31.5.2007 | 13:29
Vinnslustöðin
Steinn Steinar kvað eitt sinn m.a:
Þitt hús er voldugt og viðir sterkir
og veggir traustir,með saum og hnoð
En hvassar tennur,sem naga og naga
þær naga í gegn hverja máttarstoð
Bráðum tapast þitt gull og gengi
og gæfan hverfur svo björt og hlý
Þér finnst hann sár,slíkur sleggjudómur,
en slotið hrynur með kurt og pí
Þetta kom mér í hug eftir fréttirnar í hádeginu.Nú blasir sama ógnin við Vestmannaeyingum og blasti við Akureyringum,Flateyringum,Bolvíkingum.Brimskaflinn er að skella á Eyjarnar.Þessum bröskurum með fjöregg þjóðarinnar er ekkert heilagt.Ég held að sjávarútvegsráðherra ætti að forða sér úr landi fyrir Sjómannadag.Fara til Kína og halda þar ræðu um ágæti íslensks kótakerfis.Því að enginn í Evrópu allavega N.verðri trúa á bullið sem lekur út úr honum um málið.Aumingans maðurinn komin út af einum framsæknasta útgerðarmanni um miðbik síðustu aldar.Hræddur er ég um að gamli maðurinn hefði eitthvað um þessi mál að segja.Og hreinlega flenga strápattan ef væri hann þessa heims enn.Þetta jaðrar við Tyrkjaránið.Þau verða kannske talin upp í Sögunni Tyrkjaránið,eldar í Heimaey og Vinnslustöðvarránið í þessari röð stæðstu áföll sem dunið hafa á Eyjunum.Einn gamall vinur minn sagði við mig áðan.Mér líður eins og um nóttina sem Helgi fórst á Faxaskeri og Hraðfrystistöðin var að brenna.Enginn vissi hvernig þetta gæti endað.Það var sagt einusinni.... fátæka manninum vantar mikið en þeim gíruga allt....
30.5.2007 | 15:34
Sjómannadagurinn feigur?
Ég var að hlusta á fréttirnar áðan.Maður getu ekki betur heyrt en að viss öfl í Þjóðfélaginu vilji Sjómannadaginn feigan.Núverandi Sjávarútvegsráðherra skyldi þó aldrei verða minnst í sögunni sem ráðherranunm sem slaktaði sjómannadeginum.Sjómannadagurinn verður 70tugur á næsta ári.Mér sýnist hann vera að fá sömu meðferð og aðrir öldungar þessa lands.Engir eða litlir peningar til,svo að hann tóri.Alltaf minna í hann lagt.Fyrir 69 árum stóð þetta í blöðnum um þennan nýtilorna hátíðisdag:.....Virðulegasta og mesta skrúðganga sem hér hefur sést.......Á þessum degi fyrir 60 árum sagði þv ráðherra sem með sjávarútveg fór m.a. í ræðu:.........En hversu oft þurfa sjómennirnir okkar að berjast við þrútið loft og þungan sjó,berjast í niðarmyrkri skammdegisnæturinnar við geysandi storma.Berjast við hvítfyssandi úthafsölduna sem æðir eftir knerrinum og hvolfir sér brött og há yfir hann rétt eins hún sé reyna að brotna í himininn inn.Og hversu skammt er þá ekki milli sjómannsins og brimlöðrandi holskeflunar.Milli heims og heljar.Síðar segir:.....Fyrir þrennt hafa sjómenn vorir öðlast viðurkenningu og vináttu alþjóðar:..vegna nauðsynjar þjóðarinnar á starfinu,vegna áhættu starfsins og fyrir hinn frábæra frábæran dugnað....Þetta eru brot úr ræðu Ólafs Thors þv Atvinnumálaráðherra.Nú virðis kollega hans vera að ganga frá þessum degi dauðum með hjálp vinalausra manna.Skildi heitið Brim vera tilviljun.Ólafur talaði um Brimlöðrandi holskeflur.Skyldi sú næsta skella á Vestmannaeyjum.Getum við kannske farið að talað um brimlöðrandi ráðherra.Ég spái því að Einar verði að fara einförum á næsta Sjómannadag.Einari einfara og Guðmundi vinalausa má ekki takast að eyðilegga þennan dagi.Við megum aldrei láta það henda meðan Íslands byggist að Sjómannadagurinn verði ekki haldinn hátíðlegur.Við megum aldrei gleyma því að þessi dagur er ekki síður til minningar um þá bræður og systur sem látið hafa lífið í átökum við Ægir.Þegar brimið hefur náð undirtökunum.Á þessum fyrsta sjómannadegi var maður að nafn Erlingur Klemensson þá ungur maður heiðraður fyrir að taka þátt í öllum íþróttargreinum dagsins.Þ.7 okt.10 árum seinna bjargaðu Erlingur sem þá var 1sti stm á B.V Ísólfi skipsfélaga sínum frá drukknun,er hann kastaði sér af brúararvængum eftir manninum.Það hefur margt breyst á þessum tæpu 70 árum.Bæði aðbúnaður,öryggi og annað en við Íslendingar megum aldrei gleyma þeim atvinnuvegi sem kom stoðum undir það líf sem við lifum í dag.Þeim stoðum sem er verið að reyna að kippa undan lífi fólks víðsvegar um landið.Við meigum aldrei gleyma að halda minningu óþekkta farmannsins/fiskimannsins á lofti.Á sjómannadegi eigum við að minnast þeirra sem horfnir eru og heiðra þá menn sem vinna best að að öryggismálum sjómanna og þeim sem best ganga í að skjóta nýjum stoðum undir þessa stétt bæði far og fiskimanna.Ég verð nú að segja það að mér finnst bæjaryfirvöldum á Akureyri til skammar að ætla að láta þennan hátíðisdag sjómanna afskiftalaust fram hjá sér fara.Þó að sjómennska þar sé kannske þar á undanhaldi hafa menn þaðan skipað sér sess í sögunni.ÚA var eitt sinn eitt af farsælustu togaraútgerðum landsins.Og akureyriskir sjómenn eru á minningarspjöldum þessarar þjóðar..Þó að brimið hafi leikið þá illa í núinu eiga þeir ekki að gefast upp.Bæjaryfirvöld þar ættu að sjá sóma sinn í að sjómannadagurinn þar verði haldin hátíðlegur.Ekki vera samherjar brimsins
29.5.2007 | 21:49
ISM og fl
c Það var verið að svifta útgerðinni sem ég sigldi hjá í 13 ár....www.folmer.dk... í Danmörk leyfi til reksturs skipa::::www.sofartsstyrelsen.dk/sw17126.asp.
Þetta kemur þeim sem til þekkja ekki svo á óvart.Félagið á 12 skip og disponerer 1.Þessi skip eru af stærðinni 1000 - 2000 ts DW.Áhöfnin á 12 af þeim telur 4-5 menn.1 skipanna Danalith telur 8-9 menn.Í áhöfn fyrrnefndu skipanna samanstóð áhöfnin:Skipstj.,stýrim.kokkur og 2-3 hásetar eða ubefaren skipsassistent eins og það heitir.Þetta þýðir í lauslegri þýðingu hálfdrættingur eða léttmatrós.Ef menn unnu sig upp í befaren skipsassistens fengu þeir ekki plássið lengur.Eins og ég sagði kemur þessi ákvörðun Söfartstyrelsens manni ekki á óvart.Það var enginn vélstjóri á þessum skipum,en útgerðin hefur 3 menn sem þeir senda hvert sem þurfa þykir.Öll þessi 12 skip voru með sömu tegund af aðalvélum.Skipin eru byggð á árunum 1981-1993.9 af þeim voru eiginlega af sömu teikningu aðeins lengdinni breytt.Skipstjórinn og stýrimaðurinn sjá um vélarnar. Aðaleigandinn var grjótharður business maður.Hann var sjálfskipaður skipsinspektor.Ein er sú stofnun sem hefur með öryggi sæfarenda að gera IMO(International Maritime Organization).Fyrir nokkrum árum var innleiddur svokallaður ISM kodi sem tryggja átti enn meir öryggi sjómanna og sett var á stofn svokallað Port State Control.Allt var gert til að öryggi sjómannanna yrði sem mest.En að mínu áliti og nú tek ég fram að ég skrifa eftirfarandi eftir minni reynslu og allt sem ég skrifa er eftir hvernig ég upplifði þessa hluti,eru vinnubrögðin hjá þessum samtökum(IMO)harla einkennileg svo ekki sé tekið dýpra í árinni.Mér finnst það vera eins og þessir menn haldi að það sé að slökkva á manni kl 1800 á kvöldin og kveikja á manni kl 2400.Kveikja kl 1200 og slökkva 1800.Það var aldrei hugsað um t.d. aðbúnað til hvíldar..Þverkojur og skip í ballast eða með allan farm í botni.Ég man t.d.eftir einni ferð þa´lestuðum við Granít í Mandal(Noregi)til Bremen(Þýskaland)Alla leiðina SV 7-8 (Beaufort)og sjór eftir því.Dallurinn hentist þetta til og frá eins og gefur að skilja með allan þungan í botninum.Þegar við nálguðumst Weserfljótið kom telex frá útgerðinni um hvort við gætum ekki siglt sjálfir upp fljótið án þess að taka lóðs.Skipperinn sem var nýbyrjaður og var að vinna sig í álit svaraði því játandi.Siglingin lenti svo á mér.Þarna sat ég hálfdottandi loksins komin í kyrrðina.En þetta slampaðist allt af í þessari ferð fengum við mann frá Bureau Veritas í Mandal,síðan kom Port State Control í Bremen.Við fórum svo aftur lóðslausir til Hamborgar þar sem við lestuðum korn til Grenå.Í Grenå komu svo menn frá Söfartsstyrelsen.Allir þessir menn virtust reyna að hanka mann á einhverju.Það var ekkert tilllit tekið hvort að við værum uppteknir við að lesta eða hvort við þyrftum að hvílast.Ég var í 14 ár siglandi um heimshöfin á fyrrgreindum skipum.Við vorum með milli 6-800 sjókort sem við þurftum að leiðrétta.Notice of Mariners(leiðréttingar fyrir sjókort og bækur)koma út 4sinnum í mánuði.Þeim hjá IMO eða Poirt State Control kemur ekkert við hvort það séu 5 stýrimenn á skipunum eða bara 1.Þetta skal allt vera op to date þegar þeir koma.Ef við hverfum aftur til Bremen þá komum við þangað upp úr 6 leitinu um morguninn.Strax byrjað að losa.Þegar losað var hafði skipstjórinn alltaf nóg að gera við að sinna vélinni og fást við agenta og kom því sjaldan að losun eða lestun.Og þarna kom svo Port State Control.Nú við vorum búnir að losa um 2200 um kvöldið.Og þegar við vorum búnir að sleppa og losna við hafnarlóðsin var komin vakt á mig.Við vorum svo búnir að binda í Hamborg um 1600 um kvöldið.Búnir að lesta um 2100 svo farið 1 tíma seinna svo út fljótið og inn í Kílarskurð og sem leið liggur í gegn um Stórabelti til Grenå.Mér finnst það með ólíkindum hvað má leggja á menn í þessu sambandi.og alltaf er talað um öryggi.Og þetta snéri þannig að mér að mér fannst þetta öryggi vera þannig að ef það kostaði útgerð eða yfirvöld peninga þá væri allt í lagi að gafa undanþágu eða sleppa því.En ef það kostaði meiri vinnu fyrir þá sem á skipunum eru þá er um að gera að fylga því fast eftir.Eins og ég sagði þá eru engir vélstjórar,þannig að skipstj.og stm þurftu að fara að minnsta kosti 2svar niður í vél á vaktinni.Nú þá var brúin mannlaus á meðan.Þetta vissu þeir sem veittu undanþágu til útgerðinnar í sambandi við mönnum,því menn frá Söfartsstyrelsen leystu af sem skipstj.og stm.á skipunum.Nú loksins hefur verið tekið í taumana.Nú hefur Söfartsstyrelset svift útgerðina Document of Compliance.Mér fannst margt athugavert við þennan ISM-kóta.T.d. áttum við að hafa björgunnaræfingar minnst 1 sinni í mánuði.Við höfðum svokallaðan MOB.Eða man over board-bát.Þessum bát slökuðum við í sjóinn ef við vorum í höfn 1sinni í mánuði.þetta voru björgunaræfingarnar.Að vísu voru nýmunstruðum sýndir gúmmíbátarnir og farið yfir myndir af notkunn þeirra.Brunaæfingar fóru þannig fram að við tengdum brunaslöngur við hanana og sjór settur á..Þannig að það mátti segja að allar lestarhreinsanir væru brunaæfingar.Svo var það skýrslugerðirnar í sambandi við þetta alltsaman.Það var faktíst orðið þannig að ef maður var ekki að skrifa einhver rapport eða leiðrétta kort og bækur,en sat í stólnum og var á útkikki eins og lög gera ráð fyrir var maður bara latur stýrimaður.Ég er 100%viss um að þessi vinna sem skapaðist við allar þessar IMO reglur eða ISM kótan gerði það að verkum að menn skrifuðu miklu meir og krossuðu við hluti sem svo lágu milli hluta.Á hreinni íslensku fölsuðu mörg af þessum rapportum.Menn höfðu hreinlega ekki tíma.Nú vil ég aftur minna á að ég er að tala um reynslu mína á dönskum skipum.Ég held að þessi mál séu í góðu lagi á skipum sem sigla með íslenskar áhafnir og eru í eigu eða í leigu hjá íslendingum.Eins og fyrr sagði er aðaleigandi þessa skipafélags grjótharður business man.Þannig að ekkert var gert til að gera vinnuna léttari.Að vísu fengum við stundum langa túra á opnu hafi og þá gat maður tekið til hendinni.Mér skilst að aðalástæðan fyrir leyfissviftingunni væri skortur á framfylgni á ISM kótanum.Skipin sjálf voru allavega þegar ég vissi seinast í góðu ásigkomulagi.En svona fer ef engin taktur erá milli þeirra sem setja reglurnar og þeirra sem eiga að framfylga þeim
28.5.2007 | 21:38
Sjómannadagur
Nú nálgast Sjómannadagurinn.Ég vorkenni satt að segja Sjávarútvegsráðherra.Það er ekki um auðugan garð fyrir hann að gresja hvað varðar umræðuefni á þessum hátíðisdegi sjómanna.Fiskimenn hafa þurft að taka á sig miklar tekjuskerðingar vegna kótabrasks og þeim fer ört fækkandi og farmenn að deyja út.Allt vegna áhugaleysis eða rangra ákvarðanna ráðamanna.Það verður gaman að heyra með hvaða fjöðrum ráðherra reynir að skreyta sjómannastéttina núna.Það er raunarlegt að hugsa sér,árið 2007 tæpum 100 árum eftir stofnun félags sem var kallað....Óskabarn þjóðarinnar...og var stofnað af miklum eldmóð þeirra er þá byggðu og eða áttu rætur sínar í þessu eylandi að það skuli ekki vera eitt einasta millilandaskip undir íslensku flaggi.Hugsið ykkur eymdina.Við þurfum að fá lánuð flögg hjá öðrum þjóðum til að reka kaupskipaflotan.Af því stjórnvöld hafa kippt fótunum undan útgerðunum.Hvar er nú stoltið sem á að vera svo ríkt í okkur Íslendingum.Hvar er nú stoltið sem bannaði okkur að þiggja þjóðvegi og annað sem Verndararnir úr vestri vildu fá að byggja í upphafi setu sinnar hér.Við værum búnin að keyra 4faldan þjóðveg til Akureyrar í ca 50 ár.Og sennilega mörgum mannsllífum ríkari.Mér eru minnistæð orð Arons sem kenndur var við Kauphöllina þegar hann sagði eitthvað á þá leið að þeir,verndararnir rúlluðu ekki vegunum,eða flugvöllunum sem þeir vildu bygga upp og tækju þá með sér þegar og ef þeir færu.En svona er nú ástandið á eylandinu Íslandi í dag.Ekkert millilandaskip og ekkert strandsiglingaskip,nema 2 ferjur undir flaggi þjóðarinnar.Fiskiskipaflotinn síminnkandi.Ungum mönnum sem vildu hasla sér völl á þessum sviðum allar bjargir bannaðar.Hvað verður langt í að hafnsögumenn t.d.í Reykjavík verða einungis enskumælandi.Ungir menn sem vildu leggja fyrir sig sjómennsku hvað er þeim boðið uppá.Fyrir allmörgum árum voru að minnstakosti 5 starfandi íslenskar útgerðir með nokkra tugi skipa öll með íslenskum áhöfnum og undir því flaggi sem mörgum fnnst hvað fallegast í heimi því Íslenska.Einn útvegsmaðurinn sem hefur verið með skip sín eins og jójó milli þjóðfána talaði um daginn um að það ætti að mennta skipstjórnarmenn til starfa Wordvide í skóla við Eyjafjörð....ég vona að mig misminni ekki....Hvað hefur Eyjafjörður framm yfir Reykjavík hvað það varðar.Gilda ekki STCW -Conventionen og EBE reglurnar þar einnig.Hann ætti að vita það manna best hvernig þessum málum er háttað eftir allar útflaggarirnar.Nei ég myndi ráðlegga Sjávarútvegsráðherranum hreinlega að gufa upp á Sjómannadaginn.Fara bara uppí sveit og snakka við bændurnar.Og eitt að lokum mér finnst það vera ráðamönnum þessarar þjóðar til ævarandi skammar að happaskipið B.V. Ingólfur Arnarsson skildi vera seldur í teskeiðar til Spánar.Gera menn sér grein fyrir að þegar hann kom nýr fyrir rétt rúmum 60 árum var hann alfullkomnasta fiskiskip í heimi.Hann var t.d. fyrsta fiskiskip í heimi með radar.Þ18/2 á þessu áru voru 60 ár liðinn frá komu hans í fyrsta skifti til landsins,Þá stóð m.a.í blöðum .....Það var bjart yfir Reykjavík í gær þegar Ingólfur Arnarsson fyrsti nýsköpunartogarinn sigldi fánum skreyttur inn á höfnina Forsjónin hafði séð fyrir því að Reykjavík gat tjaldað sínu fegursta þegar hún fagnaði komu hins glæsilega skips......Á 60 ára afmælis þessa atburðar var ekki eitt einasta orð í fjölmiðlum.Hvað skyldu margir háskólanemendur í dag vita af tilveru þessa mikla happaskips sem var lengst af var undir stjórn þess mikla aflamanns Sigurjóns Stefánssonar.Þessa mikla prúðmennis ættuðum úr Dýrafirði.Menn ættu að minnast þessara nafna á sjómannadeginum um leið og skipshöfnin á Sæbjörgu yrði heiðruð fyrir ómetanleg störf fyrir öryggiÍ slenskra sjómanna.Kært kvödd
27.5.2007 | 21:16
Velferðin
Nú er tími Jóhönnu kominn.Í Velferðarráðuneytinu,flott nafn.En ef ég misheyrði ekki þá var hún nú strax byrjuð að draga í land og tala um fallegar tölur á blaði sem kannske ekki væri hægt að fjármagna.Það er oft gott að vera gagnrýnin þegar maður er án ábyrgðar.En það verður gaman að fylgast vel með hvað gerist í Verferðarráðuneytinu á næstu vikum og mánuðum.Nú eru blikur á lofti hvað erlenda verkamenn varðar.Hvernig taka Jóhanna og Gunnlaugur á málefnum þeirra.Í sambandi við Flateyri sagði einn sem kýs D þetta við mig um daginn:.....Hvern fja.... varðar okkur um þetta.Maðurinn seldi bara businessinn.Ég held að þessir útlendingar geti bara hundskast heim til sín......Svo mörg voru þó orð.FF virtist vera eini flokkurinn sem þorði að tala um málefni innflytenda af einhverri alvöru en fékk á sig rassistastimpil einmitt frá kjósendum D-listans.FF var líka eini flokkurinn sem sá vandamál í sambandi við kódan.Allir vita af vandamálinu en vilja ekki viðurkenna það.Að er svo að síast út hjá Fiskistofustjóra og Sjávarútvegsráðherra að það séu kannske svona smávandamál með nokkur þús.tonn.Skildi þeim takast að þegja Kompásmálið í hel.Það skildi þá aldrei vera.Ég hef heyrt að það séu nokkrir alkahólistar af erlendu bergi brotnir farnir að koma á Vog.Og að það þurfi túlka á fyrirlestrana þar.Ég persónulega hef hvorki á móti alkahólistum eða útlendingum en skyldi ekki vera betra að kenna innfluttum alkahóilistum sæmilega íslensku strax og þeir koma hingað svo að túlkakosnaðurinn verði minni.Það mætti kannske setja víðar kóda.Ég er þess fullviss að stjórnarandstaðan á eftir að veita gott aðhald á komandi þingi.Mér þótti miður að Kolbrún Stefánsdóttir skildi ekki ná inn á Þing.Hún hefði verið verðugur fulltrúi þeirra sem minna mega sín og þekkir vel til verka í þeim geira.Ég held að hafi verið heppni fyrir FF hafi að fá hana í sínar raðir um leið og flokkurinn losnaði við Ögurveldið.Kolbrún er einlægnin og traustið uppmálað.En það má segja að það sé huggun harmi gegn að vinur minn Grétar Mar komst inn.Hann og Kristinn eiga eftir að láta í sér heyra á næstu árum og taka þráðinn upp eftir þá Magnús og Sigurjón,ásamt Guðjóni og Jóni.Kært kvödd
16.5.2007 | 14:37
Sæbjörg
Ég átti því láni að fagna að sitja námskeið hjá Slysavarnaskóla Íslands á síðasta ári.Umborð í Sæbjörgu.Ég verð að segja það að ég hef aldrei haft eins mikla ánægju af skólabekkjarsetu.Ég gæti trúað að aldursmunurinn á nemendum hafi verið um 50 ár.Þ.e.a.s á þeim yngsta og eldsta.Ég verð að játa að ég kom inní þetta námskeið fullur af ja ég veit ekki hvernig ég á að koma orðum að því fordómum er kannske orðið sem kemst næst hugsuninni.Ég hafði haft stór orð um ......þetta safety bullshit.....eins og ég kallaði það.Ég sigldi í mörg ár erlendis og mér fannst margt af því sem snéri að flokkunarfélögum.Ports State,og þessháttar vera hreint bull.Ef það kostaði yfirvöld eða útgerð einhverja peninga þá mætti gleyma því en ef hægt væri að klína meiri vinnu á þessa hálfvita sem enn fengust til að sigla þá væri því framfylgt og með miklum látum.Mér fannst,að það væri alltaf verið að búa til fleiri yfirvöld sem væru að reyna að hanka mann á einhverju.Það munaði engu að ég hrykki úr límingunum þegar einn kollega minna hafði mann frá Norsk Veritas um borð hjá sér og sá síðarnefndi sagði......dårlig dag ingen bemærking.........Þetta fannst mér undarlega sagt af starfsmanni flokkunarfélags.En hvað sem þessari fv skoðun minni líður þá skal ég koma mér að aðalefninu.Það er Sæbjörg og hennar áhöfn.Það er engum blöðum það að fletta að Hilmar Snorrason og hans fólk hefur unnið stórvirki í öryggismálum íslenskra sjómanna.Það er valinn maður þar í hverju rúmmi.Ég dáðist að kennurunum hvernig þeir höndluðu nemenduna.Eins og ég sagði þá voru nemendur af öllum aldri og af báðum kynjum.Margir töldu sig nú vita allt um þessi mál,,,,þar á meðal ég,,,.Ég hreyfst af hvernig kennurunum tókst að sigla milli skers og báru hvað þetta varðaði.Ýmiss umhverfismál báru á góma sérstaklega hjá þeim yngri.sama þar málið afgreitt án nokkurs æsings.Ég minnist ekki að hafa setið eins sáttur á skólabekk og haft eins mikla ánægju af kennslu og þarna.Undan farin ár hafa komið upp mörg dæmi þar sem sjómenn hafa bjargast og talið umræddan skóla aðalástæðuna ef maður getur sagt svo,fyrir björgunni.Ég leyfi mér að fullyrða að þessi mál eru í hvað besta lagi hér á landi hjá Hilmari Snorrasyni hans áhöfn..Ég legg það til málana á Forseti Íslands geri sér ferð um borð í Sæbjörgu á Sjómannadaginn og heiðri þessa menn.Þeir eiga það inni hjá þjóðinni.Kært kvödd
11.5.2007 | 21:15
St Petersbourg
Árið var 1990.Ég var yfirstm á 10.000 t skipi sem sigldi undir Maltaflaggi.Skipverjar voru af hinum ýmsu þjóernum.íslenskir,pólskir.rússneskir og maltabúar.Við tókum við skipinu í La Coruna á Spáni.En norskur eigandi hafði keypt það af spönskum.Eftir 1/2 mánaðar dvöl í dokk fórum við til La Pallice í Frakklandi til að lesta hveiti til St Petersbourg.Við fengum að vita að eigandi farmsins væri Rauði Krossin.Og væri farmurinn gjöf til Rússa.Lestunin í Frakklandi gekk vel.Vorum 3 daga að lesta fullfermi.Við komum til St Petersbourg þ.18 des.1990.Þar sem við vorum með gjafahveiti til fólksins í landinu bjuggumst við að fá skjóta afgreiðslu.En viti menn,við vorum settir til ankers.Við það lágum við til 1 jan.Meira lá nú ekki á,þrátt fyrir hungursneiðina sem svo sannarlega var þarna.Þegar að bryggju var komið var okkur tjáð að losuninn myndi taka 1 viku.Unnið yrði allan sólarhringinn á 2 vöktum með vaktaskifti kl 0100 og 1300.Við vorum 35 daga að losa.Orsökin var margvísleg,snjókoma,rigning,drykkjuskapur verkamannana og óstundvísi.Þessa daga upplifði maður ýmislegt.Við fengum 100 rúblur fyrir dollaran á þessum tíma.Til dæmi um verðgildið þá voru 6 konur trúlega einhverskonar meinatæknar sem tóku sýni úr farminum öðru hvoru þegar var verið að losa.Laun þessara kvenna voru 300 rúblur á mánuði.sem sagt 3 dollarar.Þær voru alltaf 3 saman og unnu með losunargengunum.Einu sinni gaf ég 3 af þeim 3 dollara hverri ég veit ekki hvað auminga konurnar ætluðu af gleði.Ég var að gefa þeim mánaðarlaun hverri.Ég man að ég fór á rakarastofu að láta klippa mig og tók búnt af rúblum úr vasanum til að borga,sama sagan þar, auminga stúlkan sem klippti mig vissi ekki hvaðan á sig veðrið stóð yfir þessu örlæti.Það var nákvæmlega sama hvað stevedorformenninir voru beðnir um að útvega,allt var fallt fyrir dollara.Ég keypti t.d.3 myndavélar af góðu merki,fyrir 30 dollara.Kvennloðhúfa af ekta bjarnarskinni 2 dollara.Svona voru prísarnir.Þarna keyptum við allir sjónvörp og vídíó í klefana.Sjónvarpsloftnet fyrir skip af,þá fullkomnustu gerð.Allt eftir þessu.Öllum þessum varningi var sennilega stolið úr fragt annara skipa.Alltaf voru hafnarverkamennirnir að koma með eitthvað til sölu fyrir dollara.Ég skrifaði í gær um útimarkaðinn sem seldi kjöt til neyslu.Já maður upplifir heiminn öðruvísi en ferðamennirnir þegar maður siglir í langfart.Kært kvödd
11.5.2007 | 00:45
Austanblokks mafía.
Ég hjó eftir því hjá Eiríki Haukssyni að hann talaði um austanblokks mafíu.Það vita allir sem vilja vita að í þessum 15 fv ríkjum Sovjet + leppríkjunum eru starfandi sterkar mafíur.Hópar af mönnum sem starfað hafa í svartamarkaðsbraski í fjölda ára,kannske alla æfi.Ég var í St Petersbourg um áramótin 1991 þegar Rússland fékk svokallað sjálfstæði.Ég hafði oft siglt til Murmansk og Leningrad eins og St Petersbourg hét þá,hér á árum áður.Þá gat maður selt allan fja.... fyrir rúblur.Nú var þetta þveröfugt.Nú vildu þeir selja allan fja.... fyrir dollara.Og munurinn á fólkinu.Svartamarkaðurinn blómstraði en á annan hátt.Perestrojkan hafði staðið í nokkur ár.Áður hafði þetta fólk á sér höfðinglegt yfirbragð,nú virtist það bugað og var niðurlútt.Eins og ég hef sagt sjáum við sjómenn heimin með öðrum augum en ferðafólkið.Fátækrahverfin í hafnarborgunum eru yfirleitt upp af höfnunum sjálfum.Í gegn um þau þarf maður að fara til að komast í miðbæinn.Nú sá maður sjón sem ég mun seint gleyma.Á markaðstorgum sem maður sá nú í upphverfum hafnarinnar var allslags kjötmeti af ólíklegustu dýrum.Það hafði ekki verið alltaf verið haft fyrir því að flá þau svo að tegundin leyndi sér ekki.Þarna voru á boðstólum rottur,kettir,kaninur auk dýrari tegunda.Rotturnar voru ódýrastar.Úr þessu umhverfi koma svo ungir upprennandi glæpamenn sem þeir eldri ná tökum á.Þessir menn eru svo þjálfaðir upp í allslags glæpaverkum.Neyðin kennir nakinni konu að spinna,stendur að mig minnir eihverstaðar.Unglingarnir sem ánetjast þessum mafíum vaða í dauðan fyrir sína VELGERÐARMENN.Ég held að við sem höfum lifað hér á Íslandi komum seint til að skilja hvernig fátækt er virkilega.Ég man fátækrahverfin í mörgum borgum og í mörgum ríkjum og ég get skilið hve auðvelt það hlýtur að vera að fanga saklausa unglinga úr þessum hverfum og gera úr þeim glæpamenn.Maður finnur til magnleysis þegar maður hugsar um þessi mál.Það er full ástæða til fyrir okkur hér á Íslandi að vera vel á verði.Það er margt sem hefur farið úrskeiðis í fyrrnefndum löndum bæði hvað menntun og heilsufar snertir það vitum við sem höfum verið í þessum löndum.T.d.borgunum við Svartahaf t.d í Novorossiysk sem tilheyrir Rússlandi.Agentinn þar sagði mér að það hefði allt farið þar á verri veg.Mafíósar réðu þar flestu allavega t.d í skemmtiiðnaðinum.Fólkið svelti meðan þessir mafíósar jysu úr sjóðum sínum erlendis.Þeir vildu Stalíntímabilið aftur.Þá fengum við allavega að borða sagði ´ann.Ég get nefnd fleiri staði Poti í Georgíu.Sama sagan þar mafían með mikil völd og mikla peninga.Rúmenía ,Búlgaría just name it.Mér hefur alltaf líkað vel við Rússa allavega þá sem ég hef kynnst.Því miður eru nokkuð mörg dæmi um að mafía þeirra teygi sig langt yfir heimin.Mig langar ekki í hana hingað.Við eigum því láni að fagna að nokkuð margir rússar hafa sest hér að og hafa aðlagast vel að þjóðinni.Sama má segja um Eystrasaltslöndin,en því miður hafa komið nokkur einstaklingar hingað með slæman ásetning.Það kemur sér illa fyrir hina.Megum við lifa í sátt og samlyndi á þessu landi
10.5.2007 | 17:44
Smánarkjör
8.5.2007 | 19:25
Trygingastofnun
8.5.2007 | 17:05
Öryrkjar,gamla fólkið og ráðherrar
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (18.6.): 0
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 16
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Ég verð að segja að mér brá þegar ég heyrði fréttirnar í kvöld að glæpasamtök hefðu sent hingað flokk af fólki frá Rúmeníu til að betla.Ég bloggaði um daginn um áhyggur mínar af óheftu flæði af fólki frá Austurevrópu hingað.Þá sagði ég m.a.:........Að senda hingað flokka þrautþjálfaða þjófa sem stunda innbrot á hinum ýmsu stöðum landsins og safna góssinu á einhvern eyðistað og sækja það svo á góðum hraðbát........Ég fékk athugasemdir þar sem ég var sakaður um hræðsluáróður og rassisma.Ein athugasemdin var svohljóðandi:.......Þetta er ægilegt hjá þér Ólafur. Þú ert hræddur við ímyndaða hættu sem þér hefur verið talin trú um að sé til staðar af vondum mönnum sem eru á eftir atkvæði þínu. Hafðu það gott og endilega lestu þér til um "erlent fólk" áður en þú heldur áfram á þessari braut.
Kári Geir, 16.4.2007 kl. 13:28
Auminga Kári hann hefur sennilega bara séð heiminn með augum ferðamannsins.En eins og ég hef skrifað um sjáum við sjómenn löndin með alltöðrum augum en ferðamennirnir.Einnig skrifaði ég um reynslu mína í Kaupmannahöfn.Þar sem ég týndi veskinu mínu og hitti lögregluþjón sem fullyrti að því hefði verið stolið og hann sagði ma.;....... að glæpamenn í Kaupmannahöfn væru farnir að flytja inn unga pilta sem væri búið að þrautþjálfa í vasaþjófnaði frá barnæsku,í löndum sem áður tilheyrðu Ráðstjórnarríkjunu....Einnig skrifaði ég þetta:.........Nú vil ég biðja þann eða þá sem lesa þetta skrifelsi mitt og hafa komið t.d til hafnarborganna í Rúmeníu.T.a.m Constanta,Mangalia eða í Búlgaríu:Burgas,Nessebüre eða Varna.Ég vil biðja þá menn að segja mér hvað þeir sáu og hvernig þeim leist á á ástandið þar.í mínum augum var ástandið vægast sagt hörmulegt.......Við vorum af agentum skipsins varaðir við vasaþjófnaði og allskyns glæpum.Það vita allir sem eitthvað fylgast með að í A-Evrópu hafa eftir fall Komúnismans þrifist Mafíur sem hreinlega dæla glæpamönnum út til V-Evrópulandana.Ég hef lent í vandræðum bæði í Grikklandi og Ítalíu af því að ég var tekin fyrir mann frá einhverju af þessum löndum.Í Grikklandi var matnum hálfpartinn hent í mig inni á matsölustað.Þegar ég leitaði skýringar þá var sagt:við héldum að þú værir Albani.Ég leyfði mér,um daginn að hafa áhyggur af því að það gæti komið sér illa fyrir heiðarlegt fólk frá þessum löndum sem sest er hér að,að landar þeirra séu gripnir hér út af lögbrotum.Þessar áhyggur jukust í kvöld.Það er verið að tala um fjölþjóðasamfélag hér.Hvað eiga menn við.Eiga menn við það að hér byggist upp samfélag samansett af kannske 10-20 þjóðarbrotum sem ekkert vilja með hina að gera og skilja hreinlega ekki hvorn annan.Hefur fólk ekki fylgst með í nágrannalöndunum þar sem átök hafa orðið milli þjóðarbrota.Ég er hræddur um að við þessar 300.000 sálir sem eigum að heita íslendingar verðum fljótt kafffærðir.Við verðum líka að athuga hvernig heilbrigðiskerfið bregst við ef fólksfjölgunin verður of hröð.Menn tala á tillidögum um menningu,menningararfleið og að við eigum að vera stolt af því að vera íslendingur.Þetta eru svo sömu mennirnir sem tala svo um rassisma hvurndags.Það vellur oft allt annað út úr hægra munnvikinu en því vinstra.Þetta virðast vera mál sem ekki má nefna nema í skúmaskotum.Ég er alveg viss um að okkur veitir ekkert af að blandast saman við aðrar þjóðir.Erum sennilega ornir alltof skildir innbyrðis en við eigum að gera það með gát.Og mér finnst við eiga nóg af glæpamönnum þó við séum ekki að flytja þá inn.Kært kvödd