"hrjáir þetta lið."

Ætli það sé sólarleysi sem hrjáir þetta lið? Það væri tilraunarinnar virði að draga frá og sjá hvort þetta lið sé skárra í sólskini sem ég stórefast um

Þau hafa aldrei og munu aldrei sjá til sólar hvort sem dregið er frá eða fyrir. Enda þolir sumt af því sem þarna fer fram  ekki dagsljósið hvað þá heldur sólarljós. Kært kvödd


mbl.is Gluggatjöld verði dregin frá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"ættu að vita betur. "

Þetta ætti nú ekki að koma, allavega ekki mér og mínum líkum á óvart. Þessir grautarhausar sem eru við stjórn þessa lands ættu að vita betur. Og þetta með Hvítvínið er bara brandari. Fína fólkið lækkar sig bara um set fer úr Kampavíninu í það

 

Hækkun á brennivíni býður bara bruggi og smygli heim Það er enga stund skotist frá a-evrópu sem flýtur í vodka og cíkarettum inn á einhvern eyðifjörðinn fyrir austan á sæmilega gangóðum lystibát/hraðfiskibát.

 

Lítið eftirlit er með skipum sem slökkva á sjálfvirku auðkenniskerfi skipa, AIS-kerfinu Landhelgis og öll löggæsla er í fjársvelti Manni er nú fjandans sama þó nokkrar flöskur af brennivíni  taki land t.d. í Loðmundarfirði meðan að fg stofrnanir geta varla sinn brýnni nauðsynlegum verkefni. Það er alvarlegra

 

Og hugsið ykkur andsk..... fíflaganginn það eru til fleiri hundruð milljónir sem fara eiga í þann skrípaleik sem framundan virðist vera. Mömmuleikur fyrir 101 liðið. Kært kvödd


mbl.is Minna selt af áfengi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

" íllur ræðari"

"Árinni kennir íllur ræðari"stendur einhverstaðar Það sem  hrjáir íslenskt þjóðfélag aðallega í dag er að það skuli alltaf vera smíðaðar nýar árar fyrir þennan ræðaralýð. Kært kvödd


mbl.is Klaufaskapur að skrifa undir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Smá-saxast"

Er farið að "Smá-saxast á limi hans Björns míns" hjá VG Að maður tali nú ekki um innyflin.Og fleiri afsaxaðir limir eru sennilega í farvatninu. Kært kvödd
mbl.is Formaður svæðisfélags VG hættur í flokknum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"vilja þjóðarinnar "

Ég hef enga skoðun á ágæti þessa svokallaðs stjórnlagaþings en ég hef sterka skoðun á því ef henda á aftur fleiri hundruð miljónum í svona klúður.

 

Jóhanna talar með digurbarkalátum um vilja þjóðarinnar Segir 35,95% af kosningabærum mönnum eitthvað um vilja þjóðarinnar?. Ég held að vilji þjóðarinnar sé mikið heldur að Jóhanna & co láti sig hverfa. Hættið þessum 101 fíflalátum og látið heldur aldraða og öryrkja njóta þessara peninga.

 

Allir alþingismenn upp til hópa ættu að skammast sín fyrir meðferðina á öldruðum fv verkamönnum bændum og sjómönnum sem komu löppunum undir það hyski sem nú þykist stjórna þessu landi Kært kvödd


mbl.is Óheppilegt að skipa fulltrúa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Feb. 2011
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28          

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 16
  • Frá upphafi: 537325

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband