"Eru ekki nokkrar hliðar á þessu máli ?"

Eru ekki nokkrar hliðar á þessu máli ? Hvernig á að flytja álið frá Reyðarfirði til Seyðisfjarðar. Er það kannske flutt storkið og hitað aftur upp á Seyðisfirð. Og ef engir þekktir framleiðendur á svona köplum koma að framleiðslunni. Fást þá kaupendur.

 

Myndi vertaki sem kæmi að línulögn kannske langa leið kaupa kapalinn af nýstofnuðu fyrirtæki sem er reynslulaust í bransanum,. Einhvern veginn finnst mér ekki öl sagan sé sögð. En ég óska Seyðfirðingum als hins besta í sinni leit að verkefnum og vona að þeim gangi þar allt í haginn. En ég held að þessi kaplagerð hafi ekki verið það fjöregg sem þeir hugðu. Kært kvödd


mbl.is Verðum ekki drepin hljóðalaust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þótt ég hafi stundum ekki "

Þótt ég hafi stundum ekki verið hrifin af viðbrögðum Femínistafélagsins í mörgum málum er ég algerlega sammála þeim í þessu máli, Og rökin sem það færir rétt. Þó ekki sé maður á móti lagegum konubossum. En þá undir öðrum kringumstæðum, þar sem kappleikurinn truflar ekki sjónarspilið. Kært kvödd
mbl.is Badmintonsambandið standi með konum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"lítið úr kvenfólki"

Ekki vil ég gera lítið úr kvenfólki. Konur eru dásamlegar. Hvor sem þær eru í G-streng. eður ei. En ég velti fyrir mér hvort maðurinn hefði fengið vægari dóm ef konan hefði verið í  íslensku "föðurlandi". Það gæti verið athugandi í framtíðinni að gyrða sig í allmennilegar brækur fyrir hjónaerjur  Kært kvödd
mbl.is Í g-streng í vegarkanti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það eru nú meiri gæðin."

Það eru nú meiri gæðin. Eldgos á hverju ári. Hellingur af ráðstefnum slegnar af. En í alvöru nú hlýtur að vera mál að linni. Kært kvödd
mbl.is Ísland með bestu ráðstefnulöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hefur þetta fólk"

Hefur þetta fólk ekkert þarfara að gera. Ég er löngu hættur að reykja. En ég bjó líka um tíma í Sverige. Þar flæddi smyglað tóbaki  frá Póllandi yfir allt. Og flestir sem til Noregs hafa komið og þekkja til tóbaksmála vita hvernig ástandið er þar. Þetta er alvega saman og með brennivínið drekki fólk nær það í það, bara eftir öðrum leiðum Glæpalýð til mikilla ánægju. Kært kvödd
mbl.is Tóbak verði bara selt í apótekum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Alveg er sama hvað"

Alveg er sama hvað stjórnarflokkurinn heitir hverju sinni á hvaða tíma sem er. Ef menn hafa aðra skoðun á stefnu stjórnar en hún sjálf þá heitir það ósvífni. Svona er nú pólitikin í hnotskurn

 

Jóhanna Sigurðardóttir er orðstór undanfarið talandi um íhaldið. En var hún ekki í stjórn með íhaldinu.? Sat ekki Samfylkingin  við borðið í svallveislunni sem  "var haldin undir lúðrablæstri frjálshyggjutrúboðs Sjálfstæðisflokksins" ??? 

Var ekki viðskiftaráðherra Samfylkingarmaður.  Og var það ekki flokkssyskini hans sem héldu honum frá atburðunum þar til á síðustu stundu. Hversskonar andsk..... aumingar hafa ráðherrar Samfylkingarinnar verið, að loka augunum fyrir því sem var að gerast. Ef að íhaldið stjórnaði öllu í stjórn G. H. Var  Samfylkingin ekki með eftirtalda ráðherra: Ráðherra utanríkismála Sem fór erlendis og dásamaði svallveisluna Sem sagt gagnlaus.

Var samfylkingin ekki með ráðherra félags og tryggingamála Úti á túni gagnlaus. En rífur nú stólpakja.. Ráðherra umhverfismála Líka út á túni gagnlaus vissi ekkert um umhverfið í kringum þær tvær  Ráðherra samgangna vissi ekkert vita gagnlaus. Ráðherra iðnaðar rífur kjaf. nú en hefur þá verið mað hann reimaðan saman Ráðherra viðskifta kom ekki nálægt neinum viðskiftum.  Virkilega vitagagnlaus.

 

Og sem meira er allt þetta fólk er að reyna að  skapa einhverja geislabuga yfir hausin á sér sem fólk á að trúa á. Kemur skælbrosandi fyrir alþjóð og segjast búin að gera upp fortíðina   Ekki ætla ég að fara að bera blak af íhaldinu en svona kattarþvottur fer í þessar fáu fínu taugar sem ég hef eftir.

 

Og frú Jóhanna var það ekki ósvífni að skerða tekjur þeirra sem minna mega sín. Og þótt verkafólk í landinu sé búið að kreista fram enhverja nánös í kauphækkunum eru þeir sem minst geta borið hönd yfir höfuð sér enn út undan. Því miður hafa þessir hópa ekki þau vopn sem atvinnurekendur hafa. Og eftir ummæli tveggja samfylkingarmanna virðist heldur ekki vera nein sátt um sjávarútvegsnálin þar innan flokks. Er það ekki ósvífni frú Jóhanna. Verið kært kvödd


mbl.is Kvótamálin í þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"undirheimar Reykjavíkur"

Já undirheimar Reykjavíkur já eða Íslands er orðin harður heimur. Og þrátt fyrir andstöðu sumra framsóknarmanna verður að fylgast með aðstreymi óæskilegar glæpamanna. Og það fólk þykist bera fyrir brjósti réttindi innflytenda (sem ég svo sannarlega geri) ætti að athuga hvaða skaða slíkir menn gera hinum mikla meirihluta innflytenda sem hér eru í heiðarlegum tilgangi. Ég held að Kópavogs framsókin ætti að athuga það.

 

Ég var dolfallinn yfir málfutningi Landlæknis í Kastljósi í gær. Er maður sem ekki hefur meira vit á fíkniefnavandanum (sem virkilega er heilbrigðisvandamál) hæfur í fyrrgreint embætti. Veit hann ekki að uppeldi vit eða neitt í þá átt hefur bara ekkert með málið að gera. Ég er aðeins eldri en tvævetur Og á mínum sokkabandsárum í lífinu voru undirheimar Reykjavíkur nokkrir smáþjófar sem höfðu vissa  lækna sem skrifuðu "rebba" eins og það var kallað. Nú sumir höfðu það góð sambönd að þeir voru að selja glas og glas. Og þá uppúr 1950 voru vissir læknar sem gægt var að ganga að Stundum voru þetta gamlingar sem höfðu lítið að gera.

 

Bjórkassi, lúðuflak var stundum gjaldmiðillinn hjá okkur trollaraköllunum. En satt að segja brá manni þegar þessi umræða komst í hámæli nú. Mér datt ekki í hug að læknadópið væri svona algengt. Datt ekki hug að stærðargráðan af því í eiturlyfjaheiminum væri svo stór. Ég heyrði aðeins í Lýð Árnasyni í útvarpinu í dag. Hinum satt að segja fjölhæfa lækni. Þar kom hann með athygli verða hlið á málinu. Getur verið að sumum læknum sé haldið í gíslingu af óprúttnum glæpamönum ? Eitthvað er skrítið í þessu máli Kært kvödd


mbl.is Einn í gæsluvarðhald og annar hefur afplánun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"mjög á móti "

Ég er mjög á móti mannréttindabrotum hvar sem er í heiminum. En ætli Össur hafi aldrei heyrt orðatiltækið:"maður líttu þér nær" 
mbl.is Baðst afsökunar á Falun Gong-máli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þetta er rangt."

Þetta er rangt. Það voru ekki 90 % póstmanna sem sögu já. Það voru 90 % af rétt rúmum helming póstmanna sem sögðu já
mbl.is 90% póstmanna sögðu já
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" Stórtækur kampavíns þjófur "

Stórtækur kampavíns þjófur. Ef 24 flöskur af kampavíni er stórttækur þjófnaður hvar eru þá milljarðar af peningum sem stolið var af þjóðinni á þjófnaðarskalanum ? Ég er ekki að bera blak af þjófum hvorki kampavíns eða öðrum en ég bara spyr ? Kært kvödd
mbl.is Stórtækur kampavínsþjófur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"sem þótti heldur hægfara"

Við lestur á þessari frétt dettur mér í hug gömul saga um iðnaðarmann sem þótti heldur hægfara. Þetta var á árdögum sjálftrekktra armbandsúra. Iðnaðarmaðurinn fékk sér eitt slíkt. En það vildi ekki ganga rétt. Hann fór með úrið til úrsmiðsins sem hann hafði keypt það af. "Það er ekkert að úrinu" var dómurinn" en hendurnar verða að hreyfast til að það trekkist upp" Kært kvödd


mbl.is Kól við störf í frystilest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Við höfum góð dæmi um"

Við höfum virkilega góð dæmi um "uppblástna" einstakinga í vissu húsi við vissan völl í miðborg Reykjavíkur. Kært kvödd
mbl.is Fékk þrýstiloft í rassinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"margt skrítið í kýrhausnum"

Ja það er margt skrítið í kýrhausnum. Þó ekki sé hann á ráðherra vorum í utanríkismálum. Það verður kannske rétt að minnast þessara orða:"að hann yrði hissa ef í aðildarsamningum við Evrópusambandið kæmu fram mjög sterkar kröfur um að sambandið fái aflaheimildir við Ísland"

 

Ég sjálfur varð líka hissa þegar fg ráðhera talaði um fund sinn við samráðherra sinn í USA. Og talaði um eitthvað mál hafi þau rætt lengi. En svo kom í ljós að fundurinn stóð aðeins í 30 mín. Og jafnvel flókin mál eins og ástarlíf þeirra Clinton hjóna hafi m.a borð á góma. Með mikilli virðingu fyrir þeim hjónum.

 

Þó vaði nú oft á okkar manni þá er nú 30 mínútna stuttur tími þegar heimsmál eru rædd Þannig er það nú frá mínum bæjardyrum séð. Ávallt kært kvödd


mbl.is Á ekki von á kröfum um aflaheimildir við Ísland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Það skildi þá aldrei vera"

Það skildi þá aldrei vera að ríkisstjórn Geirs Harde hafi ætla að taka heimilin fram fyrir lánastofnanir í tilvonandi aðgerðum.

En þá hafi XB komið í veg fyrir það með að lýsa yfir vörn fyrir "hinni tæru no 1". Það hlýtur nú að vera krafa fólks að vita sannleikann um þetta mál. Kært kvödd


mbl.is Sendu AGS viljayfirlýsingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hvað datt Steingrími í hug "

Skelfingar börn eru þetta. Hvað datt Steingrími í hug þegar hann hækkaði brennivínið? Þetta segir sig sjálft.
mbl.is Heimabrugg eykst verulega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"þurfi ekki mikið meira vit"

Ég held að það þurfi ekki mikið meira vit í kollinum en eins og t.d. ég hef til að sjá þann stóra galla á þessum  fiskveiðistjórnarfrumvörpum "þeirrar tæru" sem fellst í að færa mikið vald yfir þessari svokallaðri "auðlind í þjóðareigu" til stjórnmálamanna.

226 m Nýtt pott.. nei nei kvótafrumvarp á leiðinni 

 

Liggur það bara ekki í hlutarins eðli að þeir kunna ekkert með það að fara. þeir virðast taka sér ástundum vald sem enga stoð hefur neinstaðar.

g03500 Það leynist kannske glæta í einhverju í  fiskveiðistjórnarfrumvörpunum ???

T.d eins og nú þegar þingkona Framsóknar leyfir sér að tala fyrir munn viss hóps hér í Eyjum. Sem svo frábiðja sér ummælin. Og guð hjálpi okkur ef á að fara ríkisreka þessa veigamiklu atvinnugrein. Menn á miðjum aldri og þar yfir ættu að muna "Bæjarútgerðirnar".

 

5454865338 483fcb47fe Fiskar í potti

Ef þetta úthlutunarvald úr svokölluðum pottum á að liggja hjá pólitískum vandhöfum hjá ríki og bæ þá er betra heima setið en af stað riðið.

5454863430 252b2facd8 b  Samlitir í pólitík koma til með að fá meira en hinir

 

Núverandi stjórnarherrar virðast ekki gera sér ljóst að þeirra tíma lýkur brátt,það er á hreinu. Og það er líka á hreinu ef þetta verður lögfest þá er það komið til að vera.Já það er mikið talað en lítið sagt .Farið varlega út í myrkrið og varið ykkur á áróðri lævísra stjórnmálamanna. Kært kvödd


mbl.is Lýsa stuðningi við LÍÚ og SA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ekki ófrægara skip "

Þetta er nú ekki ófrægara skip en Stockholm sem sökkti Andrea Doria 25 júlí 1956

Svona leit skipið út um þær mundir

PreviewCAGHG679 © Handels- og Søfartsmuseets

Andrea Doria að sökkva

PreviewCA3DWPJ1  © Handels- og Søfartsmuseets

Nefbrotið Stockholm komin í dokk

PreviewCAJB5GEA  © Handels- og Søfartsmuseets
mbl.is Landfestar Athenu slitnuðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Svona háttsettir menn"

Ætla þeir að snúa sér svona út úr þessu ? Svona háttsettir menn gera engin misstök. Þeir, allavega hér á landi eru ekki mennskir hvað þau varðar. Annað en við þessir sauðsvörtu, Sem getum lent í öllum andsk...... sem við  þurfum að biðjast afsökunnar á. Kært kvödd
mbl.is Samsæri gegn Strauss-Kahn?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Föðurland vort hálft er hafið" III

Ég er ekki hættur að messa yfir nafnabrenglinu á Sjómannadeginum Og enn ætla ég að leita fanga í gömlum skrifum. 

01971

Jóhann Þ Jósepsson sem 1939 talaði fyrir hönd útgerðarmanna sagði m.a:

Þessi dagur er hátíðisdagur allra sjómanna lands vors. I dag minnumst vér þeirra með þakklátri virðingu. Þeirra, sem  á löngu liðnum tímum háðu þrautseiga baráttu víðsvegar fyrir ströndum landsins, annesjum þess og útskerjum, á sínum opnu róðrarskipum. - Kynslóðanna, sem grundvöllinn lögðu að sjósókn og farmennsku vorra tíma. Og þeirra, sem í dag hefja merki islenzkrar sjómennsku bæði heima við landsins strendur og í langferðum landa á milli. Minnumst þess, er þeir allir hafa afrekað þjóðinni til heilla" 

85812 Svona kom danska flutningaskipið Danica Red inn til Brest eftir að hafa fengið á sig brotsjó svo að farmurinn( akkeriskeðjur fyrir borpalla) kastaðist til í skipinu í des 1999

 

Dr. Richard Beck prófessor skrifar : í Sjómannadagsblaði 1950

En samtímis því sem sjómannadagurinn minnir á fórnir, minnir hann jafn kröftuglega á unnin afrek í þjóðar þágu, glæsilegar sigurvinningar á baráttuvelli hafsins. Þess vegna er hann í ríkum mæli fagnaðardagur og dagur, sem miklar framtíðarvonir eru tengdar við. Og íslenzkir sjómenn hafa sýnt það í liðinni tíð, að þeir munu ríkulega láta rætast í verki þær vonir, sem þjóðin tengir við hið mikilvæga starf þeirra í framtíðinni. Fastrúaður á, að svo muni reynast, og minnugur gamalla og góðra kynna við íslenzka sjómenn frá fyrri árum, sendi ég heiðursdegi þeirra innilegar kveðjur og blessunaróskir.

85805 

 

Árið 1951 les maður í Sjómannadagsblaðinu:

"Um miðjan marzmánuð s. 1.er togarinn Elliðaey frá Vestmannaeyjum var í síðasta ísfisktúr á Halamiðum, og verið var að taka inn botnvörpuna í hvassviðri og stórsjó, skeði það, að einn hásetinn,Guðjón Annes, kipptist út með forrópnum. Um stund hélt hann sér í trollið, en vegna sjógangs missti hann takið og fjarlægðist skipið. Sigurgeir Ólafsson bátsmaður henti sér þá til sunds og tókst að komast til Guðjóns með bjarghring og eftir stutta stund voru þeir dregnir áð skipinu og bjargað um borð. Talið er víst, að hefði karlmennsku og snarræði Sigurgeirs ekki notið við, hefði Guðjón drukknað. Sigurgeir Ólafsson er fæddur 21. júní 1925 að Víðivöllum í Vestmannaeyjum. Arið 1950 lauk Sigurgeir prófi frá Stýrimannaskóla íslands. Frá því Elliðaey kom til landsins hefir hann verið þar um borð, og í seinni tíð sem bátsmaður"

85815 

 

Tekið úr Sjómannadagsblaðinu 1970

Þá afhenti Pétur afreksbjörgunaverðlaun Sjómannadagsins 1969, en þau hlaut að þessu sinni Ornólfur Grétar Hálfdánarson frá Súðavík, skipstjóri á m.b. Svan, IS 214, sem sökk í ofviðri út af Vestfjörðum 29. janúar 1969, en áhöfnin bjargaðist í gúmmíbjörgunarbáti. Þegar Svanur sökk, reið brotsjór yfir skipið og skellti því á hliðina og rétti það sig aldrei við alftur, en sökk eftir 10 mínútur. Gúmmíbjörgunarbáturinn á stýrishúsinu rifnaði, en skipstjóranum tókst með frábærum dugnaði að komast  fram á hvalbak og losa vara-gúmmíbjörgunarbátinn.  Einnig náði hann neyðartalstöðinni úr stýrishúsinu við mjög erfiðar aðstæður. Það er einróma álit skipshafnar Svans og allra kunnugra, að Örnólfur Grétar Hálfdánarson hafi með dugnaði sínum og stjómsemi, fyrirhyggju og ábyrgðartilfinningu, tvímælalaust bjargað allri áhöfninni.

karfi 

 

Þessi tvö dæmi um fórnfýsi íslenskra sjómanna eru bara tekin af handahófi. Við eigum að fagna þeim sigrum þar sem hafið tapaði og við eigum að syrgja þá félaga sem hafið tók. Ég veit það ósköp vel að eitt af takmörkum Sjómannadagsins var að hlú að öldruðum Sjómönnum og aðstandendum þeirra og þar hafa þeir sem að því hafa komið unnið frábært starf. Og þar hafa menn unnið óeigingjarnt starf sem ber að þakka af alhug. En einhvern vegin finnst mér sá tilgangur sé að ná yfirhöndinni. Þ.e.a.s. að afla peninga til þeirrar starfsemi. En mér finnst að sú fjáröflun eigi að vera undir nafni Sjómannadagsins. En það skal  viðurkennt að "lofsöngur" stjórnmálamanna um sjómanninn á þessum degi fer í sumra manna( allavega) fínustu taugar.

 

0512pod03 

 

Stjórnmálamenn eiga ekki að fá að koma nálægt þessum degi. Hvað hafa ekki margir ráðherrar í áranna röð lofsungið sjómenn með allslags loforðum þennan sunnudag. Loforðum sem svo voru strax svikin á mánudegi. Og ég vorkenni þeim mönnum sem standa í forsvari fyrir sjómenn (hvaða tegund sjómennsku þeir stunda) að standa fyrir framan þessa hálvita sem þykjast vera að stjórna landinu og reyna vekja athygli þeirra á mikilvægi starfa sjómanna. Með vinsemd og mikilli virðingu fyrir starfandi sjómönnum verið ávallt kært kvödd 


Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2011
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537325

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband