"En þurfa kannske"

Ég samfagna Akureyringum. En þurfa kannske Vestmanneyingar að fara huga betur að sínum málum í kjölfarið?? Kært kvödd
mbl.is Fagnar kaupum Samherja á starfsemi Brims
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" hrynja skrautfjaðirnar af"

Ja hérna Þær eru að hrynja skrautfjaðirnar af þeirrar tæru. Er  maðurinn ekki á "listamannalaunum" Sagði ekki Voltaire að: "Eru stjórnmál annað en sú list að kunna að ljúga á réttum tíma" 

Og segir ekki Biblían "verður er verkamaðurinn launa sinna" Það er samhljómur í þessu. Það væri gaman að vita hvað"við" greiðum þessum manni í laun samtals fyrir að sitja með hönd undir kinn hálfsofandi á samkundunni við Austurvöll.

Og ætli Jóni Bjarna sé ekki skítsama um þennan "flokkaflakkara" Kært kvödd


mbl.is Styður ekki Jón sem ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fyrir ódæðið"

Ja hann valdi sér staðinn fyrir ódæðið. Mér finnst satt að segja þeir sem stjórna í húsi spölkorn frá séu að fremja samnefnt ódæði á þjóðinni. Allavega þeim sem minna mega sín. Kært kvödd
mbl.is Reyndi að nauðga stúlku á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tilgangsleysi stjórnmálanna"

Þetta sýnir tilgangsleysi stjórnmálanna nú meir en margt annað. Meiningarlaust skítkast á báða bóga. Ef einhver smávirðing fyrir þessum furðufuglum á þessu svoköluðu alþingi hefði verið einhverstaðar fyrir hendi,  þá væri ýmislegt sem þessi frú sem fer fyrir þeirri tæru hefur látið sér um mun fara:"ekki boðlegt í sölum" fyrrgreindar samkundu. Skítkast hver í annan og skotgrafarhernaður eru aðalsmerki títtnefndar samkundu. Enda kemur ekkert að viti frá henni allavega nú um stundir Kært kvödd
mbl.is Ekki boðlegt í sölum Alþingis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"tregara en tárum taki "

Það er eiginlega tregara en tárum taki þegar glæsileg ungmenni falla á vigvelli eiturlyfjanna. Og líka er það sárgrætilegt að ekki skuli nást í morðinga þessarar fallegu stúlku.

 

Þó að einhverjir sendlar séu skotnir öðru hvoru nást höfuðpaurarnir sennilega aldrei. Og yfirleitt eru þeir sem nást þrælar þessara manna. Sem þeir eru búnir að ná tangarhaldi á í gegn um eiturlyfin, Þessir andsk.... eru slægari en svo að jafnvel sendlarnir hafa ekki hugmynd um hverir þeir eru.

 

Og ég er þess fullviss að í hópi þeirra eru jafnvel menn  úr heimi þeirrar hroðalegu peningagræðgi sem við erum farin að þekkja úr svokölluðu "viðskiftalífi"

Menn sem svífast einskis til að verða ríkari en þeir eru. Ég held að "peningagræðgin" virði engin landamæri. Einn dáinn einstaklingur á móti tugmiljóna gróða hafi lítið að segja í það gin Verið kært kvödd


mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Maí 2011
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 79
  • Sl. sólarhring: 79
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 537404

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband