20.6.2007 | 23:25
Fv Sjávarútvegsráðherra hefur orðið
Vel má hugsa að slíkur hópur tæki jafnvel endanlegar ákvarðanir um heildarafla úr þeim stofnum sem ráðherra hefði áður sett um fasta aflareglu. Í öðrum tilvikum kæmi hugsanlega því aðeins til kasta ráðherra að hópurinn væri ekki á einu máli. Með þessu móti má breikka vísindalegan grundvöll ákvarðana og færa árlegar ákvarðanir fjær skammtíma hagsmunatogi. Um leið yrði ráðherrann fyrst og fremst ábyrgur fyrir langtíma nýtingarákvörðunum. Sú ábyrgð er veigamest og í eðli sínu pólitísk.
Mikilvægt er að birtingarmynd umræðunnar verði ekki sú að þjóðin standi andspænis tveimur vandamálum: Of fáum þorskum í sjónum og of mörgum þorskhausum á þurru landi.""Mig skortir minni til að fjalla um aðkomu Þorsteins að kvótakerfinu á sínum tíma..En mér finnst þessi tillaga hans um hóp sjálfstæðra sérfræðinga á sviði líffræði og hagfræði sem fengju að gera athugasemdir við"rallaríið"hjá Hafró.Nú virðist eitthvað vera farið að hitna undir spekúlöntunum þar og verður sennilega heitara ef rétt er haldið á málum.Lemja á þeim og gefa engan grið.Ef ég hef ekki misskilið Kristinn Pétursson hinn mikla baráttumann frá Bakkafirði því meira,ýaði hann að því að togstreyta sem væri milli stærðfræðinga og líffræðinga væri vandamál í dag.Hér er smá stærðræðibrella.Taktu 3ja tölustafa tölu t.d 793 skrifar hana svo afturábak 397 dragðu svo minni töluna frá þeirri stærri 793-397 =396 og leggur svo þá tölu saman við sína spegilmynd þ.a.e..s 396+693 =1089.Svona geta snjallir stærðfræðingar fengið hlutina til að passa.Kært kvödd
20.6.2007 | 18:11
Kattarþvottur á WCinu og reykingar bjarga lífi
Hérna kemur auðveld aðferð við klósettþrif
Klósettþrif eða hvernig kötturinn getur komið að góðum notum.
1. Lyftu upp báðum klósettsetunum og settu hálfan bolla af gæludýrasjampói
í vatnið í skálinni.
2. Taktu heimilisköttinn í fangið og strjúktu honum á róandi hátt meðan þú
heldur á honum inn á baðherbergið.
3. Með einni snöggri hreyfingu, settu köttinn ofan í klósettið og bæði
lokin niður. Þú gætir þurft að standa ofan á klósettsetunni.
4. Kötturinn mun berjast um sjálfan sig og gefa frá sér furðuleg hljóð.
Vertu ekkert að spá í hljóðin sem koma úr klósettinu. Kötturinn hefur
virkilega gaman af þessu.
5. Sturtaðu niður þrisvar eða fjórum sinnum. Það myndar "ofurþvott" og
"skol".
6. Biddu einhvern að opna útidyrnar. Passaðu að enginn sé fyrir á leiðinni
milli baðherbergisins og útidyranna.
7. Stattu eins langt fyrir aftan klósettið og þú getur og lyftu báðum
setunum snögglega.
8. Kötturinn mun skjótast upp úr klósettinu, þjóta fram úr baðherberginu og
hlaupa út þar sem hann mun þurrka sig.
9. Bæði prívatið og kötturinn verða skínandi hrein
Með bestu kveðju,
Hundurinn
Ef reykingar hefðu ekki verið byrjaðar á 19 öld hefði heimurinn sennilega mistt einn af sínum mest dáðu listmálurum.Pablo Piasso.Við fæðingu hans taldi ljósmóðirin hann dáinn og lagði hann á borð við hliðina á rúmmi móðurinnar.Frændi hans kom inn í því reykjandi stórcíkar og púaði framan í barnið sem byrjaði að hósta og líf komst í hann.
17.6.2007 | 21:12
Er Sturla genginn í Frjálslyndaflokkinn
14.6.2007 | 13:56
Fiskveiði(ó)stjórn
10.6.2007 | 21:24
Guðsgáfur
Bara svona til að vera ekki alltof neikvæður og/eða vera alltaf með einhvert röfl og rugl þá datt ég um þennan um daginn:
Það sem fer hér á eftir er spurning sem sett var fram á miðvetrarprófum í
efnafræði við University of Washington háskólann. Svar eins nemandans varsvo stórkostlegt að prófessorinn ákvað að leyfa öðrum að njóta þess.
Aukaspurning:
Gefur helvíti frá sér hita eða tekur helvíti til sín hita ?
Flestir nemendur settu niður staðhæfingar og reyndu að sanna niðurstöður
sínar með tilvísun í lög Boyles sem segja að gas kólni undir minnkandi
þrýstingi en hitni undir auknum þrýstingi.
En einn nemandi skrifaði eftirfarandi:
Í fyrsta lagi þá þurfum við vita hvernig massi helvítis breytist í tíma.
Þess vegna þurfum við að vita tíðni þess að sálir fari inn í helvíti og
tíðni þess að sálir fari úr helvíti.
Ég tel þó að við getum gengið út frá því að ef sál fer einu sinni inn í
helvíti þá kemur hún ekki út aftur og þar með sleppi engar sálir úr helvíti.
Hinsvegar til að áætla hversu margar sálir fara inn í helvíti er rétt að
skoða mismunandi trúarbrögð í heiminum í dag. Flest þessarar trúarbragða
halda því fram að ef þú ert ekki hluti af þeirra trú, þá farir þú til
helvítis. Þar sem það eru fleiri en ein trúarbrögð í heiminum og þar sem
fólk tilheyrir ekki fleiri en einum trúarbrögðum í einu, má ganga útfrá að
allar sálir fari til helvítis.
Miðað við tíðni fæðinga og dauða eins og það er í dag má reikna með að
sálum í helvíti fjölgi með ógnarhraða. Nú skulum við líta á breytinguna á
stærð helvítis, því lög Boyles segja að til þess að hiti og þrýstingur í
helvíti haldist sá sami, verður stærð helvítis að stækka í samræmi við
fjölda sálna sem bætast við. Þetta gefur okkur tvo möguleika:
1. Ef helvíti er að stækka með minni hraða en tíðni sálna sem bætast við þáhlýtur hiti og þrýsingur að hækka þar allt fer til helvítis.
2. Ef helvíti er að stækka hraðar en aukning sálna sem inn í það fer, þá
hlýtur hiti og þrýstingur í helvíti að minnka þar til helvíti frýs.
Þannig, hvort er það ?
Ef við skoðum staðhæfingu sem Guðrún bekkjasystir mín setti fram við mig
þegar ég var í fyrsta bekk: "Það verður kaldur dagur í helvíti áður en ég
sef hjá þér", og ef tekið er tillit til þeirrar staðreyndar að hún svaf hjá
mér í gær þá hlýtur númer 2 að vera svarið.
Þannig að ég held því fram að helvíti gefi frá sér hita og sé í reynd þegar
frosið.Hin hliðin á þessari kenningu er að þar sem helvíti er þegar frosið og taki ekki við fleiri sálum, þá er eini valkosturinn sá að allar sálir fari til
himna og sanni tilvist eilífrar sæluvistar, og það útskýrir að í gærkvöldi
kallaði Guðrún hvað eftir annað "Ó guð, Ó guð".
Þessi nemandi var sá eini sem fékk A.
9.6.2007 | 22:33
Lögguleikur
Maður staldrar við og fer svolítið að hugsa þegar maður heyrir um svona atburði eins og skeði í Hnífsdal í nótt,Maður viti sínu fjær vegna ölvunar skjótandi um með haglabyssu.Hvað eru menn að gera veður út af svona hlutum og fara í lögguleik sagði einn kunningi minn við mig í dag.Í þessu dæmi voru menn ekkert að leika löggur þeir voru það.Það er grafalvarlegt mál þegar maður sem sviftur er ráði vegna ölvunar eða eiturlyfja er vopnaður.Jafn alvarlegt á litla saklausa Íslandi og það er t.d. á Grænlandi,USA og öllum öðrum löndum þar sem vopn finnast.Við Íslendingar verðum að fara að horfast í augu við veruleikan.Ég lenti í því einu sinni að setja líf manna á spil af fávisku.Ég var skipstjóri á Norsku skipi.Við vorum í Timecharter hjá Arabísku fyrirtæki.Við lestuðum uppí Evrópu niður tl Famagusta og Beirut.Við höfðum farið inní höfnina í Beirut eiginlega undir skothríð vegna vatnskorts.En meðan við biðum á ytrihöfninni höfðu 2 hópar kristinna manna byrjað að berjast,En við áttum að fara inn á umráðasvæði Muslima.Þegar inn var komið og við höfðum fengið vatnið spurði agentinn hvenær við vildum fara út.Mér fannst bara fara vel um okkur og spurði hvort ekki væri í lagi að við myndum ligga bara kyrrir.Viltu það spurði agentinn dálítið hikandi.Já sagði ég þeta virðist allt vera í lagi,Up to you sagði hann bara.En svo bað hann okkur að vera ekki mikið á ferðinni ofanþilja eftir að skygga tæki,og alls ekki í hvítum skyrtum.Mér fannst þetta skritin bón.Þarna lágum við svo nokkra daga,höfnin lokuð og engin vinna en við fylgdumst með"bardögunum"í sjónvarpinu,Loks kom að því að þeir sömdu frið og höfnin opnaðist.Það hafði bilað hjá okkur hleðslutækið við talstöðina og vélstjórinn gat ekki gert við það.Eitt af fyrstu skipunum sem í höfnina kom var rússneskt fraktskip sem lagðist fyrir aftan okkur.Ég taldi mig vita að þar væri rafvirki um borð svo að ég fór yfir og fékk að tala við skipstjóran.Þegar hann hafði boðið upp á veitingar og við drukkum saman te sagði hann"það er gaman að sjá svona frægan mann"Hvaða fræga mann spurði ég.Þig sagði hann.Þú hefur verið aðalumræðuefnið hjá skipunum á ytrihöfninni undanfarna daga.Menn hafa ekki skilið úr hvaða efni taugarnar í þessum norska skipstjóra væru.Nú rann upp fyrir mér ljós.Umrædd skip voru flest frá austurevrópu.Skipstjórarnir þekktu byssur og hverju þær geta valdið.Ég þakkaði guði fyrir að hann eða þeir héldu mig norðmann,líka fyrir hve heppinn ég hafði verið.Og þarna skildi ég líka þetta með hvítu skyrturnar.Menn í hvítum skyrtum hefðu verið auðveldari skotmörk.Ég skrifaði um það um daginn að menn skildu ekki gera grín að þessum sveitum manna sem Björn Bjarnason er að ráðgera að stofna.Þá sagði ég meðal annars þetta""Það er merkilegt hvað sumir virðast alveg fara úr límingunum,þegar rætt er um hugmynd Björns Bjarna.um varalið lögreglunar og tala um tindáta.Gerir fólk á Íslandi sér ekki ljóst enn að litla saklausa Ísland er að komast í tengingu við umheimin.Fyrir 30 árum hefði bankagjaldkeri hlegið hefði að honum verið beint byssa.Hann hlær ekki í dag.Í þá daga vorum við með að minnstakosti 5 varðskip/báta.Nú eru þau 2.Litlu varðskipin sem við áttum þá,höfðu eftirlit með fiskveiðiflota annara þjóða.Sem sagt veiðiþjófum.Nú erum við lausir við þá.Allavega höldum við það.En blasir ekki önnur ógn við okkur í dag?Ógn sem gæti haft að mörgu leiti skelfilegri afleiðingar á stóran hóp íslendinga.Nýtt og stórt varðskip er mjög gott mál sem ég held að allir séu sammála um það.En er það nóg?Hvað um eiturlyfjabarónana sem sitja um landið?Hvað með allar eyðivíkurnar/firðina á Austfjörðum?"".Hefði samskonar sveit verið tiltæk t.d.á Ísafirði í nótt hefði verið gripið fyrr í taumana.Svona atvik verður að taka alvarlega.Hættan er allt í kring um okkur og birtist í mörgum.Það er ekki svo að ég sjái and...... í öllum hornum langt frá því en ég vil að við gerum okkur grein fyrir þegar hætta er á ferðum og hættum að tala um lögguleiki og tindáta.Kært kvödd
8.6.2007 | 18:01
Ríkir og fátækir
Hvernig í ósköpunum getur á því staðið á því að ef láglaunamaður fær nokkra % hækkun á laun sín þá hleypir hann af stað óstöðvandi verðbólgu.En ef forstjórar,bankastjórar fá sömu % á sín miljóna krónulaun þá skeður ekkert.Þó svo að hækkun þeirra síðarnefndu séu í krónum talið miklu hærri.Þær fjárhæðir virka ekkert á þessa svokölluðu þenslu.Þó svo að allur lúxusinn sem þessir menn láta eftir sér sé ekki í hálfkvisti við það sem hinn almenni launþegi lætur eftir sér.Hver skilur í þessari hringavitleysu.Einar"óvætturinn frá Flateyri"gerir engar atrhugasemdir við launahækkun fyrstgreindu hópana.En ef eitthvað á að fara að bæta hag þeirra verr settu í þjóðfélaginu þá kemur hann strax í beina útsendingu og segir þjóðina ekki hafa efni á því.Einar Oddur hefur ekkert við kaupin á aflógadalli til Grímseyjaferða að athuga.Hvaða gæðingum Íhaldsins skildi verið að hampa í því máli.Mér finnst fv Samgönguráðherra Sturla Böðvarsson skulda greiðendum reikningsins fyrir þessi kaup þ.e.a.s.almenningi í þessu landi skýringar.Almenningur á rétt á aö vita hver skoðaði ferjuna í fyrstu?.Var hún keypt af fyrri eigendu beint eða var einhver íslenskur milliliður?Er fótur fyrir þeim orðrómi að vissir aðilar hafi keypt hana fyrir 10 miljónir en selt svo ríkinu hana fyrir 90 miljónir.Sem sagt grætt 80 miljónir á dæminu.Ég vona bara fyrir Einars Odds og þessara frjálshygguíhaldsmanna að þetta séu bara sögusagnir.Ég vona að nýorðin Samgönguráðherra upplýsi af hverjum ríkið keypti þennan forngrip og hver skoðaði skipið og mælti með kaupunum við Vegagerðina.Ég er viss um að menn frá Vegagerðinni hljóta að hafa haft menn/mann með sér til ráðgafar.Við eigum heimtingu að vita hverjir voru ráðgafarnir.Það er oft skrýtið með hvernig peningum ríkisins er varið.Oft er sóað peningum í einhver gæluverkefni ráðamanna.Einnig eru nógir peningar í há laun til gæðinga innan ríkisgeirans.En ef það á að fara að bæta hag t.d.barna með geðvandamál þá er allt að fara til fjandans..Ég endurtek að það ætti að láta nokkra af þessum lúsablesum fara á götuna og láta á bjarga sér á lægstu launum sem greidd eru í dag.Við megum heldur ekki gleyma því að margir sem komnir eru á eftirlaun í dag súpa dauðan úr skel vegna ráðstafana ráða manna hér á árum árum.Gengisfellingar til að bjarga málunum og tvö 0 skorin af krónunni svo eitthvað sé nefnd.Ráðstafana manna eins og Einars Odds,Péturs Blöndals,Davíðs.Manna sem nú eru sennilega að hilma yfir eitthvað sem ekki þolir dagsins ljós í Grímseyjarferjumálinu.Kært kvödd
7.6.2007 | 13:34
Enn og aftur
6.6.2007 | 13:03
Davíð og lífeyrisþegar
Þetta er magnað hagkerfi sem við búum við hér á landi.Hugsið ykkur þegar stjórnvöld eru að hugsa um að reyna að bæta kjör þess sem minna mega siín,þá kemur seðlabankastjóri og varar við því að það geti sett allt í bál og brand,Þessi sami seðlabankastjóri er að fá laun mín á mánuði í hækkun á sínum launum og sömu upphæð nokkrum mánuðum seinna.Hann fær núna ef ég man rétt 1.4 milj. á mánuði sama og 14 mínir líkir.Ég hef oft hugsað út í hvers virði ábyrgð er.Af hverju er ábyrgð í peningageira hærra verðsett en ábyrgð á mannslífum.Hversvegna eru t.d. flugstjórar sem í sumum tilfellum ábyrgir fyrir lífi fjölda manns,skipstjórar einnig og rútubílstjórar.Sumar af þessum stéttum eru ekkert öfundsverðar af launum sínum.Davíð Oddson er að verða að þjóðaróvini no 1,Mér hefur skilist á tali sumra manna eftir að ég flutti heim til Íslands að Davíð væri hreinlega guðfaðir velmegunarinnar sem íslendingar byggju við í dag.Ég get engan veginn komið auga á velmegun nema hjá hluta þjóðarinnar.Skilin milli þess ríka og þess fátæka eru alltaf að verða sýnilegri.Hvernig getur það verið,að það auki verð bólgu ef ellilífeyrisþegi/öryrki fá nokkra % hækkun á sínum lúsalaunum.Ekki fara þær hækkanir í kaup á lúxusjeppum eða lúxussumarbústöðum eða rándýrum laxveiðileyfum.Hvað með ágóða af kvóta sölu.Mér finnst það aðhlátursvert að stæðsta ógnin við aðgerðir Seðlabankans í baráttunni við verðbólguna skuli vera það að ef,já,ef,eldriborgarar/öryrkjar fengu aðeins bætt kjör sín.Mér finnst Davíð Oddson ætti að skammast sín að koma með þessa kenningu í sama fréttatíma og sagt er að laun hans skulu hækka sem nemur mánaðarlaunum öryrkja á mánuði.Hafa þessir menn enga sómatilfinningu..Já svei´ttan,Það ætti að setja Davíð á bætur ellilífeyris í að minnstakosti 1 ár
2.6.2007 | 23:16
Sjórán
Það setti hroll að mér þegar hringt var í mig áðan og mér sagt að skipi sem ég sigldi töluvert lengi á hefði verið rænt út af strönd Somalíu.Maður er illilega minntur á veruleikan út í hinum stóra heimi.Ég var um daginn oft að blogga um hinn harða heim sem við erum blessunarlega lausir við að mestu leiti.Ég hef verið sakaður um hræðsluáróður og ekkert slíkt gæti hent okkur.Ég geri nú ekki ráð fyrir að sjóræningar ræni íslenskum skipum.En óneitanlega fer um mann þegar svona skeður fyrir skip frá frændþjóð okkar.Skipsrán eru tíð á nokkrum hafssvæðum.En þessa er mjög sjaldan getið hér í fjölmiðlum.Ég minnist skeyti frá útgerð sem ég sigldi hjá þar sem sagði að skipstjórinn á einu skipanna hefði vaknað með hníf við hálsin og hann neyddur til að afhenda öll verðmæti.Þetta skeði um nótt í Singapoorsundinu eða Strait of Malacca.Maður á bágt með að ýminda sér hvernig áhöfninni líður ef þeir eru þá á lífi.Þetta setur skugga á sjómannadaginn hjá mér.Að vísu veit ég ekki enn hvort einhver af áhöfninni sem ég sigldi með er um borð,en þetta eru danskir sjómenn
Fragtskibet Danica White kapret ud for Somalia
02. jun. 2007 23.40 UdlandDirektør Jørgen Folmer fra rederiet H. Folmer Co. bekræftede i aftes over for Ritzau, at rederiets fragtskib Danica White, med fem danske besætningsmedlemmer, er blevet kapret af ukendte gerningsmænd ud for Afrikas Horn på den østafrikanske kyst.Danica White var på vej til Mombasa i Kenya med en last af entreprenør-materiel, og det var fredag aften 240 sømil fra kysten.Et fransk krigsskib i området har været i kontakt med Danica White, og det fik at vide at skibet havde kurs mod Somalias hovedstad, Mogadishu. Desuden havde det tre små både på slæb, og det var franskmændenes indtryk, at der var bevæbnede folk om bord.Det har ikke været muligt for H. Folmer Co. at få kontakt med Danica White. Rederiet har bedt det franske krigsskib om at standse Danica White, men det har fået besked på at det ikke må følge Danica White ind i somalisk territorialfarvand.
2.6.2007 | 16:34
Kótinn og Mogginn
Batnandi manni er best að lifa datt mér í hug er ég las forustugrein Moggans í dag.Þar stóð m.a
.......Þótt færa megi margvísleg rök fyrir kvótakerfinu að öðru leyti er ljóst að markmiðið með því var ekki að það skildi eftir sig sviðna jörð um land allt. En það er kvótakerfið að gera. Ef kvóti Vinnslustöðvarinnar hverfur frá Vestmannaeyjum má búast við að stór hluti íbúanna flytjist á brott. Viljum við það? Er það markmið sjávarútvegsstefnunnar að leggja Vestmannaeyjar í eyði? Er það markmið sjávarútvegsstefnunnar að byggðin leggist af á Flateyri við Önundarfjörð? Það má færa rök fyrir því að Bolvíkingar hafi náð sér á strik á trillubátum eftir að kvótinn hvarf frá Bolungarvík en hvaða sjómenn geta rekið fiskveiðar með því að leigja kvótann á 200 krónur kílóið og selja fiskinn aftur á innan við 300 krónur kílóið? Við Íslendingar viljum ekki að sjávarþorpin leggist í eyði. Við viljum ekki að þorri sjómanna verði leiguliðar hjá fáum, stórum kvótaeigendum. Við lítum ekki svo á að þetta hafi verið markmiðið með kvótakerfinu. Þess vegna er nú óhjákvæmilegt að taka þetta kerfi til endurskoðunar á nýjan leik. Það gengur ekki að örfáir einstaklingar geti lagt heilu byggðirnar í rúst með því að kaupa upp þann kvóta sem þar er að finna. Hvort sem Einari K. Guðfinnssyni sjávarútvegsráðherra líkar betur eða verr verður hann að taka þetta mál allt upp til endurskoðunar. Og það þýða engin vettlingatök. Ekki er það betri kostur fyrir sjávarútvegsráðherra að Vestmannaeyingar og Flateyringar fjölmenni til Reykjavíkur og stormi borgarhliðin að sjávarútvegsráðuneytinu. Þolinmæði íbúanna í sjávarplássunum er augljóslega þrotin. Ráðherrarnir í ríkisstjórn Íslands eiga ekki að bíða eftir því að sú þolinmæði springi framan í þá með ógnarkrafti......
Skildi það loksins vera farið að síast inn í menn hvaða ógagn er að þessu kótakerfi fyrir landsbyggðina.Það skildi þó ekki fara svo að Morgunblaði yrði helsta málgagn þeirra sem vilja breytingar á þessu kerfi.Það verður alltaf meira spennandi að hlusta á Sjávarútvegsráðherra halda sína ræðu á morgun.Ef við skoðum sviðið í hans ranni í dag.Fégráðugir braskarar fara eins og stormsveipir yfir landið í leit að kóta til að braska með.Ógn vofir yfir sjávarbyggðum þessa lands ef ekkert verður að gert.Hvað gera t.d. erfingar þeirra manna sem í dag reyna að halda sínum kæru heimabyggðum í byggð þegar þeir síðarnefndu falla frá.Fiskiskipum fækkar og þar af leiðandi störfum sjómanna.Ef trúa má orðum formanns stéttarfélags þeirra á Akureyri þá er þrælahald aftur komið á suma íslenska togara allavega í eigu eins ónefnds manns.Og slysum fer fjölgandi í framhaldi af því.Farmannastéttinni að blæða út.Hafró með enn eina af sínum svörtu skýrslum.Byggðri á einhverju arfavitlausu togararali sem enginn,sem vit hefur á veiðiskap dettur í hug að taka mark á,Mér skilds á mönnum sem hafa tekið þátt í þessari vitleysu sem Togararall heitir að það sé bara togað á sömu svæðum með útbúnað sem er síðan á árdögum skuttogara Maður hugsar með hryllingi til framtíðar ef þessi nefndur ráðherra lætur fljóta sofandi að feigðarósi.Við skulum bara vona að Mogginn komi vitinu fyrir þennan ráðherra sem stjórnar þessum,allavega fv undirstöðuatvinnuvegi okkar og taka undir með Steini Steinari er hann kveður:
.....Og eitt sinn skulu draumar vorir rætast
um þjóðfélag hins frjálsa,sterka manns,
sem engin ránshönd,drápshönd vofir yfir
og slegið fær.......
Það var slæmt að ekki skildi vera hreinsað út í margnefndu ráðuneyti og þessari samkundu sem kennir sig við Hafrannsóknir í leiðinni
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar