Bull

Íslenskur banki!!! Hvaða endemis bull er þetta???? Allavega vildi hinn íslenski ráðherra viðskifta ekki meina það. Og einnig hefur þetta engin áhrif á "icesave"sagði sami ráðherra.Kært kvödd í bili.(vika enn)
mbl.is Óvænt fé í íslenskum banka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grjónasúpa

Framsókn er söm við sig. Einusinni var það grjónagrautur sem svo var skírður eftir formanni framsóknar og kallaðu"Steingrímur"  Nú er það kjötsúpa.

Sem í gamla daga ásamt kindakjöti var stundum kölluð Eyvindur og Halla. Skyldi kindakjöt og kjötsúpan nú verða uppnefnd "Sigmundur og Eygló" Kært kvödd í bili.


mbl.is Kosningakjötsúpa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórn

Jóhanna vill stýra næstu stjórn.  En mikið er ég hræddur um að hún verði hreinlega ekki spurð. Það verði  VG og Sjallarnir sem í henni verði. Með Steingrím J sem forsætisráðherra. Þá er óskastjórn D.O komin á. XD róa nú lífróður að ná aftur völdum. Og þeir selja  sig ódýrt til þess.

 

Þeir vilja forðast það eins og heitan eldin á láta 2 vinstri flokka grafa í óhæfusulli undanfarinna ára. Bankahruninu, Sölunni á fasteignunum á Keflavíkurflugvelli. Kvótamálin og fl og fl.  Forsætisráðherrastóllinn er eftirsóttur og ekki amalegt fyrir S.J.S að enda sinn feril í honum. Þessar hugleiðingar eru mínar prívat og hafa ekkert með þann stjórnmálaflokk sem ég styð að gera.Kært kvödd í bili


mbl.is Reiðubúin að leiða næstu stjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannanir

Skelfing fer það fyrir brjóstið á andstæðingum FF ef jákvæðar fréttir berast af flokknum. Frjálslyndir létu gera skoðanakönnun fyrir sig í NV-kjördæmi. Capacent Gallup gerði þessa könnun. C.G hefur gert kannanir  undanfarið fyrir Moggan og RUV sem flestir hafa tekið einhvert mark á. En nú víkur svo við  að ekkert er að marka þessa könnun þessa fyrirtækis.

 

 

Einn XD vitringurinn jafnar könnun C.G við verklag Göbbels í Þýskalandi á sínum tíma. Þeir hjá C.G eru honum sennilega mjög þakklátir fyrir samlíkinguna. Annað gáfnaljós segir þetta stangast á við skoðanakönnun á heimasíðu sinni þar sem ónefndur flokkur sigrar með miklum meirihluta á landsvísu. Annar telur svarhlutfall lélegt og þar fram eftir götunum.

 

 

Ég sjálfur er ekki trúaður á skoðanakannanir hvorki þær sem eru okkur í FF í vil eður ei. Ég tek mest mark á kosningaúrslitum sjálfum  Ég held að skoðanakannanir geti komið sér ílla fyrir flokka. Ég held að ef flokkur fer að koma með góð úrslit úr þeim fari menn hreinlega að slá af í baráttunni.

 

Það er mín skoðun svo ég tek því lítið mark á þessum könnunum  En í sambandi við þessa án þess þó að vita meir um það mál gæti þá ekki verið að aldur svarenda hafi verið eitthvað rýmkaður í þessari. Ég  skil það þannig að í flestum könnunum sé hámarkið á aldri svarenda miðað við 65 ár. Og hún hafi kannske gerð um helgi þegar sjómenn eru oftar heima hjá sér en ella.  

 

 

Án þess þó að ég hafi vit á þessu, En ég hef gaman af að rifja upp þegar ég bjó utanlands og FF buðu fram í 1sta sinn. Þá mældust þeir rétt fyrir kosningar með um 2 % í skoðanakönnunum. Mikill vinur minn en sem er á öndverðum meið við mig í stiórmmálum var alltaf að gera grín að tveggja % flokknum mínum. Ekki man ég % töluna sem flokkurinn fékk en 2 menn fengu þeir þó 1 væri uppbótarmaður.

 

En er ekki allt hey í harðindum. .Við skulum spyrja að leikslokum og ef við náum ekki inn þá er það sjálfum okkur að kenna. Þá hefur okkur misstekist að koma boðskapnum til fólksins. Við reynum eins og við getum og látum ekki deigan síga hvað sem skoðanakannanir segja. Og það er nátturlega gaman að sjá % stíga í könnunum en mest finnst mér gaman að sjá hræðslu andstæðingana við okkur. Þeir eru drulluhræddir við okkur. Og við skoðanabræður/systur mína segi ég bara"lofum mey að morgni" Kært kvædd í bili


mbl.is Frjálslyndir með 9,3% í NV
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kosningar

Ég sá einhverstaðar haft eftir Bjarna Ben nýjum formanni Sjallana að nú væri ástandið verra en nokkru sinni fyrr. Og best hefði verið að kjósa strax eftir útgöngu Samfylkingarinnar í vetur.

 

Vitaskuld sjá allir að það hefði verið betra fyrir þá sjálfa. Þá hefði þetta styrkjamál ekki verið komið upp. Og þeir hefðu kannske, eftir þá kosningu geta myndað óskastjórn Davíðs þ.e.a.s þeirra og VG. Og þá er ekki alveg víst að nokkur hefði fengið að vitað af þessu leiðindamáli fyrir þá. Kært kvödd


mbl.is Þarf að vinna litla sigra á hverjum degi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Prúðu/fiskileikhús Steingríms !!!!

Mikið fengur er nú t.d. fyrir Eyjamenn að þessu nýja útspili Steingríms J. Eyjamenn fengu eitt stórt 0 síró á ensku en NÚLL á íslensku út úr þessu kosningaútspili ráðherra sjávarútvegs.

 

Af hverju útskýrir Steingrímur J ekki fyrir almenningi væntanlega reglugerð ?  Eru maðkarnir í mysunni of margir ? Hvenær fáum við hreinskiftan mann sem ráðherra sjávarútvegs ? Kært kvödd

Hér er linkur á blog Georgs Eiðs vinar míns: http://georg.blog.is/blog/georg/


mbl.is Stofnað leikhús í Kaffivagninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðurskip ?

Varla fá sjóræningarnir mikið lausnarfé fyrir þennan belgíska"dall". Sem mér virðist vera einhverskonar dredger (dýpkunarskip) POMPEI PompeiPompei 2OPIRATESWHO g1 Land0414d  1239722452 1969Gallery Somali pirates Pi 004

Áhöfnin mun vera 10 menn af 4 þjóðernum Belgar.Hollendingar Króatar og menn frá Philipseyjum. En kannske eru ræningarnir bara að ná sér í"móðurskip." Þessi ætti að rúma nokkrar fleytur þeirra. Á nú kannske að fara að "útvíkla" svæðið sem þeir athafna sig á Kært kvödd


mbl.is Rændu belgísku skipi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Mál að linni"

Hverskonar andsk..... fíflagangur fór eiginlega  fram á svokölluðu"Alþingi" í gær .Ég  var með 2nnað augað á sjónvarpinu þó án hljóðs í gær. Aðalumræðuefnið virðis vera"sjúkraskrár" og ræðumenn XD. Enga aðra var að sjá.

 

Skilja þessir menn ekki að við kjósum þá á þing til að vinna. Ég vil að "sjónarhorni" sjónvarpsmyndavélarinnar í þingsalnum sé breytt þannig að við sem viljum fylgast með hvað er að ske í"salnum" sjái hverjir séu í honum.Svo komu þeir XDarnir sigri hrósandi í morgun og þóttust hafa bjargað landinu frá ja hverju. Það veit,ekki ég. Læt þetta duga í bili. Kært kvödd


mbl.is Takk fyrir, búið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrir hverja eru sendiráð?

Ég bjó nokkur ár í einu af svokölluðum Norðurlöndum. Reynsla mín af sendirráði Íslands í landinu sem ég bjó í er slæm. Þegar ég svo leitaði réttar míns hjá Norðurlandaráði kom í t.d. í ljós að upplýsingar sem ég fékk hjá sendiráðinu gagnvart réttindum mínum voru hreinlega rangar.

 

Þá sagði íslensk kona sem starfaði hjá Norðurlandaráði eitthvað á þessa leið: " maður veit stundum ekki fyrir hverja þessi sendiráð eru. Þau virðast allavega ekki fyrir hinn almenna borgara" Konan tiltók 2 hópa sem hún sagði,að sér virtist fá alla þá aðstoð er þeir þyrfti en ekki hinn almenni borgari..

 

Ég vil taka fram að erindi mitt við sendiráðið í viðkomandi landi hafði ekkert að gera með peninga. Mér finnst satt að segja að spara mætti stóra peninga með því að leggja niður 80-90% af þessum"kontorum"

Nú á tímum ADLS.Skype. og hvað þetta heitir nú allt saman ætti að vera nóg að vera með ræðismenn sem af mini reynslu voru miklu liprari við mann en fyrrgreint sendiráð.Læt þetta duga í bili.En það kemur meira. Kært kvödd


mbl.is Össur setur siðareglur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Listamannalaun

Ég verð að segja að mig furðar afstaða Marðar Árnasonar sem telur sig vera jafnaðarmann. ja svei. Hann ætti frekar að hugsa um að reyna að jafna hag aldraðra og öryrkja. Ég er rúmlega 70 ára hef alltaf borgað mína skatta og skyldur. Stundum dróst það en alltaf kom að skuldadögum.

 

 

Ég var sjómaður í 52 ár eða þangað til krabbafjandi og hjartaproblem hrakti mig í land. Núna er staðan sú að ég fæ greitt(útborgað) frá Tryggingarstofnum þeirri ja ég segi ekki orðið en 1sti stafurinn er glæ......... 58.797 ísl kr.  Tæpa 60 þúsund krónur borgar íslenska ríkið mér eftir að hafa stundað  frá unga aldri  þann atvinnuveg sem kom þessum uppívindinnpissurum eins og sumt af þessu þingliði er á lappirnar.

 

Atvinnuvegur sem aðallega hefur staðið undir þessum andsk...... ríkisstyrk til þessa liðs sem kallar sig listamenn. Þú felur eitthvað segir nú kannske einhver. Þá er því að svara að ég fæ á sama tíma úr lífeyrissjóði ( útborgað) 67.516 kr. Sem sagt útborgað 126.313.ísl krónur á mínu kæra föðurlandi sem fámennur hópur manna er búinn að draga svo niður í skítinn að eigin vill hjálpa okkur peningalega.

 

 

Og nú á að bjarga öllum með þessu að heiðra iðjuleysinga til meiri iðjuleysis.  Ég sá viðtal við 1 íslenskan svokallaðan"listamann"í fyrra hans list fólgst í þvi að míga í buxurnar fyrir fullu húsi í Finnlandi. Ja þvílík list 

 

Ég hef ekkert á móti sönnum listamönnum sem ég veit að við eigum marga af. En að heiðra sérstaklega menn sem fá milljónir fyrir list sína vegna eftirsóttra leiksýninga og t.d.skrifa á velseljanlegum bókum. Af hverju má ekki þá með sama hugsunarhætti setja t.d mikla aflamenn á listamannalaun. 

 

Þeir eru margir listamenn í sínu fagi. Þeir eru líka þess valdandi að þær fáu krónur sem við fáum í gjaldeyri koma í ríkissjóð.  Nú eru útrásarvíkingarnir flúnir úr landi með allann afraksturinn. Víkingarnir,sem sumir svokallaðir listamenn hyltust til að láta mynda sig með og hreinlega sleiktu ras...... á en koma  nú hver um annan þveran og afneita þessum fv vinum.

 

 

Manni hreinlega kígjar við öllum þessum helv....tvískinnunghætti. Ég er ekkert að kvarta yfir mínum kjörum í sjálfum sér og ég hef aðdrei öfundað fólk af peningum enda aldrei kunnað með þá að fara. En ég veit að mikið af fólki er mikið verra sett en ég. T. d bændaekkjur,heimavinnandi konur sem ekki áttu kost að borga í lífeyrissjóði fl.og fl . Svona lög eins og Mörður og co voru svo rosalega ánægðir með eru eins og köld vatnsgusa framan í þetta.

 

 

Fólk sem er orðið bogið í baki með krækkótta fingur eftir áratuga erfiði við að koma fótum undir það lýðveldi sem stofnað var á Þingvöllum 17 júní 1944. Ólafur Kárason ætlaði að frelsa heiminn með listum en það tókst ekki. Ég myndi kannske samþykkja hann sem þiggandi listamannalauna í dag en það er önnur saga . Kært kvödd


mbl.is Lög um listamannalaun samþykkt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sjóræningar

Enn og aftur hafa sjóræningar við Sómalíu látið til sín taka. Maður er eiginlega hættur að skilja í þessu öllusaman. Ég er hreinlega farinn að halda að bak við þetta alltsaman standi einhver alþjóða glæpasamtök t.d al-Qaida  Liberty+Sun Liberty Sun Skip sem komst undan sjóræningum í morgun. Enginn má líta svo á að ég sé að gefa mig út sem einhvern expert í sjóránum. Það er ég allsekki,langt þar í frá. En eins og ég hef sagt frá fyrr lenti ég í að sigla um hættusvæði vegna sjórána. Og kynntist því af eigin raun hvernig reynt var að varast þau. Ég nenni ekki að lýsa því hér einusinni enn. En ég undrast stórlega hvernig t.d einu af stærstu olíuskipum heims var rænt í vetur p10 17543963 Sirius Star einu af stærstu olíuskipum heims sem rænt var í vetur.Ef þið stækkið myndina sjáið þið kannske mann í fallhlíf stökkva um borð úr lítilli flugvél með lausnargjaldið 3 milljónir US dollars. Gallery Somali pirates Pi 005 Ég er virkilega farinn spyr mig hvernig geta örfáir menn á ekki stærri kænum en þetta tekið svona stórt skip. Ég er farinn að halda að það sé einhverstaðar maðkar í mysunni.dfnbdaf Og nú vísa ég til eigin reynslu. Ég hef litla trú á að þessir menn sem ég held (mín persónulega skoðun eins og allt í þessari færslu) að séu ólæsir og óskrifandi fv fiskimenn að sögn fjölmiðla geti skipulagt sig svona vel. Og hafa fengið yfir 200 milljóna dollara síðan í fyrra í lausnargjöld. Ég er helst farinn að halda að allavega í sumum tilfellum séu einhverjir umborðverandi blandaðir í málið. Hér eru nokkrar myndir af þessum frægu sjóræningum os aðstæðum þeirra  Gallery Somali pirates Pi 006 Gallery Somali pirates Pi 007Gallery Somali pirates Pi 008Gallery Somali pirates Pi 002Gallery Somali pirates Pi 009Gallery Somali pirates Pi 003p16 18186763p15 18176731Ég trúi því hreinlega ekki eftir atburði síðustu daga að þetta sé eðlilegt ef svo asnalega má taka til orða. Ég er alveg viss um að einhverjir fjölþjóða glæpamenn standa á bak við þetta allt. Ekki þessir fv fiskimenn með allri virðingu fyrir fiskimönnum hvers staðar er í heiminum.

p24 17945277 Þessu skipi Faine var rænt í vetur.Hér er það að koma til Mobasa 12 febrúar eftir að greitt hafði verið 3,2 milljón dollars í lausnargjald.Enda var þetta farmurinn: p25 17963363 Tekið á millidekki Faine Sjóræningarnir virtust hreinlega hafa getað"lallað"í rólegheitum um borð61Aðstæðurna við Faine. Myndirnar að vísu teknar eftir að skipið var lagst við akker.En ég bara spyr hvernig í and........ komust þeir óséðir um borð í svona borðhátt skip. Það hreinlega skil ég ekki. Áhafnir margra þessara skipa sem tekin hafa verið eru á"lúsalaunum"og hvað gerir maður ekki fyrir peninga. p30 18200271 Sjóræningar sem hafa náðst.Í fréttatíma Stöðvar 2 um daginn var sagt að sjóræningarnir færu vel með fanga sína. Það stangast illilega á við hvað Níelssen skipstj. á Danica White sagði mér af reynslu sinni. Hvaðan Stöðin hafði sína frétt veit ég ekki en það hlýtur að vera hafa verið haft eftir einhverjum fangana. Ég næ þessu ekki alveg inn í minn gamla haus. Og þessvegna læt ég staðar numið með sjórán í bili.En hérna eru nokkrar fleiri myndirp26 18256805p20 18157641p17 17789519p18 17789707Safmarine+AsiaEitt af skipinu sem slapp undan árás sjóræningana í morgun. Hálf umkomulausir eru ræningarnir allavega á myndum og ekki líkir mönnum sem eru að velta 200 milljónum dollara á ári Ég eftirlæt ykkur að reikna um leið og ég kveð ykkur kært


Hústökufólk

Er þetta fólk ekki með fulla fimm. Þetta er eldgamallt timburhús. Hverjum yrði kennt um ef þarna brytist út eldur og einhverjir létu lífið. Þá er ég hræddur um að lögreglan fengi að finna til tevatnsins. Hryllilegur atburður varð í Póllandi um páskana.

 

Er gamallt hús fuðraði upp á:"no time". Ég hef ekkert  á móti skipulögðum mótmælum. En það verður að vera vit í þeim. Í þessu dæmi finnst mér vanta vit í gjörninginn. Kært kvödd.


mbl.is Sextán handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar draumarnir rætast 2

Arnold Peter Möller var fæddur 02-11-1876 sonur Capt Peter Mærsk Möller.Þegar Arnold var 28 ára stofnaði hann ásamt föður sínum A/S Dampskipsselskabet Svenborg. Þeir keyptu notað skip sem þeir skírðu einfaldlega Svendborg. 

 Emma Maersk 2 EUGEN Maersk01 Þau eru glæsileg Mærsk skipin.Fyrsta skrifstofa fyrirtækisins var í  æskuheimili A.P Möllers"Villa Anna"í Svendborg.Faðir A P M Capt P.M.Möller hafði fjárfest ásamt viðskiptafélögum sínum 1885 í gufuskipinu Laura. En hann vann að því að stofna skipafélag með heimahöfn í Svendborg. Þ 16 apríl 1904 var haldinn fundur í Svendborg þar sem samþykkt var að stofna gufuskipafélag. Auk þeirra feðga voru kaupmennirnir Rosenthal og Nielssen.

sslaura1908 Með þessu skipi byrjaði það ss Laura

Svendborg 106115a SS Svendborg 

Malarinn Petersen og lögfræðingurinn Petersen. Allir framámenn í Svendborg. Þann 22 águst 1912 var svo"Dampskibsselkabet af 1912 A/S"stofnað með A P M sem forstjóra.Félagið átti 2 skip Lexa Mærsk  og Hulda Mærsk. Villa Anna 106116a Villa Anna

Bæði skýrð eftir systrum A P M. 1921 fær útgerðin 1sta diselskipið. Það hét Leise Mærsk eftir A P M ömmu. Skipið var á ýmsan hátt framúrstefnuskip m.a í sambandi við vél o. fl. 1928 byrjaði Mærsk á áætlunarsiglingum.

Arnold_Peter_M_ller_106118a Arnold Peter Möller og frú

þ.12 júlí það ár sigldi Leise Mærsk frá Baltimore í sinni 1stu áætlunarferð þaðan gengum Panamakanal til Austurlanda og til baka. Leise Mærsk var fyrsta skipið sem Mærsk missti í seinni heimstyrjöldinni. En skipinu var sökkt í Pentlandsfirði 23 nóv 1940 á leiðinni frá Nova Scotia til Clyde-fljótsins.

M_rsk_McKinney_M_l_106121a Mærsk Mc-Kinney Möller ungur

Þegar þjóðverjar hertóku Danmörk 9 apríl 1940 voru 36 skip félagsins allt stót"línu"og tankskip utan lögsögu Danmerkur. 24 maí 1940 flutti 3ji ættliðurinn til USA og tók við stjórn útgerðarinnar Þetta var hinn,nú aldni og vinsæli Mærsk Mc-Kinney Möller. Hann hafði giftst konu sinni Emmu 2 dögum áður.

M rsk Line 106120a Mærsk Line  var stofnað 1928

Þau hjón komu til New York 10 júní og tók M.Mc Kinney M.strax stjórnartaumunum á fyrirtækinu og stjórnaði því þaðan næstu tæp 8 árin. Mc Kinney Mærsk Möller gerði fyrirtækið að því mikla stórveldi sem það er í dag.Ef einhver hefur áhuga að skoða skipa og borpallalista  félagsins í dag þá er hann hér að neðan.  Chassie M rsk 106119a Eitt af gömlu skipunum Chassie Mærsk 

Þessi skrif mín má engin taka sem einhverja sagnfræði. Þegar gamall kall er eitthvað að grúska getur eitthvað gleymst eða misfarist. Arnold Peter M ller 106117a  Arnold Peter Möller ungur

En eitthvað á þessa leið skeði þetta allt saman. Getum við verið sammála um að stundum rætast draumar manna. MMM 1500x1600 Hinn aldni Mc Kinney Mærsk Möller. Í þessu tilfelli kannske 2ja,þeirra Davíðs Á Guðmundssonar og Mc Kinney Mærsk Möller.Ég læt þá sem lesið hafa ef einhverir eru dæma um það um leið og ég kveð kært.

 http://about.maersk.com/SiteCollectionDocuments/about.maersk.com/Files%20and%20documents/2008_APMM_FleetList.pdf 

Svo er það nútíminn:containerskib 003 Emma MaerskLaem 013(1)TNG Elly 042EUGEN Maersk02Laem Chabang Terminal 3Jeppesen Maersk 25a IMO Las Palmas 26112006 Á síðustu myndinni hafa þeir fengið brælu Efni í þetta blogg hef ég fundið á"Netini" t.d  á heimasíðu Mæersk.Myndir"fengnar að láni"m.a af þeirri síðu og shipspotting .com.


Þegar draumarnir rætast 1

1974 settist ungur maður á skólabekk í farmannadeild stýrimannaskólans í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá skólanum 1977 með farmannapróf. Nafn hans er Davíð Guðmundsson fæddur 20-06-1953. Hann hélt síðan til Danmerkur ásamt nokkrum félögum sínum. Hann skráði sig á skip hjá skipafélagi að nafni Skou.

Ship+Photo+INGER+SKOUShip+Photo+Dolly+Skou

Ship+Photo+KOTA+RATNADolly+Skou

Ship+Photo+Benny+SkouBenny+Skou

Það voru alvörskip Skou-skipin,Efst tv Inger Skou svo Dolly Skou.Næsta röð er Dolly Skou tv undir nafninu (1984) Kota Ratna,Neðst er svo Benny Skou.Eftir þetta réðist svo Davíð til Mærsk.Sem í dag er eitt af alstærstu skipafélögum heims. Og til að gera langa sögu stutta þá tók Davíð í byrjun okt 2008 við skipatjórn á einu af stærstu gámaflutningaskipum heims.:"Mette Mærsk"mette%20maersk Hér er Davíð lengst tv við afhendingu skipsinsmaersk 1 Mette Mærsk

Við skulum óska þessum"útrásarvíking"til hamingu með stöðuna og óska honum velfarnaðar á ferðum hans um heimin. EMMAMÆRSK003 Ég tel mig ekki ljúga miklu þegar ég held því fram að þetta skip sé systurskip Mettu Mærsk en það heitir Emma MærskÞað væri gaman fyrir unga íslendinga sem vilja láta eftir æfintýraþránni að taka sér feril Davíðs til fyrirmyndar. Ungir íslenskir farmenn sem eiga enga möguleika hér heima eiga að athuga þetta. Það vil ég meina. En eigum við að kíkja nánar á útgerðina.Kem að því í næsta bloggi.Kært kvödd


Konur undir stýri

Konur undir stýri enda eins og kettir út í mýri heyrði maður einhverntíma. Oft er grín gert að akstri kvenna sérstaklega ef þær eru ljóshærðar Sumir segja jafnvel að þær eigi ekki að hafa ökuréttindi nema þá að þær liti á sér hárið.Obviously a BLONDE MOMENT Þessi er ljóshærð. Hverskonar"kellingaakstur"er þetta heyrist oft En þarna var örugglega ekk ekki kona við stýrið85379 800 Eða hértrim tabs were definitely working Þessu er nú ekki saman að jafna í sjálfu sér. En kannske sýnir að allir geta lent í slysalegum aðstæðum. Ég held að í sjálfu sér konur séu ekkert síðri bílstjórar allavega betri en ég. Látum af þessari karlrembu um akstur sérstaklega ljóshærða kvenna. Kært kvödd
mbl.is Aftur og aftur og...
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki komnir á "Bísann"

Heldur fólk að þeir séu svo blankir að þeir þurfi að fara á"Bísann" En þeir er varla svo blankir, En hafa blaðamenn kannað:"Streets of London" Skildi þeim ekki bregða fyrir þar. Kært kvödd
mbl.is Auðjöfrar landsins sjást ekki á götum Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Jú víst var það hægt Matthías"

Til er saga um sýslumann sem hafði skrifara sem hét Matthías, Svo var það í barnfeðursmáli og annar aðilinn hafði lýst stað og aðstæðum. Sem sýslumanni þótti töluvert furðulegar

Að skýrslutölu þann daginn spyr sýslumaður ritarann,: "Er þetta hægt Matthías" Segir  ekki af svari skrifara.  En þegar þeir hittast daginn eftir í réttarsalnum er það fyrsta sem sýsli segir:"Jú víst var það hægt Matthías. Þeir rannsökuðu málin gaumgæfilega á þeim tímum, Kært kvödd


mbl.is Stunduðu kynlíf á ofsahraða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðhetja 2 ?

Mikið eru þetta ánægjulegar fréttir. USA hefur eignast aðra þjóðhetju á stuttum tíma. Þá á ég við Chesley B. Sulllenberger III flugstjóra

sullenberger  Chesley B. Sulllenberger III flugstjóri og nú Richard Phillips skipstjóra.  Niels H. Nielsen fv skipstjóri og vinur minn var í haldi sjóræninga 83 daga 2007 (2 júní - 22 ágúst) ásamt áhöfn sinni.

r1090688567 Richard Phillips skipstjóri

hires 070918 N 5459S 017 USS Bainbridge herskipið sem capt Phillips er nú um borð í

Hann sagði mér sjálfur frá reynslu sinni. Hann kemur aldrei til að jafna sig á þessu. Ræningar notuðu þá taktík á hann og skipshöfnina að þeir töluðu t.d. vinalega við þá kannske í nokkrar mínútur og sögðu að þeir færu að fá frelsi jafnvel innan klukkutím .

image 16  Niels H. Nielsen skipstjóri Myndina tók ég sjálfur af honum þegar við silgdum saman á Danica Sunrise

photo00 D.Sunrise

Næstu mínútur öskruðu þeir á þá að nú dræpu þeir þá. Þetta létu þeir dynja á mönnunum í þá 83 daga  sem þeir voru í haldi ræninga. Frá svonalöguðu kemur enginn óskaddaður. danicawhite Danica White 7995 Frá töku D.White2198970 8f3e5d2fdc551526a898ef1db8190fe9 Fyrirhuguð leið D. White

Nýjasta sjóránið var þegar ræningarnir náðu dráttarbátnum M/T Buccaneer á sitt vald.

 

Ship+Photo+Buccaneer M/T BuccaneerLADY+MARIA Buccaneer hét áður Lady Maria.

Það er virkilega mál að linni þarna. Og Sþ sýni nú einusinni að þetta eru alþjóðasamtök. Að vísu skal ég viðurkenna að þessir glæpamenn eru slyngir.

p 014809 00 07 Fiskibátur á Adenflóa athugaður. 

 

Þeir taka yfirleitt  helmingin af áhöfnum skipana í land þegar búið er að leggja skipunum við hafnir landsins(Somalíu) t.d Hobyo. Og ef reynt yrði að ná skipunum drepa þeir í landi verandi áhöfn.Hafi einhver haft nennu til lesturs á þessum pisli kveð ég þann sama kært og óska honum gleðilegrar páskarestar.


mbl.is Skipstjórinn laus úr haldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mistök hvað?????

Ekkert fer eins mikið í mínar fínustu ( þær sem eftir eru ) þegar þessu fólk sem telur sig eitthvað merkilegra en við hérna niðri á jörðinni og telur sig t.d. hæft til þingsetu fyrir okkur þóknast að tala við okkur.

 

Og helv.... bullið sem vellur út í gegn um munnvikunum á þvi og það ætlast til að við trúum öllu þessu bulli.  Það er ekki nóg fyrir það að ljúga með kjaf..... heldur lýgur það með öllu andlitinu. Hvaða manneskju sem hefur staðist barnapróf trúir þessu fólki.  Skrípaleikurinn nær hámarki þegar eitthvað af þessu dindlaliði þykist hafa axlað ábyrgð.

 

 

Þeir stæra sig af að nýhættur fv formaður XD hafi axlað ábyrgð. Getur einhver  íslensku mælandi maður útskýrt það fyrir mér á sæmilega skiljanlegri íslensku hvernig hann axlaði þessa svokallaða ábyrgð.  Ef ég og nokkrir félagar mínir stælum t.d.bensíni frá N1 og slyppum með það í bili.  Nú svo missti ég prófið seldi bílinn svo að ég þyrfti ekki á því að halda að stela oftar bensíni frá N1.  Upp kæmist um okkur félaga segjum t.d. út af lágum bensínreikningum í bókhaldi okkar 1-2 árum seinna. Ég bíllausi maðurinn gæfi út yfirlýsingu:Ég stal bensíninu. 

 

 

Er ég þá búinn að axla ábyrgð á hinu óheiðarlega athæfi. Skyldi Bjarni Benediktsson fv forstjóri N1 taka það gott og gilt. Það ætti hreinlega að setja kvóta á orðinum:" Axla ábyrgð" vegna ofnotkunnar. Hreinlega að stoppa notkun á þessum orðum allavega fram yfir kosningar. Og ég spyr hvar er varaformaður XD í þessu máli. Eftir öllum sólarmerkjum hefur henni verið haldið utan við heila klabbið. Getur þetta fólk hreinlega þá meina ég t.d. varaformaðurinn komið í fjölmiðla og sagt:" Við gerðum mistök og búin að greiða peningana til baka og allir ánægðir"

 

 

 

Nei og aftur nei . Nei XD það eru ekki allir ánægðir. Það er deginum ljósara að þetta mál kemst upp út af rannsókn á bankafallinu. Það átti að þegja málið í hel. Okkur hér á jörðinn  eigum kröfu til að komið sé fram við okkur eins og borgarar í lýðfrjálsu landi eiga rétt á. Að það sé ekki verið að dæla í okkur lýgi hraðar en dælur N1 dæla bensíni.

 

Að það sé komið fram við okkur eins og siðað fólk en ekki eins og skynlausar skepnum.með allri virðingu við þær skynlausu   Læt þetta nægja af þrasi í dag en það kemur meir. Kært kvödd og hafið góða og hátíðlega vikubyrjun


mbl.is „Augljós mistök“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"bremsuför"

Hvaða spjald skyldi maðurinn hafa fengið hefði hann skilið eftir"bremsufar"í hvítum buxunum???
mbl.is Bannað að leysa vind
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 16
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband