27.4.2012 | 22:14
"Ég hafði smá samúð"
Ég hafði smá samúð með Geir Harde í þessu Landsdómsmáli. En sú samúð hvarf sem dögg fyrir sólu þegar hann sagði eitthvað á þessa leið eftir dómsfellinguna:
" Ég lýsti því yfir þegar málið var dómtekið og á fyrri stigum þess að ég bæri fyllsta traust til landsdóms. Nú er ljóst að meirihluti hans reis ekki undir því trausti heldur hafa pólitísk sjónarmið laumað sér inn í réttinn og meirihluti dómara ákveðið að láta þau ráða för frekar heldur en hreint lögfræðileg mat"
Þetta finnst mér einhver ömurlegasta afsökun hjá nokkrum manni yfir dómsúrskurði. En samt finnst mér þetta sanna samband ákveðins stjórnmálaflokks yfir dómsmálum þessa lands. Geir var viss í sinni sök um sýknun, taldi sig þekkja innviði dómkerfisins eftir margra ára stjórn fg stjórnmálaflokks á því
En svo bregðast krosstré sem önnur. Vistrimenn hafa stundum kvartað með nákvæmlega sömu rökum undan dómurum hérlendis.Höfðu þeir þá kannske rétt fyrir sér eins og stuðningsmenn Geirs vilja meina að hann hafi nú?? Það er langt síðan að ég missti álit á dómstólum hér. Og hef sagt svipað og Geir segir nú um að pólitísk sjónarmið hafi laumað sér inn í réttarfarið Kært kvödd
![]() |
Ósáttur við niðurstöðuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.4.2012 kl. 10:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
25.4.2012 | 19:58
"Vonandi bætir þessi "
Vonandi bætir þessi kosning á konu til Biskups ásýnd almennings til Þjóðkirkjunnar. Og ég óska henni velfarnaðar í störfum sínum.
En það vakti athygli mína þegar ég sá hana í sjónvarpinu í kvöld hve mér fannst hún vera lík Vigdísi fv forseta í andliti. Háralitur að vísu annar. Kært kvödd
![]() |
Stór áfangi fyrir kirkjuna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2012 | 15:57
"Nú er bara að vona"
Nú er bara að vona að þessi algerlega ónothæfa landsstjórn fari að sjá mikilvægi LHGÍ. Hætti að ausa peningum, sem oft virðist vera nóg af í allslags "gæluverkefni" og fari að styða við bakið á LHGÍ. Ekki veitir henni af.
Að rugluverkefni einhverra menningarvita skuli t.d vera mikilvægari en björgun mannslífa af sjó og landi er með hreinum endemum. Nú er bara vona að þessu glæsilega skipi verði haldið í heimahögum. Kært kvödd
![]() |
Þór leggur af stað heim í vikunni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2012 | 17:23
"Menn sem leyfa sér "
Menn sem leyfa sér að gera svonalagað eiga að fá þunga refsingu náist þeir. Það hefur stundum sagt viti tveitr þá vita allir. Er siðferði íslendinga virkilega á svona lágu plani. Að vera að gabba svona nauðsynlega aðila er alveg með endemum..
Þó lögreglumenn okkar séu seigir í að koma upp um lögbrjóta hafa þeir sennilega Því miður ekki mannskap til að upplýsa svonalagað.Það eru til öfl í landinu sem vilja alla löggæslu burt. Fólk sem enga grein gerir sér fyrir dýrmæti þess að hafa góða löggæslu. Fólk sem finnst svonalagað í lagi. Kært kvödd
![]() |
Væntanlega skotið af landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.4.2012 | 01:04
"Það er ekki nema von"
![]() |
Skuldamál heimila í biðstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
10.4.2012 | 20:58
"mikinn áhuga"
Ekki hef ég mikinn áhuga á handbolta en horfi stundum á landsleiki. Góður maður vakti athygli mína í dag á einu varðandi þetta handboltalandslið.
Þjálfari þess og HSÍ biður um stuðning þjóðarinnar við bakið á liðinu. En svo fá ekki nema þeir sem eru áskrifendur að Stöð 2 að sjá þessa leiki. Er ekki einhver skekkja í þessu hjá HSÍ.
Ef þeir vilja fá stuðnig þjóðarinnar eiga þeir ekki að sjá til þess að sá hluti hennar sem vill sjá leiki síns landsliðs fái að sjá þá "skjánum" Ekki bara einhverjir útvaldir.
Og að kaupa áskrift að umræddri stöð er enginn bakstuðningur við landsliðið heldur við fólk sem margir vilja ekki sjá lengur í íslenskum viðskiftum. Kært kvödd
![]() |
Ísland í þriðja styrkleikaflokki fyrir ÓL |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.4.2012 | 17:21
"Karl ræfilinn hann "
Karl ræfilinn hann Árni gat ekki komið með betri samíkingu. "að bíta í skjaldarrendur". Skoðum Egilssögu.65 kafla:"Og er hann gekk fram á völlinn að hólmstaðnum þá kom á hann berserksgangur.
Tók hann þá að grenja illilega og beit í skjöld sinn. Bersersksgangur Ljóts stoðaði þó lítt því hólmgöngunni lauk með því að Egill hjó af honum fótinn og lét hann þá lífið". Setjum XD sem Egil og stjórnina sem Ljót þann sem beit í skjaldarrendur
Í Vatnadæla sögu 46 kafla segir m.a Þeir grenjuðu sem hundar og bitu í skjaldarrendur og óðu eld brennanda berum fótum. Þetta er nefnilega eins og stjórnarliðar hafa hagað sér.Að vísu í öfugu samhengi Þeir hafa farið grenjandi yfir brennandi þjóðfélagið
Og nú ætla þeir að bíta í skjaldarrendur. Til hvers er ekki alveg ljóst. Berserksgangurinn hefur hrunið af stjórnarliðum þegar þeir hafa staðið andspænis auðmönnunum sem settu landið á hausinn. Þá hafa þeir kannske bitið í einhverjar rendur til að fela hræðsluglamrið í tönnunum. XD geta þakkað Árna & co fyrir að hjálpa sér við að ná vopnum sínum aftur. Kært kvödd
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (26.6.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 94
- Frá upphafi: 537410
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 15
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar