"Sjóbissnes"

Ég vil taka fram að ég er ekki mikill aðdáandi Jóns Gnarr. En undir niðri dáist ég að þessu höggi hans með blautri tuskunni framan í stjórnmálamenn á Íslandi. Hvar í flokki þeir standa. Og bæði í Borgarstjórn Reykjavíkur og að maður tali nú ekki um alþingi Og ég er hræddur um að flokkarnir verði nú skoða rækilega á sér naflan.

 

 

Reiði hins almenna borgara allavega utan 101 elítunnar er orðin svo mikil og þrýstingurinn hefur hækkað þannig að sem gömlum sjómanni á gufutogara býst ég við útblæstri. Á meðan  þessi helv.... hálv. þarna við Austurvöll eru að samþykkja lög sem banna hálberum stelpum að nudda sér upp við vatnspípu í húsakynnum Geira Goldfinger eða þaðan af vitlausari lög Er bara lengt í hengingarólum skuldara þ.e.a.s almennings. Og ef þessir gömlu flokkar ætla ekki að hreinsa til í sínum rönnum það er ekki von á góðu, Sjáffstæðisflokkurinn t.d. Hvar viðgengist það í heiminum að forustu fólk í flokki tengdist svona allslags brellibrögðum í fjármálum.

 

 

Í hvaða lýðræðisríki hefði það viðgengist að dómsmálaráðherra landsins sæti fastast meðan athafnir eiginmannsins voru undir rannsók. Af hverju í andsk...... getur enginn íslenskur sjórnmálamaður verið þannig heiðarlega innrættur að segja af sér meðan mál tengd honum eru rannsökuð. Og ef saklaus reynist koma þá aftur inn með fullri reisn Þegar svona alger ringulreið og alger trúnaðarbrestur er orðinn á milli meirihluta þjóða og alþingis. (í guðana -bænum hætið þessu "háa alþingi skaftæði") þá er mikill voði á ferð og allslags framboð kæmust inn á þing. Segjum til dæmis að Geiri á Goldfinger (sem er einn skemmtilegasti skipsfélagi sem ég hef verið með) og Sverrir Stormsker stofnuðu til framboðs.

 

 

Ég er alveg viss um að þeir myndu gera mikla lukku. Myndu ná  nokkrum mönnum inn. Næðu odda aðstöðu Sverrir yrði forsætisráðherra og Geiri fengi fjármálin og nátúrlega dómsmálin. Að mínu mati eru þessir menn snillingar í því sem þeir gera, Geiri á eftir að snúa þessu bannlið aftur og enn um fingur sér. Hann er háll sem áll. Og það er það sem okkur vantar nú um stundir. Þessir menn hafa aldrei (allavega ekki svo ég viti) verið með neinn undirlæguhátt gagnvart almenningsálitinu. Sverri væri löngu búinn að segja Alþjóðagaldeyrissjóðnum að éta sk.. og farinn að semja við Kínverja um aðstoð. Geiri væri löngubúinn að semja við Wiesenthal stofnunina ,því nú eru allir gamrir nasistar uppurnir, að elta uppi þessa helv.... drullusokka sem komu landinu á vonarvön og já best að segja ekki meir.,

 

 

Ég sé eiginlega Sverrir fyrir mér koma á Bessastaði á"limmanum"í stuttbuxum með stórcíkar panamahatt og sólgleraugi. Og samtalið yrði ekki á fyrirfram ákveðnum nótum það yrði að hætti Sverris En að öllum fíflsakap slepptum þá ættu þessir  ja maður á eiginlega enginn orð yfir þetta lið við Austurvöll og Tjörnina að taka þetta Jóns Gnarr dæmi af fyllstu alvöru Opna gluggana fyrir frískum vindu svo einkavinavæðingar og bitlinga fýlan fjúki á burt. Mér satt að segja bauð við hræsninni þegar fv ráherra tárfelldu í ræðustól vegna barnaheimila sem ríki og borg rak Af hverju var ekki málið takið fastari tökum er hún var sjálf í ráuneyti. Svo kom gamall þreyttur maður í ræðustól þessarar samkundu og kvartaði yfir að hafa verið flengdur sem krakki ja svei. En ég kveð  eins og Elisabet Jökulsdóttir sagði að góður vinur sinn(minn líka)kveddi sig ávallf Farið á guðs vegum og ávallt kært kvödd


mbl.is Jón Gnarr vinsælli en framsókn og frjálslyndir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Blandað

Það er eins gott að ÁTVR fari ekki að dæmi kjötiðnaðarmannana
mbl.is Vatnsbætt nautahakk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"frítt egg"

Og ég sem hélt að ég og aðrir gamlingar fengum frítt páskaegg þegar ég sá fyrirsögnina.
mbl.is Samþykktu frumvarp um gjafaegg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fortíðin

Verða ofurlaun margra verkalýðsforkólfa og forstjóra lífeyrisforstjóra með í þessu upgöri Gylfi ?

Kært kvödd


mbl.is Skýr krafa um fordómalaust uppgjör
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þreyttur

Steingrímur! Fólk  eru líka þreytt á að husta á að eitthvað eigi að fara að gerast í málum þess en ekkert skeður. Og í guðana bænum hættið að kenna stjórni við alþýðuna.Ávallt kært kvödd
mbl.is Þreyttur á þessu kjaftæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"fóru flestir þangað"?

Ja nú er lag á Læk, Eru flestir andsk..... útrásarvíkingarnir komir í Páfagarð. Ávallt kært kvödd
mbl.is Segir djöfulinn hafa hreiðrað um sig í Páfagarði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Mars 2010
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30 31      

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 537317

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband