest
- torfis
- gattin
- malacai
- benz
- gumson
- hildurhelgas
- minos
- seinars
- skinogskurir
- krist
- thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (1.11.): 3
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 18
- Frá upphafi: 535908
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 14
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar