Æsifréttamennska

Ég,var satt að segja steinhissa yfir fréttunum á Stöð 2 í kvöld.Þegar fréttin um M/S"Axel"kom var fullyrt að skipstjórinn myndi missa skipstjórnarrétindi sín út af gáleysi við stjórn skipsins.Hvaðan hefur Fréttastofan þetta.Ég vil skýringu á hvaðan fréttastofan hefur sínar svokallaðar heimildir.Kemur þessi frétt frá Landhelgisgæslunni?Ég veit ekki til að það sé búið að halda sjórétt í málinu.Ég á bágt með að trúa að hinir ágætu starfsmenn"Gæslunnar"láti svona frá sér fara.

 

Ég satt að segja bíð eftir yfirlýsingu frá yfirmönnum Gæslunnar um að það séu ekki þeir sem eru þessi"heimild".Og ég hef litla trú á að þetta komi frá útgerðinni.Skipstjórinn er rétt kominn í land eftir örugglega, hræðilega lífsreynslu og varla búinn að jafna sig á hlutunum þegar þessu er"dengt"yfir hann.Hverskonar fréttamennska er þetta.Hver gefur fréttastofunni dómsvald í málinu.Hvaðan í fja...... hafa þeir það t.d. að ekki hafi verið gildandi sjókort.Ég veit ekki betur en að skipstjóri sé bundinn hálfgerðum þagnareiði þar til eftir að eftir sjóréttin að beiðnum tryggingarfélaganna.Ég man að ég heyrði í einni af fyrstu fréttunum af þessu óhappi að ekki lægi ljóst fyrir hvort"drepist"hafi á aðalvélinni fyrir eða eftir strandið.

 

Ég hef aldrei heyrt frekari skýringar á því.Eins og ég skrifaði um í gær þá eru siglingar við íslensku ströndina enginn barnaleiku.Menn skulu athuga að skipstjórinn þarf stundum að taka sína ákvörðun á broti úr sekúndu.Og svo er ekkert grín að vera með menn sem maður getur ekki stólað 100% á.Vera kannske með hrædda menn sér við hlið,Ég hef svolitla reynslu af að sigla með útlenska menn hér á ströndinni.Og Hornafjarðarsvæðið er eitt af því versta hér við land.Halldór Nellet hinn mjög svo yfirvegaði og dugandi skipsherra og yfirmaður Aðgerðarsviðs Gæslunnar benti á hina miklu brotalöm sem komin er í mönnun á íslenskum kaupskipum.Ég skrifaði í gær að"útgerð"skipsins hefði ekki viljað íslenska menn en þar mun ég hafa haft rangt fyrir mér.Þeir hafa víst reynt en ekki fengið þá..En ég held að fréttastofa Stöðvar 2 ætti að biðja skipstjóran afsökunnar og láta hann svo í friði.Allavega fram yfir Sjóréttinn,þegar öll gögn í málinu eru kominn fram.

 

Og fréttastofan ætti að temja sér aðgætilegri fréttaflutning.Fréttastjórinn skal ekki halda þótt hann hafi verið aðstoðarmaður annars af 2 óvinsælustu forsætisráðherrum þjóðarinnar að hann getið valtrað yfir fólk með skítugum skónum yfir fólk eins og fyrrgreindir 2 ónafngreindu menn gerðu.Fólki sem jafnvel er nýkomið úr miklum hrakningum og hefur kannske ekki jafnað sig á hlutunum.Það er engin barnaleikur að hafa ábyrgð á 9 mannslífum auk síns eigin og fulllestuðu farmskipi,Þó að fréttamenn skilji ekki ábyrgðina á mannslífunum ætti þeir að skilja hana á verðmætunum.

 

Maður sá hve eigandanum var brugðið og hve fegin hann var að heimta menn sína og skip úr helju.Hvernig haldiði að skipstjóranum hafi liðið.Ég vil óska honum og fjölskyldu hans til hamingu með farsælan endir á hættulegum aðstæðum.En segja við fréttamenn stöðvar 2 skammist ykkar!Mér finnst þetta er æsifréttamennska af verstu gerð Kært kvödd


mbl.is Skýrsla tekin af skipverjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Axel

Eitthvað er það sem segir mér að útgerð skipsins hafi tapað miklu fé,vegna þess,að vilja ekki hafa íslenska menn í áhöfn.Mér var sagt,að um daginn hafi útlenskur skipstjóri gefist upp.Þetta er er ekki svona lóðs í lóðs starf sem margir af þesssum mönnum eru vanir.Íslenska ströndin er ein af þeim erfiðustu í heimi.Og hér þarf vana menn til að sigla ef fara á inn á hverja krumma.... sem stundum er sagt.Þessu vönu mönnum fer nú að fækka hér á landi.Í Noregi þarft að taka lóðs ætlir þú að sigla um ströndina þar.Þar er þér bara ekki hleypt inn í landhelgina nema að uppfylla ströngum skilirðum.Og að skipstjóri skuli ekki getað treyst á vélstjóra sinn,jafnþýðingarmikinn maður um borð og vélstjórinn ,er alveg út í Hróa eins og sagt er í dag.Ég hefði ekki vilja vera í sporum skipstjórans sem hefur haft nóg á sinni könnu.Kært kvödd
mbl.is Axel nálgast Akureyri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vax á skyrtunni

 

Sigurjón Þ. Árnason, bankastjóri Landsbankans, velti þeirri spurningu upp á fundi Samtaka atvinnulífsins um komandi kjarasamninga og horfur í efnahagsmálum hvort hugsanlegt sé að hægt sé að bjóða upp á það fyrirkomulag að neytendur geti einfaldlega valið þá mynt sem þeir nota í sínum daglegu viðskiptum.

Ég er ekki,og verð aldrei neinn vitsmaður um peningamál (né annað) en ég spyr hvað liggur að baki þessum veltingi á spurningunni.Eru bankarnir ornir óþolinmóðir að klófesta peninga þess veslings fólks sem þeir eru að að ná í sínar helgreypar.með húsnæðislánasvikunum.Eru þessar hugleiðingar bankastjórans ekki bara byrjun á braski bankana með galdeyririnn.Svo fá þeir að ráða genginu og hagræða því að eigin vild.Mér er hugsað til myntbreytingarinnar þegar"grósseraliðið"velti sér í miljónaþjófnaði af almenningi þegar núllin 2 voru tekin af krónunni.Ég bara "velti" þessu upp.

 

Svo meiri veltingur.Þetta segir í frétt frá Samtökum Atvinnulífsins""Samtök atvinnulífsins telja að almennar launahækkanir séu ekki réttlætanlegar við núverandi aðstæður í þjóðfélaginu. Heldur sé viðfangsefni kjarasamninga nú að hækka lágmarkslaun umtalsvert og koma á launaþróunartryggingu fyrir þá sem hafa setið eftir í launaskriðinu. Það sé gert með því að skoða hvern einstakling fyrir sig.Þetta kom fram í máli Vilhjálms Egilssonar, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, á fundi um komandi kjarasamninga.""

Enn og aftur eiga launþegar að taka á sig afleiðingar af peningabruðli í fjárfestingum þeirra sem í dag,með svo fínu orði eru kallaðir"fjárfestar"En voru kallaðir "braskarar"þegar ég var ungur.En það er nú svo langt síðan.Það er með einsdæmum hve eftirlitslaus miljónaaustur úr ríkissjóði í sérstök"gæluverkefni"ráðherra.Milljónaaustur fyrrgreindra"festa"í munað og ósóma hefur engin áhrif á þessa svokallaða"verðbólgu"En ef þessi sauðsvarti rumpulýður,sem hinn almenni verkamaður er í hugum hinna stórhuga fjárfesta biður um ögn meira af salti í hafragrautinn sem hann verður að gera sér bragðlausan að góðu hvurnsdags þá hleypur andsk..... í spilið og allt fer heim til hans.Já svo er forsætisráðherran og sennilega allverulegt fylgdarlið með honum í Svíþjóð að kenna Svíum góðæri.

 

Hann ætti að dru..... heim og þora að taka í hnakkadrembið á fyrirrennara sínum og lærifaðir.Sem notabene ekki ómerkari maður fyrrgreindur Vilhjálmur vill kenna að hluta til,ásamt verkalýðnum um ástandið og ástæðuna til þess að ekki sé hægt að bæta kjör hins almenna verkamanns nema að hluta.Já svo toppum við listan hvað velmegun varðar.Höfundar skýrslunar hefðu átt að heimsækja "sjúkrahótel"Rauða Krossins og nokkur dvalarheimili aldraða og kynna sér ástandið á kjörum fólks sem þar býr.Hvernig þetta fólk var raunverulega féflett af stofnunum ríkisins.Hreinlega stolið af því innleggi þess í formi skatta og álaga fyrr á tímum.

 

Hitta fólk inni á Dvalarheimilum sem skammtaðar eru nokkrar kr á mánuði svo að það getir keypt"gott í poka"svo það geti boðið afkomendum barna sina ef þau skildu hafa nennu til að heimsækja það á sunnudögum.Þessum nú týnda hlekk milli torfkofanna og einbýlishallana sem þeir sem sto... hafa nógu miklu búa í dag."Passaðu að ekki slettist vax á skyrtuna þína" er þjónustupía látin segja við húsbónda sinn í nýbyrjuðum enskum þætti í RÚV þegar hann tekur slökkvistykuna úr hendi hennar til að slökkva kertaljósin svo hún geti hjálpa frú hans að hátta.Er þetta ekki táknrænt í dag"Passaðu að það komi ekki vax á skyrtuna þína" Kært kvödd

 


Réttu megin við borðið

 

Hreinum móðgunum við þann hóp sem þarf að hafa samskifti við þessa ríkis reknu maf.. sem Tryggingarstofnum Ríkisins heitir,ætlar ekki að linna.Þann hóp sem er þess,hliðar við borðið sem fólk þarf að gera grein fyrir hverri krónu sem því áskotnast.Og eins og ég hef stundum tekið sem dæmi, verður hreinlega að þola að"lýst"sé upp í rassaboruna á því ef þar skildi leynast 1 eða 2 þúsundkallar sem því hefur áskotnast ólöglega að mati stofnunarinnar(þ.e.a.s ekki gefið það upp)

 

Og hefur kannske ætlað sér að kaupa"valið"lambakjöt eða jafnvel Lambahrygg(ja bruðlið í þessu pakki!!!!)í helgarmatinn.En svo er tannlæknir (einn úr þessum málsmetandimanna hópnum sem á fyrir hryggnum og vel það)grunaður um 200 miljóna krónu svik.Ég endurtek 200 miljóna krónu svik.Og virðist hafa geta með sviksamlegum hætti hafa leikið lausum hala í kerfinu í fleiri ár allt að 30.En 14 ár eru síðan fyrst var farið að gruna manninn.14 ár og ekkert aðhafst eða lítið.Og tryggingarsérfræðingurinn Pétur Blöndal steinheldur kja....

 

Ég er vissum að allt lím í heiminum hefði ekki geta komið honum í rétt hlutföll aftur hefði þetta verið manneskja úr"Jaðarshópnum"Ef eldriborgari,öryrki eða einhver úr þessum aumingahóp að hans meiningu hefði komist upp með svona svívirðu.Það hefði sko kallað á utandagsskrárumræðu í hinu háa Alþingi með umræddan Pétur sem frummælenda.En sem betur fer var þessi góði tannlæknir réttu megin við borðið.Mér finnst þetta mál svo skammarlegt fyrir Samfylkinguna(allavega Alþýðuflokks hluta hennar) sem hefur að mér best vitandi stjórnað þessari stofnun frá stofnun hennar 1936

 

Haraldur Guðmundsson sem stjórnaði henni 1938- 1957.Sigurður Ingimundarsson(faðir Jóhönnu nv ráðherra)1970-1978.Eggert G Þorsteinsson 1979 - 1993 og Karl Steinar Guðnason 1993-???? voru/eru allir yfirlýstir Alþýðuflokksmenn.Um hina hina 4 sem gengt hafa forstjórastarfinu er ég ekki viss.Mér finnst þetta til svo stórrar skammar fyrir ráðamenn að setja beri Karl Steinar af sem forstjóra.

 

Mér er alvega sama þó svo hann hafi gert athugasemd við störf þessa læknis.Þá átti hann að ganga eftir því með sömu hörku og beitt er við fólkið hinumegin borðsins að afgreiða þetta mál en ekki leyfa hinum grunaða tannlækni að"sprikla"að vild í 14 ár. eftir að grumsemdir vöknuðu.Ég minnist orða hans,þegar hann sagði hreykinn að"með þessu kerfi náist bófarnir"Þ.e.a.s þessu "rassborukerfi"En í þessu máli sem flestum öðrum málum sleppa stæstu"bófarnir"Og ekki sjáanleg nein breyting þar á

Nafni hans Steinn Steinar kvað eitt sinn:

""Það er sorglegt að heyra,þó sérhver maður/fyrir svo og svo miklu kaupi vinni/að hundrað manna í heiminum deyja/sem hafa ekki neitt fyrir útför sinni/

Já viðsjált er hlutskifti velstæðra manna,/og von er að margur upp hafi flosnað,/þegar ræflarnir lifa og ræflarnir deyja/og ræflarnir jarðast á þeirra kostnað/"""

Kært kvödd

 

 

 


Þjófahyski

Ég,frekar en sennilega Pétur Blöndal og hans meðreiðarsveinar næ bara ekki upp í nefið á mér,hvernig datt manninum þetta í hug,hugsa sér stela HEILUM pela af vodka.Ég má ekki mæla.

Stæli ég glóandi gulli
úr greipum hvers einasta manns
þá væri ég örn minnar ættar
og orka míns föðurlands.

Þetta sagði skálið frá Skáholti sem sennilega hefur haft svipað vandamál og þessi bansetti þjófur þ.e.a.s alkahólisma.

Það skulu sko ekki liðnir neinir "steluþjófar"á landi hér að minsta kosti ekki menn sem hafa neinn tilill,sem eru bara óbreittir Þjófur.Í"grjótið"með svona lýð.Maður getur verið borgari með titil t.d.ráðherra og óbreittur borgari.Svo einfalt er það.Kært kvödd


mbl.is Mánaðar fangelsi fyrir að stela vodkapela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Suðurhafseyjar í norðri

 

Eitt er það sem er ókeypis hér í heimi.Það eru dagdraumar.Það kostar ekkert að sitja og láta sig dreyma.Og það kostar ekkert að setja þá á blað.En maður tekur kannske þá áhættu ef maður gerir það,þá á maður á hættu að koma upp um hvað maður er heimskur.En ég læt slag standa með þann part af málinu.Ég bý í þeim fallega stað Vestmannaeyjum..Þar hef ég búið í bráðum 3 ár.

 

Ég kom hingað fyrst til einhverrar veru 1959.Var hér svo öðru hvoru mismunandi langan tíma í hvert skifti.Hér hefur mér alltaf fundið mig velkominn.Þegar ég lenti í veikindum fyrir fáum árum þá búsettur erlendis fór ég að hugsa hvar á Íslandi ég ætti að búseta mig í ellinni.Í Reykjavík gat ég ekki hugsað mér að búa.Ég hitti fermingarsystkini mín 2002 uppgötgvaði ég að bara 3 af þeim bjó á þeim stað við ólumst upp í.Svo fór ég að hugsa"þú átt miklu fleiri kunninga í Vestmannaeyjum en þar".Svo ég valdi Eyjarnar og sé ekki eftir því í dag.

 

En þetta átti nú ekki að vera neitt æfiágrip heldur um dagdrauma eða heldur um það sem ég vildi sjá að gerðist hérna í Eyjum.Hér eru við höfnina stór samliggandi hús sem eru að mínu mati að grotna niður.Einhver starfsemi mun þó vera í hluta af þeim.En mér finnst þessi hús eins og útlit þeirra í dag er vera til mikillar óprýði fyrir annars fallega höfn.Þetta eru hús er áður hýstu starfsemi Fiskiðju Vestmannaeyja og Ísfélags Vestmannaeyja

Þetta eru hús með merkilega sögu og eiga allt annað skilið en að verða rifin sem einhverskonar"niðurníddir húskofar"Þessi hús eiga það inni,að þeim sé sýndur sómi.Að eitthvað sé gert fyrir þau.Það kemur sennilega aldrei til að starfsemi lík þeirri sem í þeim var verði endurvakinn.En því ekki að byggja þau upp með aðra starfsemi í huga.Að gera hluta af  þeim upp sem hótel t.d vestara Fiskiðjuhúsið hafa svo allslags líkamsrækt í því eystra.Það er til staðar samgangur á milli húsanna sem hótelgestir gætu notað til að komast í "ræktina"Þarna mætti hafa sundlaug allslags leirböð sauna og svo fl og fl í þeim dúr

 

Ísfélags húsið gæti húsað Sjóminjasafn sem komið yrði á stofn og reynt yrði að byggja upp með dugnaði.Safnið sem næði yfir allan skala sjávarútvegs og yrði rekið í sambandi við hótelið Hér í Vestmannaeyjum liggja nú að minnsta kosti 4 skip sem mætti athuga með einhverskonar verndun.Það er hafnarbáturinn"Léttir"sem mér finnst enginn spurning sé um að friða og vernda.Gera hann aðgengilegan fyrir ferðamenn og aðra áhugasama.Birta myndir um sögu hans,Spila brimhljóð og vélanið af"bandi um borð.Svo er það"Sigurður"sem er að vísu allbreittur frá sínum uppruna en íslenskir ráðamenn ættu að sjá sóma sinn í að byggja um og í upprunalegt horf."Sigurður"hefur það sögulega gildi að vera einn af  síðustu"síðutogurum"sem byggðir voru í Þýskalandi ef ekki í Evrópu..En hann varð byggður 1960.Síðan er það"Valberg"nú VE 105.Sem upphaflega hét"Guðbjartur Kristján"ÍS280.En bar lengst af nafnið"Víkingur III"En þessi bátur er sá síðasti sem er óbreyttur af þeim síldar og vertíðarbátum sem byggðir voru í Noregi 1960-70.,

 

Síðast er það"Júpiter"sem einnig er breittur síðutogari byggður í Þýskalandi 1956."Sigurð"á tvímælalaust að endurbyggja en hvort hann á að tilheyra Sjóminjasafni í Vestmannaeyja eða Reykjavík það veit ég ekki en hann á að vera safn og útbúinn sem slíkur,innangengt um hann allan með vélarhljóð í vélarúmi og tölvustýrt Panoramaútsýni í brú."Léttir "á hvergi heima annarstaðar en hér í Eyjum.Hin skipin,Júpiter og Valberg ætti að koma í upprunalegt horf(þarf ekkert að gera við Valberg) Skipin mætti nota hér í Eyjum sem söfn á veturna en svo mætti nota skipin til skemmtisiglinga t.d.í sambandi við hótelið á sumrin.

 

Lagfæra skipin setja bekki á dekkin og sigla síðan í útsýnisferðir kring um Eyjarnar og austur að Portlandi.Svo eru hér í Eyjum margar fallegar gönguleiðir góður golfvöllur og kyrlátt bæjarlíf.Hér er margt sem sæmilega velstæðir útlendingar hafa áhuga á að nota sér.Friður,ró,fallegir útiverustaðir.Það verða vonandi stórbætur á samgöngumálum Eyjanna,hvort það heitir Bakkafjara,nýtt skip á núverandi leið Herjólfs,göng eða hvað það kemur til með að vera.En þá ætti þetta að vera orðið að veruleika.En þetta er nú bara hugrenningar gamals karlfausks sem hefur lítið sem ekkert annað að gera en láta sig dreym.Kært kvödd


Jaðarinn og sprungin dekk

 

Nýtt orð virðist vera að skjóta rótum í okkar"ylhýra máli."Jaðarsfólk".Þetta á eftir mínum skilningi að tákna fólk sem ekki býr í einbýlishúsi á ekki,að minnsta kosti Jeppling.Fólk sem einhverra hluta vegna  verður að treysta á"gafmildi"ríkisjóðs í formi bóta hvort er um að ræða öryrkja,gamalmenni eða fólks sem ekki hefur tekist að safna að sér auði.

 

Fólki sem ekki á bróðir eða vin sem ráðherra eða vin í ríkisgeiranum sem getur"reddað"þeim um"smáaura"ef illa gengur.Fólki sem ekki er boðið í kokteil ef einhver af menningarvitunum dettur í hug að opna kja..... af hvaða tilefni sem það nú er er.Fólk sem ekki hlustar á Kauphallarfréttir eða gengi hinna ýmsu hlutabréfa.Já fólki sem hefur verið ýtt út á ystu nöf þessa þjóðfélags.Fólki sem eiginlega er litið á sem:rumpulýð og and....... afætur.Fólki sem samt,með sínu,núna bognu og ónýtu baki kom þessum"kauphallarjörlum"í þá stöðu sem þeir eru í.Fólki sem lætur freistast að trúa lygalepjunni sem lekur út úr kjöf... á frambjóðendum fyrir kosningar og kýs þessa flokka sem,mikið rétt eru hættir að kenna sig við"alþýðuna" en kenna sig núna við "grasrót" og einhverjar fylkingar sem nú virðast fjarlægast hina virkilegu alþýðu.

 

Þessir stjórnmálamenn virðast hafa virkilega slæmt minni og standa aldrei við orð sín.Það vantar ekki að stór orð og það er barið í borð á Alþingi og  plöggum veifað.Það er von að Ellert B Schram svona sjálfskipaður talsmaður"eldri borgara" og Össur Skarphéðinsson ráðherra iðnaðar státi sig af afrekum sínum.Yfir þessum fíflalögum þar sem samþykkt hafa verið um afnám tengingar tekna 70 ára og eldri við elli og lífeyrissjóða greiðslna.Eins og segir í "Þingvalla"samsuðu"stjórnarflokkana:""" Tekjutenging launatekna 70 ára og eldri við lífeyri almannatrygginga verði að fullu afnumin sem og skerðing tryggingarbóta vegna tekna maka. Skoðað verði hvort undanskilja megi hluta af lífeyrissjóðstekjum eldri borgara skerðingum í almannatryggingakerfinu. Jafnframt skal stefnt að því að ríkissjóður tryggi ellilífeyrisþegum lífeyri að lágmarki 25 þúsund krónur á mánuði frá lífeyrissjóði. Almennt skerðingarhlutfall í almannatryggingakerfinu lækki í 35%."""  ""Ja miklir menn erum við Hrólfur minn og fallega pissar Brúnka""

 

Það á nú við um þessa herramenn.Hvernig dettur mönnum í hug að manni/konu sem hættir að vinna 67 ára vegna þessarar íllræmu tekjutengingar gangi vel að fá vinnu kannske á allt öðrum vettfangi 3 árum seinna.Bara t.d.Íslenska ríkið ræður ekki menn 70 ára og eldri.Þeir sem lafa í vinnu hjá ríkinu verða að hætta 70 ára hvað sem tautar og raular engin undanþága þar.Það er kannske ekki von um að Ellert viti þetta en Össur sem fv og nv ráðherra ætti að vara fullkunnugt um það.Ég vildi biðja þessa menn að benda mér á einhvern atvinnurekanda sem tæki þetta fólk í vinnu.Mér finnst þessi ólög móðgun við eldri borgara.Taka á þessa tekjutengingu af og ekki seinna en nú.Þá hefðuð þið Samfylkingarfólk í ríkisstjórn eitthvað til að hæla ykkur af.

 

Ég vil benda þessum herramönnum að fara niður á"Sjúkrahótel"Rauðakrossins í hádeginu og hlusta á fólkið þar hvernig virkilega er farið með þennan"Jaðarshóp í dag..Svo er það annað og kannske enn meira órættlæti sem viðgengst.Það er þegar öryrkji verður 67 þá getur hann hrapað niður í bótum.Hvað gerir það að verkum að öryrki þarf minni peninga 67 ára en 66.Einn góður félagi minn sagði mér af þegar hann missti fótinn út af veikindum þá var hann metinn með 75 % örorku svo einhverjum tíma seinna með 0%.Sem sagt fulfrískur með sinn"staurfót".En hann fékk nú einhverja úrbót á sínum málum við eftirgrenslan.En maður spyr sig eftir hvaða happa og glappa aðferðum fer þessi glæ..stofnun Tryggingarstofnun Ríkisins eiginlega.

 

Og svo á "mannvinurinn"Pétur Blöndal"að endurskoða heila klabbið.Ég segi nú ekki annað,en ég vona að ég verði komin í annan heim.Hvort hann verður í hinu efra eða neðra þegar þeirri endurskoðun líkur og hans tillögur um óréttmætar ölmusur taka gildi.Svo áfram með óréttmætið.Hvað lengi ætlar hinn svokallaði"nýi meirihluti"í Reykjavík að styðja sig við stolina hækju.Furðuleg ummæli Margrétar Hermannsdóttir í Fréttablaðinu þ 15-10 síðastliðinn:

""Það er mjög jákvætt að kjörfylgi flokkana hafi ekki minnkað.Hún segist ekki samsama sig sig fylgi Frjálslynda flokksins,en rúm þrjú prósent styðja Frjálslynda og óháða.Enda er ég farin úr þeim flokki.""Maður hlýtur að spyrja sig:"er þetta ekki valdagræðgi af 1stu gráðu?".Þarna var hún að svara blaðamanni vegna skoðunnarkönnunar sem sýndi að"Frjálslyndir og óháðir"sem fyrgreind Margrét bauð sig svo sannarlega fram fyrir hrapaði úr 10% við kosningar niður í 3,1% í skoðanakönnun.Hverskonar stjórnmálamaður lætur svona vitleysu út úr sér.Ég skil ekki Svandísi Svavarsdóttir(sem ég var farin að halda að væri upprennandi,átreystandi stjórnmálakona,en sem ég er nú farinn að efast um)skuli styðja sig við þessa hækju,sem hefur engan stuðning(eftir ummælum hennar sjálfar eftir umrædda  skoðanakönnuna)

 

Einu sinni var ég á ferðalagi í Cítróen bíl.Það fór svo fram úr okkur bíll og farþegi í þeim bíl sem benti á afturenda á okkar bíl.Þá lagði svartan reyk aftan úr bílnum okkar.Svo kom í ljós að við hefðum keyrt á sprungnu dekki í einhvern tíma.En þessi Cítróen sem við vorum á á víst að hafa haft þá eiginleika að"tékka"sig upp sjálfkrafa ef sprakk á einu hjólinu.Mér finnst"nýi meirihluti"keyra á sprungnu hjóli.Og hefur kannske aðlagað sig að sprungna dekkinu en það gengur ekki til lengdar.Mér finnst satt að segja byrjað að rjúka.Og viss er ég nú um að oft,orðheppinn faðir Margrétar hefði kallað þetta"já ef þú þorir ekki að segja það skrípaleikur"En ég er nú bara einn nöldrarinn úr"jaðarshópnum"sem enginn tekur mark á.Kært kvödd.


Starfsheiti og knattspyrna

 

Mikið finnst mér þetta góð hugmynd hjá Steinunni Valdísi að vilja breyta starfsheitum á því fólki sem fer fyrir svokölluðum ráðuneytum.Taka forskeytið"ráð"af,já og endilega þessu herra.Því að  það er eins og fólki í þessum embættum haldi að þessi nöfn gefi þeim t.d leyfi til að ráðskast með fé almennings eins og þeirra eigin.Og svo séu það sé herrar yfir sama fé.

 

Í starfsheitum þessum mega orð eins og ráð,herra/frú,sýsla ekki finnast.Svo að þetta lið liti ekki svo á að það megi ráðskast,eða sýsla með og/eða telji sig hafa einhverskonar einkaherradóm yfir sjóðum ríkisins,þegar gamlingjum,öryrkjum og annarskonar aumi..... hafa fengið það sem þessum ráðamönnum/konum þykir nægja að henda í þá.Að maður tali nú ekki um það sem þessum"rumpulýð"tekst að svindla út úr kerfinu þrátt fyrir"rassboruleit" TR.En í dag virðast þessu fólki þ.e.a.s forsvarsfólki ráðuneyta telji sér,allir vegir færir í þeim efnum.Samanber nýleg dæmi um t.d.Grímseyjarferjumálið og söluna á flóabátnum Baldri.Og mér finnst ráðamenn skulda Grímseyingum afsökunarbeiðni,ef ekki skaðabætur fyrir hvernig þessi fallega eyja og hið dugmikla fólk sem þar býr hefur verið dregið inn í eitt mesta"skítlyktarmál"seinni tíma.

 

Ég vona bara að orðheppinn maður finni gott orð sem passar svo að þessari frænd og vinaútlátum linni.En sennilega breytist það ekki ekki þó starfsheitum verði breitt en það gæti verið þess virði að prófa það.Mér hefur alltaf funndist þetta frú ráðherra og frú forseti háff ankannarlegt.Að maður tali nú ekki um"kynvilluna"á hinu háa Alþingi þegar t,d Sturla Böðvarsson er ávarpaður"frú forseti"og Ragnheiður Ríkharðsdóttir"hr forseti"en það getur kannske stafað af því hve sumum þingmenn/ráðherrum er illa við að líta um öxl t.d vegna svikinna kosningaloforða og stórra orða viðhöfðum við minni völd.En ég hjó eftir því hjá Steinunni í"Kastljósi"gærkvöldsins,að hún vill meina að starfsheitið"hjúkrunarfræðingur"hefði komið vegna aðkomu karlmanna að stéttinni.en ég hét að það hefði tilkomið þegar námið komst á háskólastig.

 

Ég man eftir orðinu hjúkrunarmaður hér í"den"en það var kannske þegar talað/skrifað var um stríð.En orðið er kannske of víðtækt í dag.Sama með starfsheitið"fóstra"og/eða"leikskólakennari".Ég hélt að heitið hefði breyst við tilkomu meira náms í greininni.Og í sambandi við heitið"flugfreyja"hélt ég að orðið"flugþjónn"hafi alltaf fundist.Og ef minnið bregst mér ekki of mikið,þá var okkar ástkæri leikari Gunnar Eyjólfsson"flugþjónn"hjá Pan Am á sínum yngri árum.En ég er innilega sammála Steinunni um að þessum nöfnum verði að breyta.En einhverstaðar stendur að"hinir vitru vilja vita,en þeir heimsku vilja tala".Það á kannske við mig í þessu tilfelli.

 

En svo að öðru.Mér finnst það,með að segja að við höfum aldrei unnið dani í fótbolta bara hálfur sannleikur.Í ágúst 1919 kom"Akademisk Boldklubb"í heimsókn og lék hér 5 leiki.Sá 1sti var við leikmenn úr knattspyrnufélögunum Val og Víking leikur endaði með 7-0 fyrir AB.Næsti leikur var við KR sá leikur fór 11-2 fyrir AB. Um þann leik segir Morgunblaði frá þessum tíma""AB lék eins og englar.Þeir eru fljótir að taka knöttinn og vita hvert þeir eiga að sparka honum.Þar er styrkurinn og það er galdurinn sem landinn þarf að læra""(höfum við gert það????)

 

Næsti leikur var við Fram,sá leikur fór 5-0 fyrir AB.Næsti leikur var svo við úrvalslið allra Reykjavíkurliðanna.Honum lauk,og haldið ykkur nú.Úrvalið vann 4-1.Um leikinn segir Mogginn""Liðið,sem landinn tefldi fram í gærkveldi er óefað það besta og samleiknasta sem við höfum á að skipa.Og knattspyrnumennirnir okkar léku í gærkveldi svo vel,að þeir hafa ekki gert í annað skipti betur.Tryggvi(Magnússon?)gekk meiri berkserksgang en hægt er að búast við af jafn smávöxnum manni,og var hann átrúnaðargoð áhorfenda.

 

Pétur Sigurðsson skipti um ham áður en hann fór út á sviðið á sunnudaginn var og í sama hamnum var hann í gærkveldi,og munu allir óska,að hann fari aldrei úr honum framar.Gísli Pálsson var annar bakvörður og mátti heita ágætur.Og Stefán(Ólafsson)markvörður gerði mörg tákn og stórmerki.Óskar(Norman)var og fylginn sér.Kristján(Gestson)sömuleiðis.Friðþjófur(Thorsteinsson)virtist hálflatur í fyrri hálfleik en herti sig er á leið.Og Róbert Hansen var honum góður nágranni""Fyrir leikinn við úrvalið,var dönunum boðið í útreiðartúr suður fyrir Hafnarfjörð að Straumi (Álverið við Straumsvík)Lítið seinna segir blaðið:"En ótalið er ennþá það,sem mestu réði um úrslit leiksins,og heita það harðsperrur"Svo enn seinna segir í Mogganum:"Þetta hreif og í fyrrakvöld þegar þeir komu úr Firðinum voru þeir allir liðamótalausir um hnén og það sem snert hafði hnakkinn,eins og glóandi eldhaf.Liðamótin voru ekki fundinn aftur og eldurinn ekki slokknaður í gærkveldi.Og undir þeim kringumstæðum er ekki gott að sparka bolta"""

 

Síðasti leikur dananna var svo við sama lið.Þe,a,s úrvalið en þeim leik lauk með dönskum sigri 7-2.Enda var þeim þá batnað í rössunum.Þessari heimsókn dananna endaði með 31- 8 dönum í vil Það væri kannske athugandi fyrir KSÍ næst þegar danska landsliðið kemur hingað að sleppa kokteilnum og setja knattspyrnumennina á bak á hastra hesta fyrir leikinn.Gera Einar Bollason að yfirhestahirðir KSÍ.Þetta er ekki sagt Einari til neinnar minnkunnar en það hljóta að finnast hastir hestar á landi hér.Og ég tel Einar vel hæfan til að finna þá fyrir KSÍ.En það er gaman að velta fyrir sér skýringum blaðamannana á þessum árum.Ekkert minnst á"strákana okkar"eða bara strákana.Bara hálfur sannleikur sagði ég vegna þess að þetta íslenska úrvalslið eins og það var kallað var einfaldlega Landslið okkar þegar þetta gerðist fyrir tæpum 90 árum,en aftur móti léku þeir á móti dönsku félagsliði.Það sem sett er í sviga hér á undan eru athsemdir mínar.Kært kvödd


Allt OK hvað annað

Forsætisráðherra á ekki von á öðru en þetta verði staðfest af Ríkisendurskoðun"duft af trussel"på dansk gæti maður spurt sig.
mbl.is Unnið faglega á Keflavíkurflugvelli eftir settum reglum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingar og fl

 

Enn og aftur og aftur og enn,hefur það skeð að einn af svokölluðum ráðamönnum þessa lands koma fram fyrir alþjóð og  ljúga vís vitandi.Hvaða heilvita maður trúir því að ráðherra fjármála hafi ekkert vitað af fjármálabraski bróður síns.Hvað ætlar þessi ráðherra að ganga langt í óvirðingu eins og ég vil kalla það við almenning og frekju í starfi sínu sem gæslumaður ríkissjóðs Íslands.

 

Hvenær ætlar hann að skilja það að hann er að vinna fyrir almenning sem slíkur.Ríkissjóður er ekki hans einkasjóður hans eins og hann virðist allavega stundum halda.Svo verðu hann bara reiður ef þeir sem eiga að hafa eftirlit með störfum hans og veita honum aðhald í þeim eins og t.d.fjáraustur hans í Grímseyjarferjuhítina.Eða hvernig hann brást reiður við spurningum fréttamanns um braskið í sambandi við"Keflavíkurflugvallaríbúðirnar"Hvort fólk í hans ætt mætti yfirhöfuð bara ekki fjárfesta í neinu,ja fyrr má nú vera hrokinn í manninum.

 

Ég fylgdist aðeins með umræðunni á Alþingi og með málfluttingi Atla  Gísla þingmanns Vg.Þó ég sé ósamála Atla í stjórmmálum á flestum sviðum fannst mér hann standa sig vel og svör ráðherra út í hött.Hræddur er ég um að einhverstaðar í siðuðum löndum(mér finnst lönd dálítið missiðuð)hefði einhver verið látinn"hirða pokann"strax eftir Grímseyjarferjuhneykslið þar sem ráðherran jós úr sjóði almennings án heimildar.Ok það er kannske allt í lagi að bjarga illa stöddu atvinnufyrirtæki.

 

En mér finnst einhvern vegin að þessir svokölluðu ráðamenn verði að virða lög og reglur.Mér sem og fleiri ellilífeyrisþegum í gjörgæslu Tryggingarstofnunar,þar sem vakað er yfir hverri krónu sem við gætum kannske innunnið okkur aukalega gremst svona háttalag og austur peninga í"gæluverkefni"sumra ráðherra..Og ef einhverjum af okkur yfirsést að að gera skilmerkilega grein fyrir hverjum eyri þá er hinn sami  úthrópaður sem þjófar og svikarar."Hverskonar"rumpulýður"eru þessir"aumingar"sem eru að reyna að svindla svona á "Kerfinu"má eiginlega heyra af vörum sumra ónefndra þingmanna.Og með þessari "rassboruleit"náum við"bófunum"hældi forstjóri Tryggingarstofnun Ríkisins sér af nýlega kannske ekki alveg með þessum orðuð en meiningin eiginlega sama.Sá hinn sami forstjóri fullvissaði landsmenn, fyrr á árinu um að fólk sem komið sé í þá upphæð með lækniskosnað sem veitir því afsláttarkort fái kortin send sjálfkrafa.

 

Kona ein í Vestmannaeyjum tók þessi orð forstjórans trúanleg og henti öllum kvitteringum,en situr nú í súpunni af því margnefndur forstjóri gleymdi að Heilsugæslan í Vestmannaeyjum er ekki tölvutengd við TR eins verður víst að vera.Það er von að ónefndur áður í hugahafður þingmaður sé þungorður í garðs þessara"auminga"sem eru að svindla á kerfinu.Það ætti að vera ljós puntur í huga hans þessi misskilningur konunar í Eyjum nokkrar krónur þar í hús.

Það væri kannske umhugsunnar efni fyrir þessa svokölluðu ráðamenn að sjá til að sæmilega"sterkir"krókar séu í lofti í íbúðum aldraðra og öryrkja,og annara,í hugum sumra ráðamanna auminga.Kært kvödd


"Á sjó"

Þetta blogg er eiginlega svar til Bloggvinkonu minnar Kolbrún Stefánsdórrir vegna"comments"sem hún setti við Blogg mitt í gær.Þar sem hún spyr:""Meira að segja eru menn að hætta að halda sjómannadaginn hátíðlegan sumstaðar á landinu og þá er nú ekki mikið eftir. Hverju er um að kenna?""Það er því miður svo oft með mig ef opnast á mér kja...... þá er stundum vont að loka honum aftur.Svo ég haldi áfram með svarið til Kolbrúnar:Þú spyrð hverju þetta sinnuleysi sé um að kenna.Því er að svara að vantaði  fleiri eldhuga eins og t.d Jóhann Pál hér að framan.

 

Menn sem voru fullir áhuga á starfi sjómannsins.Ég hef kannast við Jóhann í gegn um tíðina ef ég get sagt svo,alltaf vitað af honum.Hann var á sínum tíma óþreytandi við að vekja áhuga manna á öryggis og kjaramálum sjómanna.Þó svo að hann tilheyrði farmönnum í sjómannastéttini þá skifta öryggismálin ekki máli á hvurskonar"fjölum"maður stígur ölduna.Hún er jafnhættuleg sjómönnum hvers stéttar þeir eru.Hvað uppskar hann svo frá okkur hinum jafnvel ekki annað en háð.Þetta eru stór orð en því miður sönn.Menn eins og Jóhann úr sjómannastétt sem létu"ljós"sitt skína á opinberum vettfangi voru jafnvel spurðir"hver skrifaði þetta fyrir þig?"Kíktu í Sjómannablaðið undanfarin ár.Lítið sem ekkert skrifað um mál sem virkilega varðar sjómannastéttina.Helst forustugreinar eftir þá,Forseta Farmannasambandsins af því tagi.

 

Ef einhverjum datt í huga að tala um einhver öryggismál um borð í skipunum var hann oft"afgreiddur"með orðunum"ertu sjóhræddur"Því miður get ég ekki undanskilið mig þeim hóp sem svona talaði.Það er eins og þegar gleraugu manns þykkna með aldrinum að maður fer að sjá misskilninginn í þessu öllu.Þessari gervikarlmennsku sem menn sveipuðu um sig:Svo var tárfellt í"Þórskaffi"þegar sungið var"Á sjó" eða"Það gefur á bátinn við Grænland".Svo áttu allar dömurnar að liggja kylliflatar (þú fyrirgefur orðalagið Kolbrún ef þú lest þetta)ef"Bakkus"var ekki búinn að syngja sína vögguvísu.Hérna er ég að lýsa þeim heimi sem ég lifði í en sem betur fer var ekki almenn um sjómenn.En það vantaði að menn hefðu skoðun og létu þær í ljósi.Þetta mikið breytt í dag hvað öryggismálin varðar.En samt vantar svona menn eins og t.d Jóhann til að lyfta fingri og koma einhverju á blað allavega í sínu"fagblaði"Svo eru það Samtöki sjómanna sem eru orðin eins dauf og ég varð alltaf að hafa 1stu blönduna.En það er kannske ekki alveg við þá að sakast.Samtök eru bara mennirnir sem í þeim eru og ekkert annað.Ef þeir hafa ekki áhuga þá er ekki von á góðu.

 

Einn frammá maður í sjómannafélagi sagði mér einu sinni,að þegar beðið væri um að kosinn yrði trúnaðarmaður um borð þá væri það oft þannig að sá sem síst hafði vit hann væri kosinn og svo væri verið að"spila"með hann.Að mínu mati er Sjómannafélag Reykjavíkur sterkasta félag sjómanna á Íslandi í dag(þarna tala ég af nokkrum ókunnugleika skal ég viðurkenna )Hvers vegna held ég það.Jú af því að þar hafa verið menn sem hafa haft áhuga á starfi,kjörum og öryggismálum sjómanna eins og t.d Jóhann Pál,Birgir Hólm og Jónas Garðarsson.Menn hafa í mín eyru kvartað um að SR sé aðallega fyrir farmenn.Af hverju?jú þessir menn sem ég taldi upp eru úr farmannastétt.Fiskimenn hafa(að mínu áliti)ekkihaft áhuga.Það er kannske ekki nóg að hafa heimasíðu og blogga þar.Menn ættu að láta skoðanir sínar líka í ljós við allan almenning.Mönnum ætti ekki að verða skotaskuld úr því í dag slík er tæknin.

 

Ég get nú í sjálfu sér annað en brosað af tilhugsununni um að  ef ég hefði í "den"haft manndóm til að skrifa greinar eins og margnefndur Jóhann, með minni"leitið og þér munið  finna"ritvélar kunnátttu.En ég hvet alla sjómenn til dáða.Standir vörð um ykkar kjara-öryggismál og látið ekki þessa"gróðafíkla"stela af ykkur ykkar degi Sjómannadaginum.Ég vona að ef þú Kolbrún Stefánsdóttir lest þetta þá hafir þú einhverstaðar í þessum vaðli  fundið svar við spurningu þinni.Sért þú,ef þú já og einhverjir aðrið hafið haft nennu til að lesa kært kvödd


"Borgarstjórnarbátarnir"

 Það var nú blogvinkona mín Kolbrún Stefánsdótir sem kom mér til að "sjósetja"þetta blogg.Hún gaf mér"comment"á bloggið um Nýsköpunar-togara og báta.

 

 Tv "Aðalbjörg"á trolli í Flóanum.Þarna er báturinn í sinni upphaflegu mynd.Til hægri er hún sennilega eftir lengingu og nýtt stýrihús.

Þar minntist ég á "Aðalbjörgina"sem Einar frá Oddgeirsbæ í Reykjavík átti og stýrði svo farsællega til margra ára.Þessi útgerð Einars er ein af þeim útgerðum sem hafa staðið af sér alla brotsjói kvótakerfis og allslags óárans í útgerð þar sem synir hans(og kannske einhverjir af 2 ættlið jafnvel 3ja út frá honum,án þess að ég viti)hafa haldið uppi merki hins farsæla skipstjóra með myndarlegum hætti.Árið var 1934 og atvinnuleysi var mikið í Reykjavík. Borgarstjórnin með Jón Þorláksson í fararbroddi ákvað að láta byggja 4 báta undir eftirliti Þórarins Kristjánsonar hafnarstjóra.Skyldu einstaklingum gert kleift að kaupa þessa báta með lánum eða ábyrgðum til að kaupa þá.2 af þessum bátum áttu að vera um 50 tonn en 2 um 20.Bátarnir skyldu byggðir í Skipasmíðastöð Daníels Þorsteinssonar í Reykjavík.Aðalbjörg RE 5 hljóp af stokkunum 1935 Var með 80 ha Völund vél.Eigendur voru  skráðir:Sigurður Þorsteinsson.Einar Sigurðsson.Frá 20 des 1940 voru skráðir eigendur Einar Sigurðsson,Jón Sigurðsson og Gróa Þórðardóttir Reykjavík.1945 er Einar Sigurðsson einn skráður eigandi.1947 var sett í bátinn 115 ha Caterpillar disel.1960 var báturinn lengdur á Akranesi og mældist þá 31 tonn Einar stundaði allan algengan veiðiskap á Aðalbjörginni allt í kring um land.

 

                  Tv hinn djarfi og dugmikli skipstjóri Einar Sigurðson úr Oddgeirsbæ,T h tekur Einar við MBE orðunni

 

Hann var fyrstur til að nota botnvörpu í Faxaflóa á svona litlum bát.En einna frægastur varð hann fyrir þegar hann bjargaði um 200 manns af kansdískum tundurspilli"Skeena"sem strandaði við Viðey í ofsaveðri 25 okt 1944.,fyrir þetta afrek var Einar heiðraður og fékk heiðursorðuna"Members of the British Empire"En Einar var með bát sinn á leigu hjá Bretum við flutninga á vegum Sjóhersins þegar það gerðist.

06_Steinhoff,_Perkins_og_Maidman                       10_Ted_Maidman_segir_fra_erfidustu_nott_avi_sinnar Tv 3 eftirlifandi af "Skeena"virða fyrir sér minningartöfluna um drukknaða skipsfélaga.Th Ted Maidman lýsir erfiðustu nótt lífs síns og hugdirfsku og dugnaði"Einars á Aðalbjörginni"fyrir blaðamönnum 2006 

2 ágúst 2006 á 100 ára afmælisdegi Einars komu 3 af eftirlifendum áhafnar"Skeena"til Íslands og voru viðstaddir minningarathöfn og afhjúpun minningartöflu um félaga sína í Viðey.Þeir þökkuðu dirfsku og dugnaði Einars lífgjöfina:""Í tilefni fæðingardags þessa heiðursmanns erum við hér saman komin til að afhjúpa minningarskjöld um strand kanadíska tundurspillisins Skeena við Viðey aðfaranótt 25. október 1944. Tvö hundruð og þrettán manna áhöfn var í bráðri lífshættu í ofsaveðri. Stormi, ölduróti, slyddu og hagli svo ekki sé minnst á ólgandi brim. Giftusamlega tókst til þegar Einari heppnaðist að flytja erlent björgunarlið út í Viðey með því að brimlenda innrásarpramma frá bandaríska hernum í Sandvíkinni. Hann naut þar góðs af fyrri reynslu þegar hann sem drengur sótti sjóinn á árabát með föður sínum og oft varð að sæta lagi á öldunni til að ná landi.""Þetta sagði Sjávarútvegsráðharra Einar K Guðfinnson í ræðu sem hann hélt við það tækifæri

 

Mig langar í smá útúrdúr koma hér með smáhluta úr samtali sem Guðmundur Jakobsson átti við Einar og birtist í bók hans"Mennirnir í brúnni"sem út kom 1973:"Það var geysileg áníðsla á Flóanum í áratugi og oftast góður afli,en síðan hann var friðaður hefur ekki sést bein.Hvenig í því liggur veit ég ekki,en ég held að fleira sé í þessu en fiskifræðingar vita""Þetta sagði maður sem þekkti Flóann eins og lófan á sér fyrir ca,34 árum.????.Þess má til gamans geta að stýrið sem prýðir ræðustól Sjómannadagsráð í Reykjavík er einmitt stýrið af"Aðalbjörginni".Einar dó 22/11 1977  71 árs að aldri.En höldum áfram með "Borgarstjórabátana"

 Tv Þorsteinn RE21 en þó ekki í sinni upprunalegu mynd(kominn hvalbakur)Kafteinn Torfi úti á dekki á heimsiglingu frá Gautaborg eftir vélaskifti 1945

Sá fyrsti sem var 52 tonn hlaut nafnið"Þorsteinn"RE 21 hljóp af stokkunum 21 febrúar 1935 með 130 ha Völund vél.Eigendur voru hinn kunni skipstjóra Torfa H Halldórssonar frá Bolungavík og Jón Sveinsson útgerðarmaður.Einkennisnúmerið er eftir sögn sótt í uppáhaldsspil Torfa,21 en hann var slunginn spilamaður og hafði gaman af að spila.Meðal barna Torfa var hinn kunni fréttamaður Högni og Sverrir matsveinn.En Sverrir var einn af þeim sem komst af er árásin var gerð á "Fróða"11/3 1941.Sverrir var tengdafaðir hins kunna Eimskipafélagsskipstjóra Jóns Vigfússonar sem lést langt um aldur fram fyrir nokkrun árum.Þorsteinn var lengdur 1941 og mældist þá 61 tonn.1945 er sett í bátinn 225 ha June Munktel vél.1952 er báturinn seldur til Flateyjar og heldur nafni en fær einkennisstafina  BA 310.1953 kaupir svo.Flóabáturinn Baldur H/F í Stykkishólmi bátinn og er hann skírður"Baldur"SH 106.Hann var svo notaður í Breiðafjarðarferðir frá Reykjavík til ársins 1965.En þá hafði verið settar í hann(1954)2 x 132 ha Kelvin díselvélarTil gamans má segja frá því að"Baldur"ex Þorsteinn leysti af  bát með sama nafni en Einar SV Jóhannesson keypti,skýrði"Vonarstjarnan"og sem hann notaði í Þorlákshafnarferðir.sem ég minntist á og birti mynd af í síðasta Bloggi.Þorsteinn var svo afskráður 23 nóv 1965(Áramótabrenna???)

 Hafþór RE 44

 Þá er það"Hafþór"RE 44 með 80 ha Völund vél.Eigendur hanns voru Annelíus Jónsson og Þórður Guðmundsson.Sjósettur 1935.Báturinn var seldur 1944 Ingvari Vilhjálmssyni(Ísbjörninn Rvík)og Jóni Sveinssyni(Sami Jón og átti í Þorsteini?)síðan er hann seldur til Patreksfjarðar 1946,heldur nafni en fær einkennisstafina BA44,seldur til Bíldudals fær nýtt nafn"Sigurður Stefánsson"en heldur einkennisstöfum..1956 seldur til Vestmannaeyja og fær nafnið Sævar VE19 Eigandi Hásteinn H/F í Vestmannaeyjum.1957 seldur Sigfúsi Guðmundssyni,Sigþóri  Sigurðssyni og Áskeli bjarnasyni.1965 seldi Áskell félögum sínum sinn hlut.1976 var sett í bátinn 200 ha Gummins diselvél.dæmdur ónýtur 1980 eftir að hafa verið seldur til Keflavíkur og fengið þar nafnið Jakob Eyjólfsson(Áramótabrenna??),

 Jón Þorláksson RE60

Síðan var svo "Jón Þorláksson" RE60. 52 tonn með 130 ha Völund  vél.Hljóp af stokkunum júni 1935.Eigendur Ingvar Vilhjálmsson(Ísbjörninn Rvík)Guðmundur Þ Guðmundson og Kristinn Guðbjartsson.1948 var báturinn  seldur Þorsteini Gíslasyni,Jóhanni Sigfússyni og Sigurði Gísla Bjarnasyni í Vestmannaeyjum. og báturinn skírður"Sjöfn"VE37.1951 selur Sigurður Bjarni hlut sinn og skráður eigandi Sjöfn h/f.Vestmannaeyjum.1956 var sett í bátinn Gamma diselvél. 240 1971 aftur skift um vél en eins vél sett í bátinn Gamma disel 240 ha.Báturinn seldur 1972 Hauki Jóhannssyni og Þorleifi Guðjónssyni Ve..1975 eignast Haukur bátinn einn.Báturinn var svo seldur 1991 Bergvini Oddsyni.Hrafni Oddsyni og Arthúr Bogasyni Báturinn var svo brenndur V-af Eyjum 1994 undir eftirliti Slökkvuliðs Ve..Mér finnst þessar áramótabennur og og æfingarbrennur fyrir slökkvulið þar sem bátar af ýmsum stærðum og gerðum,margir með merka sögu voru notaðir sem eldiviður minna á bókabrennur fyrri alda.Að vísu kæmi aldrei til greina að hægt væri að varðveita hvern einasta merkilega bát.En að menningarvitarnir í þessu landi skuli ekki hafa séð neina ástæðu til að reyna að bjarga einhverjum af þessum skipum frá bátabrennuvörgunum finnst mér með eindæmum.Efni í þetta bogg er að miklu leiti sótt í Rit Jóns Björnssonar"Íslensk Skip"úr riti Guðmundar Jakobssonar"Mennirnir í Brúnni" og endurminningum Torfa Halldórssonar"Klárir í bátana" Myndir fengnar að"láni" úr þessum bókum og af"Netinu"Kært kvödd


Slor og kúaskí...

 

Það er stundum furðulegt að heyra þegar menn tala um hluti sem hafa svo mikið menningar/sögulegt gildi að það beri að varðveita þá.Aðallega eru þetta eldgömul háfhrunin hús. og/eða einhversskonar"kuml"sem grafin hafa verið upp.

   

Myndir af málverkum Bjarna Jónssonar

 

Ekki ætla ég mér að gerast svo djarfur að reyna að meta hvenær eitthvað hefur menningarlegt gildi.Hef ekki þá vitsmuni er virðist þurfa til að velta sér uppúr hverskonar menningu.En sögulegt gildi.Ég ætla að leifa mér að hafa skoðun á því,þó ég kannske upplýsi fávisku mína um leið.Ég hef verið sjómaður lungan af mínu lífi.Eftir lestur á æfiminningabókum hinna ýmsu manna hef ég staðið í þeirri trú að Ísland í dag sé að stórum hlut byggt á sjósókn.Sjósókn teygði sig líka inn í sveitir þar sem bændur stunduðu hana meðfram búskapnum.Sjósókn telst sennilega ekki með"menningu"í augum hinna ýmsu"menningarvita"og þess vegna þarf litlu að kosta til að varðveita neitt sem tilheyrði henni.Að vísu er víst kominn vísir að Sjóminjasafni  í Reykjavík.

 

Bátar með sögu.Til v er M/B"Aðalbjörg"RE 5 og var 1 af 4 bátum sem Reykjavíkurborg lét smíða til atvinnuaukningar á"Kreppuárunum"Þessi bátur er varðveittur á Árbæjarsafni.Hver aðkoma "Sjóminjasafnin" í Reykjavík er að bátnum veit ég ekki,En þessi bátur á sér langa og farsæla sögu Undir áralangri stjórn Einars Sigurðssonar úr Oddgeirsbæ í Reykjavík.Og mig minnir að það hafi verið synir Einars sem áttu til þann stórhug að varðveita bátinn Báturinn til hægri er svona"týpískur"Svíþjóðarbátur af minni gerðinni,Hét í upphafi"Sæmundur SK1.En hét síðast"Gunnfaxi"KE Hann sökk 16 mars 1964 undir því nafni.Mannbjörg varð

 

 

Einnig munu víst einhverjum gripum tilheyrandi hinni hniknandi stétt haldið til haga á ýmsum stöðum út á landi.Ég hef nú ekki heimsótt Sjóminjasafnið í Reykjavík,en ekki fannst mér heimasíða þess bjóða upp á slíka heimsókn.Það virðist algerlega hafa farið framhjá stjórnendum þess að 17 febúar í ár voru 60 ár síðan að fyrsti nýsköpunartogarinn Ingólfur Arnarsson sigldi fánum prýddur inn á höfnina í Reykjavík.Þá var Ingólfur fullkomnasta fiskiskip í heimi.Hann var t.d fyrsta fiskiskip í heimi með ratsjá.Um þetta merkisskip er þetta að finna á heimasíðu safnsins:" Fyrsti landnemi nýsköpunarinnar, Ingólfur Arnarson RE 201, kom til landsins í febrúar 1947. Togarinn var 654 brl. Að stærð, búinn 1000 hestafla gufuvél og reyndist mikið happaskip"Búið.Hann var afgreiddur með tæpum 2 línum í einhverju sem nefnist "Togarar í 100 ár"Meiri sómi var honum nú ekki sýndur.Að þessu finnst mér skömm.

 

2 Frumkvöðlar.Til vinstri hið mikla happaskip B/V Ingólfur Arnarsson sem sigldi með stolti fánum prýddur inn í Reyljavíkurhöfn 17/2 1947 þá sem fullkomnasta fiskiskip í heimi,en sem aðstandendur Sjómynjasafns létu nægja 2 línur í umfjöllun sem hét "Togarar í 100 ár"Til hægri nafni hans dæmigerður"Svíþjóðabátur"stærri gerð.Þeim gamla hefur sennilega þótt nóg að hafa 1 alnafna á Landnámsjörðinni því örlög þessa"Ingólfs Arnarsonar"RE 19 urðu þau að hann strandaði v-við Þjórsárósa 14/3 1950 og eyðilagðist.En mig minnir að stýrishúsið hafi náðst heillegt og notað á M/B"Heimaskaga" AK85 sem byggður var á Akranesi 1951.Sem svo seinna varð"Elliðaey"Ve 45.

 

Án þess að á neinn hátt að fella dóm á störf forstöðukonu safnsins(til þess hef ég enga þekkingu á hennar störfum þar)er ég að velta fyrir mér hvað í hennar fyrri störfum gerir hana hæfa til að stjórna sjóminjasafni.Svo eru þarna 2 sviðstjórar annar titlaður sviðstjóri miðlunarsviðs hvað sem það nú þýðir og 2 safnverðir.Svo er þarna stjórn og vara stjórn 9 manns og eitthvað sem heitir fulltrúaráð 15 menn.Sumir í þessu fulltrúaráði eru líka í stjórn eða vara stjórn t.d Helgi Pétursson og Álfheiður Ingadóttir.Svo má ekki gleyma hinum ómissandi Alfreð Þorsteinssyni sem er í fulltrúaráðinu.Það virðist ekki hafa verið hægt að stofna nefnd eða stjórn í Reykjavík öðruvísi en að hafa hann innanborðs.Nú er það svo að vegna fjarveru minnar frá landinu hef ég ekki fylgst með,en einu sjómennirnir allavega sem ég kannast við í þessum hópi eru Birgir Hólm og Guðjón Ármann fv skólastjóri.Ég vona að ég verði leiðréttur hvað það varðar fari ég með rangt mál.Ég þekki Guðjón Ármann að öllu góðu og kannast við Birgir að hinu sama.Þessvegna kom kom það mér á óvart þegar ég um daginn hitti Bjarna Jónsson listmálara og hann sagði mér af málverkum sem hann hefur málað og eru í eigu safnsins að þau skulu liggja einhverstaða í geymslu út í bæ.Þessi málverk eru tengd sjósókn á fyrri tímum.Ég hefði haldið að"Sjóminjasafn"vildi hafa svona myndir hangandi uppi hjá sér.

 Myndir af málverkum B J

Mér hefur þótt það til ævarandi skammar fyrir íslensk yfirvöld í sjávarútvegi og peningamálum að hið mikla afla og happaskip"Ingólfur Arnarsson" skyldi seldur í heilu lagi í brotajárn.Að allavega eitthvað af honum skyldi ekki varðveitt.Brúin t.d þó ekki hefði verið annað.Það virðist vera svo að íslendingar hreinlega skammist sín fyrir sitt raunverulega bakland.Eftir stríð áttum við alfullkomnasta fiskiskipaflota í heimi með  togaran"Ingólf Arnarsson" í  fararbroddi.Síðan koma hinir svokölluðu"Svíþjóðarbátar"og að endingu"Landsmiðjubátarnir".Nú bið ég um leiðréttingu ef ég fer með ragnt mál.En það er ekkert að viti  sem er til minja um þessa skipaflokka.Mér er það til efs að sé sjómaður spurður í dag um hvað "Svíþjóðarbátur"sé þá viti þeir það ekki..Vita það ekki að um er að ræða báta sem leystu af hólmi,úrsér genginn bátaflota landsmanna fyrir c.a 60 árum síðan.Báta sem almenningur leit á sem stórvirki á þeim tíma en myndi lítið tilkoma í dag..Það er ekki von að svokallað sjóminjasafn láti sig svona ómenningarlega hluti sig varða.En um að gera að allslags menningarvitar séu í forsvari fyrir þessa stofnun.Ég ætla mér ekki að gera lítið úr nöfnum eins og Helgi Péturson,Álfheiður Ingadóttir eða Alfreð Þorsteinsson en ég set stórt spurningarmerki við hvað þetta fólk á erindi í stjórn á Sjóminjasafn.Það er á fleiri sviðum sem þessi"mennningarþjóð"hefur svikið fortíðina.

     Grafskipið"Vestmannaey að störfum.Lengst til v á myndinni tv sés í"Léttir"í kunnuglegu umhverfi.

 

Í sumar var rifið í Vestmannaeyjum grafskipð"Vestmannaey"Gerir fólk sér grein fyrir yfirhöfuð hvaða saga liggur að baki þessu skipi.Gerir fólk sér grein fyrir allri þeirri vinnu sem þetta skip og áhafnir þess hafa lagt af mörkum í uppbyggingu þessa lands í þau rúmu 70 ár sem það vann að dýpkunrar störfum í Vestmannaeyjum.Þó að skipið hafi verið staðsett að mestu leiti í Vestmannaeyjum þá hefur Verstmannahöfn verið einn af hornsteinum þess þjóðfélags sem þrífs í dag á aðaleyjunni.Þá mun "Vestmannaey"hafa komið að síldveiðum í Faxaflóa 1947 og að hafnargerðinni í Rifi.Skift var um vél í skipinu  1977.Þá var sett í skipið Caterpillar 336 hö í staðin fyrir hina gömlu Tuxham 210 hö.Hlutum úr gömlu vélinni var pakkað víst sæmilega vel inn og átti að varðveitast en svo komust skammsýnir menn að því að"þetta drasl"væri bara fyrir og því var hent.Nú er víst ekkert til í hendi(að ég best veit)til minningar um þetta fræga skip sem í rauninni gerði Vestmannaeyjahöfn að því sem hún er í dag.

               T v Vestmannahöfn 1945 t h 1991

Eitt frægt skip er til en.En það er hafnsögubáturinn"Léttir"sem enn er hægt er að forða frá"áramótabrennuvörgum"Mér er sagt að þegar skipt var um vél í bátnum 1975  hafi Caterpillarverksmiðjurnar falast eftir vélinni(vegna sögulegrar tengsla) sem var í en fékk ekki.En þá mun hafa staðið til að varðveita vélina.En hún mun hafa dagað uppi í"ruslahaugnum"sem menn kölluðu þessa sögulegu gripi eins og hlutina úr vél Grafskipsins og verið samferða þeim í bræðslukatlana.

 tv nýleg mynd af"Léttir"t h"Lóðsinn 1"

 

Þetta skip á sér merka sögu í hjörtum margra annara en Vestmannaeyinga sjálfra.Þessi bátur á sér stað í hjörtum margra sjómanna bæði innlendra og erlendra sem lífgafi.Hversu oft fór ekki þessi bátur út til að sækja veika og slasaða sjómenn og koma þeim undir læknishendur sem björguðu lífi þeirra.Haraldur Ólafsson kunnur farskipaskipstjóri hér á árum áður sagði í blaðagrein 1956(mbl 23/2)" Á þessari litlu skel,sem hefur verið happafleyta fram að þessu,eiga hafnsögumenn Vestmannaeyja að leggja út í brimlöðrið við Vestmannaeyjakletta,næstum í hvaða veðri sem er allan ársins hring,,,Ég get ekki séð annað en hafnsögumenn Vestmannaeyja séu í sífeldum sjávarháska á bátnum a.m.k. 4-5 mánuði ársins""Síðan lýsir Haraldur í greininni hvernig"Léttir"brýst út í skip hans M/S"Lagarfoss"með Jón Sigurðsson hafnsögumann sem nær skipinu inn milli kviða áður en höfnin lokaðsis alveg í eina 2 daga.Fyrir bar að skipstjórar stærri skipa t.d.togara neituðu að fara í land á Létti litla.

 

    Til v höfnin eins og hún lét út um þær mundir er Grafskipið var keypt t h höfnin í byrjun síðustu aldar

Síðan kom svo"Lóðsinn"í apríl 1961(5 árum eftir grein Haraldar)sem tók við erfiðustu verkunum af"Létti"ef maður getur orðað það svo.Það væri verðugt verkefni að fyrir vel ritfæran mann að skrifa sögu þessara 3ja skipa,Grafskipsins "Vestmannaey" ,hafnarbátsins"Léttirs"og"Lóðsins 1"Mér finnst með eindæmum hvernig tókst með mannaráðningar á þessi skip.Útsjónarsemi þeirra og dugnað.Hvernig menn að öllum öðrum ólöstuðum  eins og Jón Sigurðsson,Ólafur Ólafsson.Og Einar Sv Jóhannesson"smellpössuðu" í þau störf sem þeir sinntu.Þetta eru bara nokkur nöfn af mörgum sem skrifað hafa nöfn sín á spjöld sögu Vestmannaeyja.Þeim er að nokkru leiti gerð skil í Bókum Haraldar Guðnasonar,"Við Ægisdyr"og þangað hef ég sótt efni í þennan hluta bloggsins.Og ég geri mér grein fyrir að ég hafi reist mér burðaás um öxl með þessum skrifum og að betur upplýstur maður um sögu þessara 3ja skipa kæmist betur frá þessu.En fyrir mér vakir aðeins það,að mér finnst margt hafa menningarsögulegt gildi fyrir framtíðar Íslendinginn en bara einhverjir húshjallar sem einhvert frægt skáld svaf kannske 1 eða 2 nætur í.Stóð ekki einhverstaðar að"bókvitið"yrði aldrei í askana látið.Sem betur fer eru augu fólks að opnast fyrir að fá að sjá og þreyfa kannske á hlutum sem eiga mikla sögu að baki sér.

 

 T v Vonarstjarnan VE sem upphaflega hét"Baldur"SH og var dæmigerður"Landsmiðjubátur af stærri gerðinni.Einar Sv Jóhannesson "saup"marga fjöruna á þessum bát í Þorlákshafnarferðum.T h  Hafdís IS 75 síðar Ve.Dæmigerður Sviþjóðarbátut af svokallaðri"Bárðarteikningu"Hafdís brann og sökk á Selvogsbanka 10/2 1960

Í dag er lítið sem minnir á"Nýsköpunartogara" "Svíþjóðabáta" "Landsmiðjubáta".Við höfum ekki alltaf lifað af bókum(þótt við á hörmungarárum fyrr á öldum hafi kannske étið frægustu handritin)það færi lítið fyrir"menningu"þessa lands og öllum hennar"vitum"ef engin hefðu verið fyrrnefnd skip.Það er haft eftir einum af merkustu útgerðarmönum þessa lands þegar dóttir hans hafði komið til dyra og vinnuklæddur sjómaður hafði bankað upp."Hleyptu manninum inn stelpa"á útgerðarmaðurinn að hafa sagt"já en hann er svo slorugur á dóttirin að hafa haldið fram:Slor það er það sem við lifum á telpa mín,mundu það"á sá gamli að hafa sagt.Það er nefnilega það,það var slor ásamt kannske kússkít hversu sú blanda fer nú vel í nefi landans í dag,sem kom okkur til álna og vel það.Við áttum líka"fraktskip"með sögu en flest af þeim voru seld með haus og hala úr landi.Ekkert af þeim endaði í stórbrennum áramótanna.Svo ættu stjórnvöld að sjá sóma sinn að varðveita V/S Óðinn.Stjórn og fulltrúaráð sjóminjasafns Reykjavíkur ættu að sjá til þess.Að síðustu vil ég taka fram þó að ég nafngreini fólk í sambandi við sjóminjasafnið vil ég taka fram að ég er ekki að gera lítið úr störfum þess fyrir þetta safn en ég sjálfur set stórt spurningamerki við setu þessa fólks í stjórn á safni tengdu sjómennsku.Það er mín prívata skoðun.Hvað nafngreiningu á mönnum varðandi Vestmannaeyjar veit ég vel að þar eru fáir útvaldir.Það er hreint með einsdæmum að lesa sögu þessara manna sem völdust í störf á þessum skipum án nokkurar reynslu á sambærilegum störfum,hvernig allir smellpössuðu í þessi störf.Hvernig handaflið og hugvitið virtust passa vel saman á árdögum þessa starfa.Það koma margir fleiri við sögu þessara mála sem of langt væri að telja upp.Þessa sem ég nafngreindi eru kannske þarna því að ég kannaðist við þá og sá til þeirra í starfi.Ég er ekki á neinn hátt að reyna að gera lítið/minna úr hinum.

 Myndir af málverkum B J

Eins og ég sagði áðan hef ég hef mikið stuðst við bækunar"Við Ægisdyr"eftir Harald Guðnason heitins fræðimanns og bókavarðar,Myndir eru sumar fengnar að láni með góðfúslegu leyfi sonar Haraldar Áka.Myndir af málverkum eftir Bjarna Jónssonar eru fegnar að láni úr Bæklingi sem heitir"Sjávarspilin"með góðfúslegu leyfi málarans sjálfs..Aðrar myndir eru m.a úr bókunum "Þrautgóðir á Raunarstund "ritverki Steinars L Lúðvíkssonar og/eða frá ýmsum stöðum á"Netinu"Kært kvödd

 

9 mánuðir

 

Fyrir 9 mánuðum(nákvæmlega í dag)beindi þingmaður að nafni Kristján Möller fyrirspurn til þv ráðherra samgangna um kaup á ferju til Grímseyjarsiglinga.Fyrirspyrjandi fór mikinn og krafðist skýrra svara,Fv ráðherra samgangna svaraði fyrirspurn þingmanns með,að margra mati hálfloðnum svörum.Svo skiptust veður í lofti og fyrrnefndur fyrirspyrjandi varð sjálfur ráðherra samgangna.Nýji ráðherrann hafði uppi stór orð og vildi skella allri skuldinni á ónefndan skipaverkfræðing(sem að mínu áliti getur á engan hátt skotið sér undan ábyrgð)og gaf út stóryrtar yfirlýsingar.

 

En undir málsóknarhótunum neyddist svo ráðherra til að éta allt ofan í sig aftur,Það eru 9 mánuðir síðan mál no 539 á 133 löggjafarþingi var tekið fyrir þ.14/2.Í dag er vanalegur meðgöngu kvenna 9 mánuðir kominn.,Og í þessu máli enginn"krói"fæddur.Kannske tekur það meðgöngutíma fílsins til að fá þetta á hreint ef það fæst þá einhverntíma."Öll gögn upp á borðið"sagði hinn ötuli óbreytti þingmaður Kristján Möller þá.Hvorki hósti eða stuna frá hinum hlédrægna ráðherra Kristjáni Möller.Nú vildi ég að einhver þingmaður spyrði(það þýðir ekki fyrir okkur þessa óbreittu að spyrja þessa háu herra)nokkurra spurninga:

1.Í gegn um hvaða skipasala fóru kaupin fram?

2.Hvað fékk sá í þóknum ?(geri fastlega ráð fyrir að einhver skipamiðlari/sali hafi komið að málinu)

3 Af hverjum var skipið virkilega keypt?

4 Voru einhverjir íslendingar aðilar í þeim hóp ?.Ef svo er hver eru nöfn þeirra ?

5 Hvaða rök voru fyrir því að ekki voru notaður skipaverkfræðingur frá Siglingastofnun til að skoða skipið í upphafi?

6.Hvaða fyrirtæki sér um breytingarnar á skipinu fyrir ríkið og hverjir eru eigendur þess.

Svo spurningar til ráðherra í sambandi við ferjuna"Baldur"

1,Hver keypti skipið af ríkinu?

2.Hvaða skipasali kom að þeirri sölu?

3.Hvað fékk sá skipasali í sölulaun.?

4.Var aldrei athugaður sá möguleiki að nota skipið til Grímseyjarferða?

Umræddur"Baldur"uppfyllti að ég best veit kröfur EU um siglingar skipa.Ég vona að einhver er hefur nennu til að lesa þetta leiðrétti mig ef ég fer með rangt mál.Nú hef ég hvorugt skipið"barið"augum en einhvern veginn hefði ég talið"Baldur"heppilegra skip.Það hefði kannske haft einhvern kostnað í för með sér vegna hafnaraðstöðu.

 

"Baldur var meira lokaður en þessi"drulludallur"."Baldur var 39.40m að lengd ryðhrúan fv 39.60"Baldur"9.20 m breiður hinn 10.Það væri gott að almenningur fengi svör við þessum spurningum þó ekki væri nema til með að kæfa allar sögusagnir sem í gangi eru um þessi skip.Það væri gott að ráðherrann Kristján Möller yrði við kröfum hins óbreytta þingmanns Kristjáns Möller.Einhvern veginn hef ég það á tilfinningunni að einhvert óhreint mjöl sé í pokahorninu sem ráðherra hvorki hafi getu eða vilja til að upplýsa og það eigi að þegja þetta mál í hel.

 

Ég hef áður vitnað í kvæði Vilhjálms frá Skáholti"Úr strætinu"og ætla að gera það aftur:"Sjá margoft hefur staðið styr um þeirra nöfn/sem státa sig um nætur í veislum betri manna/og lítið hafa syndgað og lítið gist í höfn/en lifa vel á gulli og elsku borgaranna
Væri ekki gaman ef hægt væri að finna upp tæki sem fyndi út lygina í mönnum svo hægt væri að mæla hana.Eins og í leikritinu Gosi.

 

Koma tækinu fyrir í ræðupúlti Alþingis og sjá þegar nefið á ráðamönnum lengdist þegar lygavaðallinn spýtist út úr kja...... á þeim.Reikna svo út lygalengdina að hverju þingi loknu.Ég vona að einhverjir séu mér sammála um að þetta mál megi ekki þegja í"hel".Kært kvödd.

 


Vökvi og fl

 

Vökvi hefur stundum verið örlagavaldur í lífi mínu.Fyrir utan þess að vera 60-70 % af líkamanum.Lífstarf mitt tengist honum.Maður blotnaði oft illilega á gömlu síðutogurunum.Ég innbyrti heilan helling af honum í formi CnH2n+1OH með allslags bragði um árabil.

 

Svo hættti ég að drekka CnH2n+1OH og hætti til sjós.Hélt mig hólpinn frá annari vökvun en eðlilegri drykkju til viðhalds líkamans og rigningu.En haldið ekki að þessi fjandi hafi ekki farið að safnast svo upp í líkamanum að nýrun virtust ekki hafa undan svo að senda þurfti kallinn á spítala til "vindingar"Oft hafði nú verið þörf en nú var það nauðsyn að vinda þann gamla og þurka hann upp.Svo að síðustu 3 vikur hef ég orðið að ligga á spítala vegna þess arna.Ætlar seint að losna undan"bleytunni"hugsar nú kannske einhver.Ég er því komin aftur til sæmilegrar heilsu þurrundin og alles,Þetta var að ég sjálfur held ekki alvarlegt allavega ekkert svona"next door to heaven"dæmi

 

í mínu tilfelli kannske frekar:"nex door to he.." já eða svoleiðis.Það hefur margt skeð í þjófélaginu síða ég stakk fingri á tölvuborð síðast.Og ekki batnar álit mitt á ráðamönnum.Nú skilst mér að Pétur Blöndal eigi að endurskoða almenna tryggingarkerfið,Ég vona bara að þetta sé rangminni hjá mér.Ef rétt  er munað hjá mér væri þetta eins og Hells Angels yrðu fegnir til að endurskoða allt hjá Gunnari í Krossinum.Þessi maður sem líkir upplýsingum um skatta hinna ríku við starfsemi Stasi hinnar illræmdu leynilögreglu í Austur Þýskalandi fyrir fall múrsins.Þessi maður er hefur leynt og ljóst litið á minnimáttar í þessu þjóðfélagi sem auminga,.

 

Maður sér fyrir sér 2 landamærahlið annað þar sem hinir ríku með fullar töskur fjár geta farið í gegn um án mikils eftirlits hitt hliðið  fyrir öryrkja,eldri borgara og aðra er minna mega sín.Þar sem þeir eru berháttaðir til leitar og meira segja "kíkt"upp í" rassboruna" á þeim ef þar skildi"leynast"1 eða 2 þúsundkallar sem viðkomandi hefði áskotnast fyrir eitthvað viðvik og ætlað að kaupa sér "valið lambakjöt"í sunnudagssteikina.

 

Hvernig í ósköpunum getur forsætisráðherra þessa lands sem þiggur miljónir í aukasposlur fyrir hreinlega ekki neitt og lætur það viðgangast að konu hans sé fært velaunað nefndarstjórnar starf á silfurfati,haldið því fram að allt sé á betri veg hvað afkomu varðar.Hvernig getur þessi maður staðið í ræðustól á Alþingi og látið sem ekkert sé að.Hvaða rök eru fyrir því að kona forsætisráðherra skuli valin í þetta starf.Ef það væri vottur af siðferði til hefði frúin afþakkað starfið.Hvað hefur forsætisráðherrafrúin fram yfir t.d. Ólaf Örn yfirlæknir til margra ára sem,og fleiri læknisfróða menn,sem réttlætir valið á henni.

 

Skyldi það vera að frúin hefi sveiganlegri skoðun á málinu.M.ö.o hún yrði þægari ljár í þúfu fyrir stjórnvöld en Ólafur eða einhver annar úr heilbrigðisstéttinni.Af hverju er þessi nefnd ekki skipuð fulltrúum úr þeirri stétt sem á að hlýta afrakstri nefndarinnar.Svo að öðru.Það var talað um ólög sem samþykkt voru að mig minni 2003 um eftirlauna alþingismanna og fl.Og ný lög um þetta í uppsiglingu.En hvað um lögin sem samþykkr voru í vor um málefni aldraða.Til að rifja þetta endemismál skal vitnað í umsögn um frumvarpið:

"Markmiðið með frumvarpinu er að bæta hag ellilífeyrisþega með því að draga úr vægi viðmiðunartekna gagnvart greiðslum lífeyristrygginga. Með frumvarpinu er lagt til að atvinnutekjur þeirra sem eru 70 ára og eldri hafi ekki áhrif á greiðslur lífeyristrygginga. Þetta verður nánar útfært í reglugerð.
    Áætlað er að árlegur kostnaður við frumvarpið verði á bilinu 560-700 m.kr. Kostnaðarbilið felst m.a. í þeirri óvissu um hversu margir gætu sótt um greiðslur frá Tryggingastofnun sem annars hefðu ekki átt rétt á þeim. Í kostnaðarmatinu er reiknað með að atvinnutekjur 70 ára og eldri hafi hvorki áhrif á eigin lífeyrisgreiðslur né hugsanlegar lífeyrisgreiðslur maka frá Tryggingastofnun. Þar sem gert er ráð fyrir að lögin taki gildi 1. júlí 2007 má gera ráð fyrir að um það bil helmingur af áætluðum kostnaði falli til á þessu ári."

Að mínu áliti lýsir þetta frumvarp ekki mikilli innsýn i vinnumarkaðinn eða málefni aldraða yfir höfuð.Hvaða heilvita manni dettur í hug að maður sem kominn er yfir 70 ár og sem er neyddur til að hætta að vinna 67 ára eigi greiðan aðgang að vinnu 3 árum síðar.Mér finnst að þessi skrípaleikur sé móðgun við málefni aldraða.Það munar um hvert ár á þessum aldri Eru þingmenn stjórnarlisins með Ellert Schram í broddi fylkingar svo vitlausir að halda að þessi sýndarmennska gangi í augun á fólki.Ætla þessir menn aldrei að skilja að það er meira á milli eyrnanana á hinum almenna borgara en grautur sá sem margir aldraðir verða að láta sér nægja vegna fátæktar.Þeir halda kannske að eftir því fleiri sem neyddir eru að hafa þennan,að mínu áliti fjan.... graut að aðlamáltíð séu með hann uppsafnaðan í hausnum og ekkert annað.

 

Og svo er það gafmildin sem felst í þessu.Andvirði heillar Grímseyjarferju skal spanderað á gamlingina ef einhverjir geta notið dýrðarinnar.Sjóvá sýnir nú um stundir auglýsingu sem mér finnst áhugaverð en í öðru ljósi en Sjóvá gerir.Að mínu mati er þetta það sem margur maðurinn hugsar sé ellina Eiga (rómantíska ? ) rólega sæludaga .En síðan kemur "ríkið"í gerfi eldhrædda mannsins og slekkur í öllum væntingum í formi tekjutengingar,skatta og allslags órárans.Með Pétur Blöndal í broddi fylkingar.Ég dvaldi á"Sjúkrahóteli"Rauða Krossins í 3 daga.Og hvert ætli aðalumræðuefni við matarborðið hafi verið.Jú alveg rétt órættlætið í málefnum aldraða.

 

Og margar ljótar sögur heyrði maður.Það væri efni í enn lengra blog.Og það er"farið að saxast á limina hans Björns míns"sagði Steinun kona Axlar-Bjarna þegar Ólafur frændi Bjarnar var að mölva bein hans með sleggu.Mér dettur þetta í hug þegar mörg fögur fyrirheit gefin á Þingvöllum í vor eru dottin uppfyrir t.d stimpilgjöld sem átti að afnema.og fl og fl.Ekki hægt núna vegna aðstæðna segir ráðherra fjármála.Enda sagði Axlar-Björn við Ólaf"limabrjót"frænda sinn."Sjaldan brotna vel bein á huldu Ólafur frændi"Það er margt á huldu með framgang Þingvallaloforðanna.Kært kvödd


Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Nóv. 2007
S M Þ M F F L
        1 2 3
4 5 6 7 8 9 10
11 12 13 14 15 16 17
18 19 20 21 22 23 24
25 26 27 28 29 30  

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 65
  • Frá upphafi: 537306

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband