Föðurland óskast !!!

Mér er fjandans sama þótt tönglast sé á að ekki megi leita að einhverjum sökudólgum fyrir ástandinu sem er á þessu eylandi í dag.  Og kjaftæðu eins og“ við tókum öll þátt í þessu“ tek ég lítið mark á. Við,ég og mínir líkir tókum engan þátt í veislunni.  

En aldraðir öryrkjar og aðrir sem minna mega sín verða að axla stærstu byrgðarnar.  Og mér finnst satt að sega nokkrir ónefndir menn ekki eiga það skilið að geta kallað þetta land sem föðurland. Og ég er reyndar steinhissa á að einhver af þessum mönnum sem þrátt fyrir allt virðast eiga næga peninga í hinum mörgu skattaskjólum sem sennilega aldrei finnast, skuli ekki vera búinn að kaupa eina af eyjunum í Carribbean og stofnað þar nýlendu fyrir úrelta fjármálamenn.  Þá gætu þessir herrar“flaggað“sér út og lifað áhyggulausu lífi í hinu nýja föðurlandi án þess að hægt væri að koma yfir þá sök ef hún reynist fyrir hendi. Sem margir segja að sé fyrir hendi. Því að enga framsalsamninga yrði um að ræða í þessu útflöggunarsamfélagi. En nóg af þessum gaurum .

 

 

 

 International Monetary Fund skamstafað IMF sem stjórnar nú um stundir segir að botninum sé ekki náð. Og enn og aftur detta mér í hug orð séra Sigvalda í Manni og Konu er hann sagði eitthvað á þessa leið :“ja nú held ég að maður verði að fara að biðja guð að hjálpa sér“  Hvernig í ósköpunum getur þessi hagfræði verið svona  íllskiljanleg fólki eins og t.d. mér með,að ég held ekki mjög langt undir meðalgreind. Hvernig getur staðið á því að prófessorar  í greininni við Háskóla á Íslandi eru algerlega á öndverðum meið við þennan f.g sjóð sem og maður sem margir hafa í mín eyru talið færastan í greininni hér á landi og að mig minnir vann hjá sjóðnum.

 

 

Hreint ótrúlegt en satt að vísu. Einar sem að mig minni að hefði verið kenndur við Mýnes afgreiddi hagfræðinga með þessum orðum í samtali við Stefán Jónsson fréttamann:“hagfræðingar eru vitlausustu menn á  Íslandi“

 

 

Ég hnaut um eina fyrirsögn í Fréttablaðinu í dag.“Verta hryllir við hærri áfengisskatti“ En þeim virðist ekki hrylla við því að nú þurfa ellilífeyrisþegar,ötyrkjar og fleiri minnimátta sem lítið eða ekkert gætu hreift sig án bíls og eiga einhverja druslu svo að það megi verða,þurfa nú að borga minnst 7000 kr á tankinn. Þessir menn sem að mínu mati fleyttu rjóman ef svo mætti segja af góðærinu.

 

 

Ef það er hægt að tala um góðæri sem allt byggðist upp á lánum. En einu er ég sammála vini mínum og fv skipsfélaga (einu þeim skemmtilegasta sem ég hef siglt með) Geira á Goldfinger að þetta kallar á meira smygl. Þetta vitum við Geiri kannske manna best.  Einnig kallar þetta á eins og hann bendir líka réttilega á meira heimabrugg. Og maður spyr sig hvar endar þetta allt saman? Það er staðeind að afbrot aukast við svona ástand og nú skal skorið niður í löggæslunni.Læt þetta duga af"nuddi"í dag. Verið ávallt kært kvödd 


mbl.is Bensínlítrinn í 181 krónu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Gull Ásgerðar"

Hér með er"Gulli Ásgerðar"hleypt af stokkunum. En ólíkt svipuðum málmþáttum eru hér  í"Gullinu" fastir álitsgjafar,sem eru:

 arg hund 1 BenToro TornMattie Mattie                     1158714 lowFritz og 89070648 NGT56eYM 09 De Niro

 

Munu heitustu málin á líðandi stundu hverju sinni tekin og krufin. Fysta spurning til gullfólksins er:" hvert stefnir í stjórnmálum á Íslandi". Torn sem er spesíallisti í krókaleiðum svarar og bregður upp skýringamynd :doubleturn Ýmislegt bendir til mikillar vinstrisveiflu sem er góð eins langt og það nær. En það verður að varast miklar Steingrímsbeyjur eins og sést á skýringarmyndinni. Næsta spurning er: Eigum við að sækja um aðild að EBE. Nú svarar Fritz sem er aðalráðgjafi"Gullsins" í utanríkismálum og aðal earwhisper sitjandi  ráðherra þeirra mála. Fritz telur fráleitt að sækja um aðild að EBE og sýndi einnig myndir máli sínu til sönnunnar untitled Stóru ríkin étu þau smærriimage 6 Einnig væri erfitt fyrir Samfylkinguna að ryðja ýmislegu úr vegi fyrst  41053156 elephant afp416 T.d mótstöðu S.J S Svo er það verndunar sjónarmið Hafró. Aðalhafrósérfræðingur Gullsins Ben segir aðalstefnan í verndurmálum sé að friða eins mikið af þorski svo að nóg verði handa EBE ef svo ílla skildi fara að við fætum þar inn. Nú þykjast EBE menn ætla að taka upp íslensk kvótakerfi.Bara til að plata fávísa krata"on Iceland" Jonathon ocean codÞað er von að menn séu hræddir við þessa voðaskepnu og forðist hana að fremsta megni.. Kærkomið fyrir atvinnuútrásarmenn í EBE að fá eitthvað til að braska með þegar búið verður að loka"skattaparadísunum"í Evrópu.0,1020,1475941,00 En vegna tímaleysi verður þátturinn ekki lengri að þessu sinni. En álitsgjafarnir gera eins og í öðrum málmþáttum að reyna eftir megni að:"vita lítið um eitthvað og tala mikið um ekkert". Verið öll kært kvödd


Hvers á þjóðin skilið ???

"Hvers á þjóðin skilið af okkur"spurði nýkosinn alþingismaður. Ég spyr á móti"hvers eigum við (þjóðin) að gjalda að við skulum eiga skilið svona"málhalta"þingmenn? En kannske er þetta rétt málfræði hjá þingmanninum. Hann er kunnur af blaðamennsku og ævisagnaritun. Svo hann ætti að vita þetta betur en ég, sem aldrei fékk yfir 4 í Málfræðinni.

 

 

 

En eitthvað er þarna sem mér finnst ekki passa. En menntamaðurinn hlýtur að vita betur. En þingmaður ætlar sér heldur betur að halda að spöðunum. Við upplesturinn datt mér í hug gömul saga , að vísu af frambjóðanda í kjördæmi út á landi. Á dögum 1 og 2-mennis kjördæmana. Og það þegar fólk hafði áhuga á þessari ands...... tík sem svo oft hleypur undan sér og heitir pólitík.

 

 

 

Á framboðsfundi spurði  frambjóðandinn sem hafði með sér ritara sem við getum kallað Jón, hvað fundarmenn teldu brýnast fyrir byggðarlagið. Einhverjar svona smáframkvæmdir voru nefndar svo sem vegaspotta heim að bæjum (þau voru mörg heim-að -bæjum-vegaspotta-kosningaloforðin á þeim tímum.) dúkkuðu upp og Jón skráði. Svo kom að lokum að vegna sjúkraflugs væri gott að fá flugvöll. "Jón skrifaðu:1 stykki flugvöllur" kallaði þá frambjóðandinn til ritara síns.

 

 

 

Flokksforingi þessa nýkjörna þingmanns ætlar að koma 38 málum í gegn um sumarþingið. Eftir lestur á þingmálaskrá er sérstaklega 1 sem stendur uppúr að mínu viti sem ekki er nú beysið á öllum þessum málum. En það er væntanlegt frumvarp um frítekjumarkið í sambandi við T.R. Svo verður gaman að fylgast með hvernig Alþingi höndlar Strandveiðarnar.Er ekki til eitthvað sem heitir "málþóf" Læt þetta duga af væli í bili. Verið ávallt kært kvödd


mbl.is Áforma að flytja 38 mál á vorþinginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fýluna burt

Ég óska Vopnfirðingum til hamingu með mjöltankana. Ég veit að Vopnfirðingar haf meiri skilning á"mjöltönkum"en 101 liðið sem finnur bara fýlu af öllu sem snertir atvinnu.

 

Kaffilykt hvítlaukslykt táfýla fyrir utan eigin skítalykt þykir fín á bænum þeim. En sem betur fer er hjarta landsins aftur farið að slá þar sem það hefur alltaf slegið þ.e.a.s á landsbyggðinni. Ávallt kært kvödd


mbl.is Mjöltankar fluttir frá Reykjavík til Vopnafjarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlegt

Ótrúlegt en kannske satt, Það er kannske ekki svo fjarri lagi að byrja bloggið aftur á málefni sem ég er svolítið kunnugur í. Þ.e.a.s.áfengisdrykkju.o1Verða sér til skammar  Enganveginn er ég þó neinn sérfræðingur í neinu hvað það mál varðar. Nema kannske að drekka frá mér allan sans og verða mér og mínum til skammar við hin ýmsu tækifæri á hinum ýmsu tímum. Svo var það fyrir hartnær 28 árum að ég gafst upp og hætti ollu samsulli við bakkus. Hef haldið mig hérna megin glassins allavega enn. 0%20drunken sailor 1977 En glasið er enn þessa seilingarfjarlægð og það var fyrir tæpum 28 árum síða. Ég nennti hreinlega ekki að standa í öllum þessum lygavefum sem maður spann. Maður verður hreinlega að vera með minnið í góðu lagi til að vera"virkur"alki. Útrásarvíkingarnir sýndu ekki hugmyndaflug sem kæmist í hálfkvisti við hugmyndaflug alkans sem er í stuði. image 19 Lygavefir alkans og útrásarvíkingana.Ekki átti þetta að vera blogg um mína drykkju eða ekki,heldur hugleiðingar um þessa rannsókn um drykkju Norðurlandabúa. Að mínu viti segja svona kannanir lítið. Ég hef lúmskan grun um að Norðmönnum nægi ekki að"stela"af okkur Eurivisionverðlaununum heldur drekki þeir líka mannan mest af Norðurlandabúum. Beer%20tapperEn þar komi"heimilisiðnaðurinn"mikið við sögu. Einnig var mikil eftirspurn um sterka drykki um borð í erlendum farskipum þar. Svíar drekka einnig mikið af"hemmbränt" Ég held að danir með sinn "grönn" noti heimilisiðnaðinn minnst umtalaðra þjóða.alcohol Finna þekki ég hreint ekki í þessum efnum En þetta eru bara mínar vangaveltur út af þessaru könnun. Ég er þeirrar trúar að kannanir á áfengisdrykkju séu ekki martækar eftir sölu á vörunni á hinum opinbera markaði. Megum við sem flest fara"edrú"að sofa í kvöld.Verið ævinlega kært kvödd
mbl.is Finnar drekka mest en Íslendingar minnst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2009
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband