15.10.2007 | 00:57
Deyja út
Í kvöld hringdi í mig mjög góður vinur minn sem ekki er sammála mér í pólitík."Þið" eruð að deyja út í Reykjavík sagði ´ann.Þar átti hann við FF.Hvað meinaru spurði ég.Hefur þú ekki séð Fréttablaðið í dag spurði ´ann,Já hvað með það.Nú "Þið"missið 7% atkvæða.Jú þetta er að vissuleiti rétt hjá manninum.3.1% ef kosið yrði nú fengi listinn sem kennir sig við Frjálslynda og óháða.En ég er nú svo vitlaus að halda að þessi könnun komi ekki FF við,í sjálfu sér.
Er það ekki Margrét Sverrisdóttir já og eða Íslandsheyfingin sem tapar þessum 7 %.Er fyrrgreind Margrét ekki varaformaður hennar.Hefur ekki títtnefnd Margrét taunglast á að hún hafi verið kosin persónulegri kosningu til setu í borgarstjórn.Er hún ekki búinn að margafneita FF.Er það þá ekki hún sem er að tapa þessum 7 %.Hún hefur allavega setið lungan af tímanum sem staðgengill Ólafs F.Ómar Ragnarsson á að hafa bent á"sterka"stöðu Margrétar einhverstaðar í viðtali.3,1 % getur varla þótt sterk staða af formanni flokks.
Er það þá Íslandshreyfingin sem er með 3,1 % fylgi í Reykjavík.Mér finnst þessi hringekja Margrétar með eða án Ólafs og með eða án Ómars alveg með einsdæmum. Svo kemur rúsínan í pylsuendanum þar sem haft er eftir Margréti á síðu 4 í Fréttablaðinu:""Það er mjög jákvætt að kjörfylgi flokkana hafi ekki minnkað.Hún segist ekki samsama sig sig fylgi Frjálslynda flokksins,en rúm þrjú prósent styðja Frjálslynda og óháða.Enda er ég farin úr þeim flokki.""Hvaða heilvita manneskja sem vill láta taka sig alvarlega lætur svona endemis bull útúr sér.
Eftir þessum orðum Margrétar er hún með 0% atkvæði í Reykjavík.Segi og skrifa Núll prósent atkvæða.Það hlýtur að vera eftir því sem hún sjálf segir""ekki samsama sig fylgi Frjálslynda,en rúm þrjú prósent styða og(takið nú eftir)Frjálslynda og ÓHÁÐA""
Á hvers vegum er persónan Margrét Sverrisdóttir í borgarstjórn í Reykjavík.Íslandshreyfingunnar,Hún kemst ekki á blað í þessari könnun.Ég hef dáðst að Svandísi Svavarsdóttir og fundist hún standa sig með slíkum ágætum að hún ætti borgarstjórastólinn mikið frekar skilinn er Dagur B.En ég get satt að segja ekki alveg áttað mig á að önnur eins baráttu kona eins og ég hélt hana vera að hún skuli treysta á aðra eins"skoparakringlu"og títtnefnd Margrét er.
Og ég get ekki hvernig sem ég reyni að fá nokkurn botn í svona"úr og í,Út og suður"pólítík Einhvertíma hefði nú Ómar Ragnarsson gert grín að svona hringli.En það er von að hann tali um sterka stöðu Margrétar 0%.Núll prósent.Gott veganesti fyrir verðandi forseta borgarstjórnar.Það er lán að forseti borgarstjórnar fær að"renna"frítt fyrir laxinn í Elliðaánum.Ef hún endist svo lengi í embætti.Varla verður varafulltrúi kosinn í það embætti ef aðalfulltrúinn snýr aftur til starfa.
Steinn Steinar kvað eitt sinn:
"Í fjaska,á bak við allt,sem er
býr andi þess,sem var
Og andi þess,sem enn er hér
er ekki þar"
Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.11.2007 kl. 13:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
9.10.2007 | 21:14
Hvenær
Hvenær drepur maður mann og hvenær drepur maður ekki mann,Hvenær yfigefur maður flokk og hvenær yfirgefur maður ekki flokk.Eða kannske heldur:"hvenær yfirgefur flokkur mann og hvenær yfirgefur flokkur,ekki mann.Fyrsta setninguna leggur Kiljan Jóni Hreggviðssyni í munn er Jón ræðir við Arnas Arnæus í"Íslandsklukkunnni"
Ég hef verið að lesa"Skuldaskil"uppgjör Sverris Hermannssonar við erkifjendur sína og fv flokksmenn.Ég hnaut um nafn á einum kaflanum"Flokkurinn yfirgaf mig"Dokum nú aðeins við hvar heyrði maður þessi orð jú dóttir Sverris er hún reið og sár kenndi"flokknum"um hrakfarir sínar í kosningu til varaformanns í FF.Nú fer maður að hugsa hvernig flokkur yfirgefur menn Mér finnst orðið YFIRGEFA sé oft tvírætt
Manneskjur sem segja svona hljóta vera með ríkt sjálfstraust.Tökum t.d.Sjálfstæðisflokkinn sem var stofnaður 1929.Hvað skildi flokkurinn eftir hjá fv ráðherra sínum,Skildi flokkurinn öll stefnumál eftir þegar hann yfirgaf auminga Sverrir.Ég hef alltaf haldið að t.d þegar maður "yfrgefur"konu sína sitji konan eftir með börn og buru.Þegar menn yfirgefa skip verður skipið eftir með þess tækjum og tólum.Alltaf tekið orðið þannig að sá sem yfirgefi skilji flest ef ekki allt eftir hjá hinu yfirgefna.
Hvorki Sverrir eða Margrét hafa útskýrt orðið frekar.Mér dettur í hug framburður eins af okkar farsælasta skipstjóra sem varð fyrir óláni að skip hans rakst illilega á bryggju,fyrir sjórétti,."það var dauður sjór í skrúfunni"Þetta var látið nægja þó enginn,svo að ég viti hafi skilið svarið.En nú yfirgef ég þetta bull.
Skelfing var ég feginn þegar ekki var minnst á borgarstjórnarfulltrúa FF í sambandi við þetta írafár í sambandi við" Reykavík Energy Invest og Geysir Green Energy" Svandís Svavarsdóttir, borgarfulltrúi VG,hefur staðið sig með þeim ágætum að ég hefði óskað að FF nyti krafta hennar í Borgarstjórn.Sú sem skreytir sig með stolnum fjöðrum FF var víst svo upptekin að sinna erindum og hagsmunum Eimskips í Kína að eitt mesta hneyklismál seinni ára fór fyrir ofan garð og neðan hjá henni.
Nú er svo gripið í rassin mörgum dögum seinna.Komið með seinbúnar yfirlýsingar.Það hefði mátt halda á umræðunni undanfarna daga að aðeins 4 flokkar ættu kjörna fulltrúa í borgarstjórn,Þ.e.a.s Sjálfstæðismenn Framsóknarmenn Samfylking og V-Grænir.Ekki minnst á flullrtúa fleiri flokka.Hefur sú sem situr á sínum falska stól ekki neinn varamann.Hvernig er með leikkonuna,þessa sem gat ekki verið í FF útaf útlendingaandúð hjá flokknum.En amaðist svo við of mörgum útlendingum á kaffihúsum í Reykjavík.
FF má faktíst prísa sig sælan að þær stöllur skulu ekki bendla sig við hann undanfarið.Ekki orð frá þeim frekar en þær væru ekki til,út af sennilega stærsta hneyksli,allavega í borgarmálum í Reykjavík á þessari öld.Kært kvödd
8.10.2007 | 21:40
Um Daginn og veginn
Þegar ég var að alast upp var þáttur í,þá svo sannarlega Útvarpi allra landsmanna.(Allavega þannig séð að engin önnur útvarpstöð náði eyrum flestra landsmanna)þáttur sem bar nafnið Um daginn og veginn.Þá fluttu ýmsir þekktir menn sína sýn á mál líðandi stundar.Ekki ætla ég mér að fara að vera með neitt spekingatal en bágt á maður með að halda kja... yfir nýliðnum atburðum.Skelfing er nú að hlusta á Borgarstjóra Reykjavíkur reyna að snúa sér út úr þessum fíflagangi með Reykjavik Energy Invest og Geysir Green Energy.
Auminga maðurinn,hvernig hann hefur snarsnúist og reynt hreinlega stamað sig út spurningum fjölmiðla.Gamli góði"Villi"hreinlega gerði í buxurnar í þessu máli og á erfitt með að koma sér úr skítagallanum.Hvernig er það eiginlega með þessa menn.Skelfing öfundar einfaldur maður eins og ég,sem hef gert helling af mistökum og orðið að viðurkenna þau, þessa menn sem aldrei verða á nein mistök.Ég er farinn að halda að þeir séu haldnir einhverri utanaðkomandi ljómun sem við hin,allavega ég þekkjum ekki.
"Ég hef ekki gert misstök"fólkið kemst misjafnlega vel frá málum sínum.En gamli góði "Villi"klikkaði á því.,Ég myndi ráðleggja honum að fá Peter O Toole hinn heimsfræga leikara til að kenna sér að leika sakleysinga.Mér finnst Peter alveg frábær er hann er að leika einhverja sakleysinga eða mann af"Ég geri ekki mistök"gerðinni.Birni Inga tókst aðeins betur upp í hlutverki sakleysingans þegar hann þóttist ekkert vita.En skelfing er er þessi farsi að verða leiðinlegur aðallega vegna þess að enn og aftur koma kjörnir leiðtogar landsins fram fyrir þjóðina og ljúga blákallt framan í"sauðsvartan"almúgann.
Og þeir munu gera það meðan volgt er í þeim hla......Svo er það mál verkamannana frá Litháen.Ég ætla ekki að draga taum starfsmannaleigunnar sem auðsjáanlega er sek í málinu.En ég er hugsi yfir hvað kemur til með að ske með þessa blessaða menn sem kærðu þegar heim verður komið.Mun íslensk verkamannafélög fylgast með hvað verður með þá í framtíðinni.Ég er viss um að það verður ekki tekið á þeim með neinum"silkihönskum"þegar heim er komið.Þarna er farið að byrgja brunninn eftir að barnið er dottið ofan í hann.
FF lagði á það áherslu á það í kosningabaráttunni að taka vel á móti þeim verkamönnum sem hingað leituðu vinnu.Ein samflokkssystir Gissurs Péturssonar(að ég held)var við að fara úr öllum límingum í ræðustól Alþingis eftir að Guðjón Arnar hafði hvatt til þess í setningarræðu á Landsfundi FF.Það væri gaman að heyra álit hennar á þessu kærumáli.Ég fullyrti í bloggi í vor að Vinnumálastofnun hefði ekki hugmynd um hve margir erlendir verkamenn væru í landinu og ég stend við þá fullyrðingu.
Mér hefur fundist Gissur Pétursson hálf einmanalegur og stundum eins og barinn hun.... í viðtölum undanfarið.Það er að koma betur og betur í ljós það sem FF varaði sem mest við í vor og fékk á sig"Rassista"stimpil fyrir.Við höfum tekið illa á móti innfluttu vinnuafli og nú ber íslenskum yfirvöldum hvort sem er Verkalýðsforustan eða opinberir aðilar að fylgast með málum þessara Litháa.Að þeir lendi ekki á svörtum listum í heimalandi sínu og verði útilokaðir frá vinnu í framtíðinni.Mér dettur stundum í hug þegar ég heyri hvað sumir af svokölluðum leiðtogum bera á borð fyri okkur almenning orð eins ágæts skipstjóra um vitgrannan háseta sinn."ef svona heimskur hundur hefði fæðst í minni sveit þá hefði hann verið skotinn"Þeir mega þó eiga það fyrirmenn þessarar starfsmannaleigu að þeir fást ekki til að koma ljúandi í fjölmiðla.Það er meira en sagt verður um suma.Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
7.10.2007 | 19:59
Josèphe
Umboðsmaður Alþingis,
Hr. Tryggvi Gunnarsson,
Álftamýri 7
108 Reykjavík
Alþingi, 29. sept. 2005
Spurning um fulltrúalýðræðið á Íslandi
Á þingfundi á síðasta starfsdegi Alþingis sl. vor, tilkynnti Gunnar Örn Örlygsson alþingismaður að hann hefði sagt sig úr þingflokki Frjálslynda flokksins og gengið til liðs við Sjálfstæðisflokk.
Ég undirrituð, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, vil hér með óska eftir rökstuddu áliti Umboðsmanns Alþingis á því hvort Gunnari Örlygssyni hafi verið heimilt að fara eins og hann gerði með það umboð sem kjósendur Frjálslynda flokksins veittu honum í síðustu alþingiskosningum. Gæti kjörinn þingmaður t.d. skipt um flokk um leið og hann hefur móttekið kjörbréf sitt? Sé það heimilt, er þá opin leið fyrir tækifærissinna að fara í framboð fyrir einn flokk, ákveðnir í að skipta um flokk strax að loknum kosningum? Er sú leið opin og lögmæt að mati háttvirts umboðsmanns?
Virðingarfyllst,
Margrét Sverrisdóttir
framkvæmdastjóri þingflokks Frjálslynda flokksins
(sign.)
Þetta er upphaf og endir á bréfi þv framkvæmdarstjóra FF til umboðsmanns Alþingis fyrir rétt rúmum 2 árum.Millikaflinn skiftir engu máli í þessu blogi.Nú getu við skift út nöfnum sett nafn Margrétar í stað Gunnars og nafn Magnúsar Reynis í stað Margrétar.Ekki ætla ég mér út á hálan ís pólitíkinnar.En ég ætla að leyfa mér að hafa skoðun á þessu bréfi og svo atburðum sem gerðust í vor á landsfundi FF.Nú segir kannske einhver hvað er "karlfauskurinn"sem er flokksbundinn í FF og getur engan veginn litið óháð á málið að rífa kj...,.
En hvað um það.Ég ætla samt að segja skoðun mína sem kjósandi í lýðveldinu Íslandi.Margrét byrjar bréf sit á þessum orðum:"Spurning um fulltrúalýðræði á Íslandi"Nú væri gaman að spyrja umrædda Margréti sömu spurningar.Maður hlýtur að spyrja sig hvernig getur manneskja sem skrifar svona bréf leika svo nákvæmlega sama leikinn tæpum 2 árum síðar ætlast til að vera tekin alvarlega..Einhvertíma las ég um flokkun á pólitík þar var að finna ýmis nöfn t.d Vísindahyggja,Samskiftahyggja,Atferlishyggja,Skipulagshyggja,Frjálshyggja.Og ég held að ein hyggjan enn sé tilkomin í pólitík Margréta"Ruslatunnuhyggjan"
Það var stundum sagt um,að margra mati,stjórnmálasnillinginn"Jónas frá Hrifu"að hann hefði haft svo háar hugmyndir um sjálfan sig að það jaðraði við mikilmennskubrjálæði.Hann væri einskonar "Napólen" Íslands . Ekki dettur mér í hug að bera þau saman Jónas og Margréti.En ég held að margumrædd kona líti á sig sem einskonar:"Marie Josèphe Rose Tascher de la Pagerie"Reykjavíkur Um eitt verður Jónas þó aldrei sakaður um:"hann notaði ekki völd sín til að hagnast persónulega".Var nokkur að tala um laxveiðiár eða banka?.Enginn fugl flýgur of hátt ef hann flýgur á eigin vængjum
Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
6.10.2007 | 19:51
Eldri borgarar
Enn og aftur eru höfð fögur orð um gera eitthvað fyrir"gamlinga"þessa lands.Sjómenn,bændur og verkamenn sem eru komnir á eftirlaunaaldur.Þar á meðal fólk sem sleit út ungum líkömum sínum í allslags erfiðisvinni á "kreppuárunum"og gengur síðar á æfinni allt skakkt og bjagað vegna bakveiki.Ónýtra mjaðmaliða.ónýtra liða í öxl.o.sv.fr..o.sv.fr.Fólk sem er orðið það gamallt að því er skammtaður skítur úr hnefa.Að mínu mati skiftir það ekki máli hversvegna þetta fólk hefur ekki meiri bætur.
Flest allir af ef ekki allir í þessum hóp hefur lagt sitt af mörkum til þessa þjóðfélags sem við lifum við í dag.Yfir þessum hóp sveima svo starfsmenn TR eins og hrægammar yfir villtum mönnum í eyðimörk.Þeir voru svo uppteknir við að ná"svikurum"úr þessum hóp að þeir tóku ekkert eftir miljónaþjófnaði í eiginn ranni..Ég heyrði með öðru eyranu viðtal við forstjóra TR í gær að mig minnir.Þar var hann að tala um þetta verslings fólk sem kannske af hreinni vangá hefur yfirsést að gefa fram t.d 10-20 þúsund.
En svo var eins og hann væri hreykinn af þegar hann sagði eitthvað á þá leið að með þessu kerfi næðust"BÓFARNIR"Á sama tíma sem venjulegt gamalmenni sem hefur unnið við undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar á 40-50-60-starfsaldri er með miklum og nákvæmum rannsóknum úthlutað 80-90- þús kr á mánuði eru"gulldrengir"sem hafa unnið hjá sama fyrirtækinu 3 vikur verðlaunaðir með milljörðum úr sjóðum fyrirtækjum í almennings eigu.Það ætti að senda menn eins einn ónefndan mann sem eftir pólitískan feril fékk jobb við að skipulegga eina mestu vitleysu sem nú er á döfinni(að vísu búinn að missa jobbið en engin hætta á að hann hafi ekki fengið digran starfslokasamning) já og fl.sem hafa hreinlega baðað sig í peningum almennings á götuna og láta þá éta sk..eins og vissulega liggur í boðskap yfirvalda. nú um stundir.
Margir binda vonir við dóttir 1sta forstjóra TR sem nú situr stól ráðherra félagsmála.En hún sat nú í þessum stól hér á árum áður og ekki gerðist nú mikið þá nema kannske fleiri tilskipunum frá ráðuneytinu til að klóra eitthvað í einhverja bakka..Það eru svo þessar tilskipanir sem ráðherrar hafa gert,sem gera það að verkum að kerfið er í dag einn frumskógur sem enginn ekki einu sinni starfsmenn TR sjálfir,
Er nokkur von á öðru en mörgu gömlu fólki sem heyrir um allar þessar miljarða gafir og ofurlaun teljist sig svikið.Ég ef heldur aldrei skilið hvað orðið ábyrgð felur í sér í raun og veru.Þegar laun fyrir hana er ákvörðuð.Þegar ábyrgð byggir á mannslífum eru launin skorin við nögl.Liggi ábyrgðin í peningum er mönnum launað með óheyrilegum ofurlaunum.Eftir lestur á forustu grein Moggans í dag spyr maður sig,eru"eldri borgarar"séu að fá bandamann í honum.Þar stendur m.a:
""Í öðru tilvikinu voru launatekjur ellilífeyrisþega áætlaðar þrjár milljónir fjörutíu og níu þúsund. Í samræmi við það áttu greiðslur Tryggingastofnunar til hans að nema tæpum sex hundruð þúsund krónum. Raunverulegar tekjur reyndust vera tíu þúsund krónum hærri. Af þeim sökum á þessi ellilífeyrisþegi að endurgreiða Tryggingastofnun þessar tæpar sex hundruð þúsund krónur.
Í hinu tilvikinu voru launatekjur örorkulífeyrisþega áætlaðar þrjár milljónir tvö hundruð áttatíu og sjö þúsund krónur. Greiðslur frá Tryggingastofnun skyldu nema rúmlega níu hundruð og fimmtíu þúsund krónum. Raunverulegar tekjur reyndust vera tíu þúsund krónum hærri. Af þeim sökum skal örorkulífeyrisþeginn endurgreiða alla þá upphæð.
Kerfið er svo flókið og illskiljanlegt að það er nánast óhugsandi að venjulegt fólk sem á rétt á tryggingabótum frá Tryggingastofnun geti áttað sig á því hvaða áhrif þessar tíu þúsund króna viðbótartekjur geta haft á afkomu þess.
Þetta er í einu orði sagt fáránlegt og erfitt að skilja að svo vitlaust kerfi hafi getað lifað svo lengi sem raun ber vitni.
Það er augljóst að kerfið hvetur til skattsvika. Hvaða vit er í því að búa til slíkt tryggingakerfi?
Það er augljóst að kerfið er vinnuletjandi. Við búum við ótrúlega mikinn skort á vinnuafli. Hvers vegna ættum við með tryggingakerfi að draga úr vilja fólks til að vinna jafnvel þótt það sé komið á efri ár?
Það er áreiðanlega mikið verk að endurskoða þetta kerfi á þann veg að það verði skiljanlegt. En markmiðið hlýtur að vera að viðskiptavinir Tryggingastofnunar eigi auðvelt með að átta sig á hver réttur þeirra er og hvað getur haft áhrif á hann.
Velferðarkerfið er einn mikilvægasti þátturinn í þjóðfélagi okkar. Almannatryggingakerfið er einn veigamesti þáttur velferðarkerfisins. Það er augljóslega komið í öngstræti. Eins og á svo mörgum öðrum sviðum skapar fámennið okkur möguleika á að byggja upp velferðarkerfi sem getur verið öðrum þjóðum til fyrirmyndar.
Þess vegna eigum við að vanda okkur vel að þessu sinni við endurskoðun almannatryggingakerfisins og búa það þannig úr garði að það sé bæði gagnsætt og skiljanlegt.
Það er verkefni sem við hljótum að ráða við. Hér eru starfandi sérfræðingar á öllum sviðum sem eiga að auðvelda stjórnmálamönnum og embættismönnum verkið.""
Þetta var m.a. sem stóð í forustu greininni.Hvers vegna fá bara eldri borgara ekki leyfi til að vinna eins eins og þeim lystir en borga bara skatt af tekjunum.Ég geri ekki ráð fyrir að mikið af því fólki sem getur haldið áfram að vinna vinni sér inn neinar stórupphæðir,Svo spyr ég að lokum:Undan rifjum hverra rann þessi skrípaleikur sem nú er í lög komin.Að menn geti unnið að vild eftir 70 ára aldurinn.
Hverjum er það í vil að menn verði að hætta 67 ára en geti svo farið að vinna aftur 70.Það munar um hvert ár á þessum árum.Einnig þegar menn hafa ekkert gert í 3 ár er kannske erfiðara að komast í gang aftur.Einhverntíma kallaði ónefndur stjórnmálamaður samkunduna við Austurvöll "Gaggó West".Það mætti halda höfundar fyrrgreinda laga kæmi beint þaðan.Meinar fólk eins og Össur Skarphéðinsson.Jóhanna Sigurðardóttir þetta virkilega,Hefur þetta fólk aldrei séð gamlan verkamann?
4.10.2007 | 00:56
Ýmislegt í útrýmingarhættu
Já þá höfum við það.Hvorugt foreldri stjórarinnar minntust á okkur"gamlingana"ekki frekar en að íslendingar dræpust allir 65 ára.Þau þurfa heldur ekki sjálf að kvíða eftirlaunaaldrinum Kínagullið búið að sprengfylla ríkissjóð og alla handbæra sjóði ríkisins.
Tillaga umheilbrigðisráðuneytis um Grænlensku leiðina
Guðlaugur búinn að flagga öllu heilbrigðiskerfinu út.Kínverski fáninn við hún á hátækninálarstungusjúkrahúsinu og öll samskifti á merkjamáli þegar þau komast á eftirlaun.Þau koma ekki til með að þurfa að selja íbúðirnar sínar til að lifa veturinn af.Öll stórfyrirtæki komin með uppgör í kínverskum yuanum.Evran er ruddi gömlu krónunni orðin að veikum galdmiðli þá verður það yuan sem gildir
Kveðjurna sem maður upplifir frá foreldrum þessarar stjórnar til okkar sem komnir eru á svokallaðan eftirlauna aldur eru skýr.Étið sk... og ef það nægir ykkur ekki étiði þá bara meiri sk..Maður hefur það á tilfinningunni að þeir fari að taka upp aðferðina sem grænlendingar notuðu á sína "gamlinga".Þeir fóru hreinlega með þá út á ísinn og skildu þá þar eftir.Menn tala mikið um útrýmingarhættu dýr menn,tré eru í henni og jafnvel þorp.
Þetta fólk tilheyrir þeim flokki í útrýmingarhættu sem kallast "fiskvinslunfólk"
Hér á íslandi undir stjórninni sem kennir sig gjarnan við Þingvelli sem mér finnst vanvirðing við þann helga stað í þjóðarminningunni.eru 4 hópar í útrýmingarhættu frekar en aðrir.Það eru fiskimenn ,fiskvinnslufólk og eldri borgarar að síðustu þorp
Þessir 2 til vinstri tilheyrðu flokki fugla sem dó út um 1880. og nefndist Geirfugl,Fuglarnir 2 t h tilheyra þeim flokki sem nú er í útrýmingarhættu og nefnast"eldri borgarar"
.Næsta bréf sem ég skrifa verður til Saveing Iceland til að fá ráð hjá þeim við að stofna svona"saveing"apparat.
Mel Brooks hinn kunni leik-ari/-stjóri gerði mynd 1991 þar sem ríkur stórbokki er settur á"beit"á götuna."Live stinks"Látin lifa upp á einsdæmi ekki með krónu í vasanum í 30 daga.Mér finnst að allir ráðherrar yrðu að gangast undir þá skyldu að lifa á lágmarksbótum frá hinu gafmikla Íslenska ríki án nokkura bóta frá Lífeyrissjóði,í 1 mán.Menn heyrðu líka tóninn hjá hinum sparsama ráðherra fjármála.Þessum verka-sjómanna skríl skal sko ekki takast að halla skútunni.Þessum lýð ásamt eldri borgurum skal ekki takast að fá nokkra %hærri laun til að bruðla með í meiri mat og brauð.Og þessi óþarfalýður getur bara keypt nokkurra daga gömul brauð á góðu verði og notað magarín ofaná
Svo má ekki þetta svokallaða"unga fólk"ekki komast upp með að geta borgað lánin sín með einhverjum fjan.... lágvöxtum,Svo að bankskerfið sé nú alveg öruggt að þessi lýður festist í klóm þeirra til æfiloka,
Þessir tilheyra hópnum fiskimenn sem er í útrýmingarhættu
Óska matseðill fyrir verkamenn sjómenn og eldri borgara gefin út af ráðherra fjármála svona rétt áður en hann skrifar út ávísun vegna Grímseyjarferju"
Fleiri tillögur ráðuneytis um Grænlensku leiðain
Morgunmatur:Lapþunnur hafragrautur(spara mjólkina)með tvíböku(elstu gerð sem finnst í bakaríinu:helst myglaðar)smurt með smámagarínslufsu..Hádegismatur:pylsur með útrunnið dato(ættu finnast þar sem stórmarkaðirnir henda sínu útrunna dóti)2 kartöflur fengnar á góðum kjörum þegar góðborgarar eru búnir að gramsa þær bestu.Miðdagskaffi/te kaffið og teið með útrunnið dato og helst bragðlaust.Þannig að lýðurinn rifji ekki upp hvernig almennilegt kaffi/te er á bragðið,Tvíbaka og makarín.Kvöldmatur:Klára það sem kannske var eftir af hinum réttum dagsins.Ef ekki klára þá neglurnar ef einhverjar eru,ef ekki étiði þá bara sk.. og hunskist til að fara sofa.Alltaf gott að sofna við hinu skæru tóna garnagauls
Svona að lokum þá finns mér fiskvinnslufólk verka/sjómenn og eldri borgarar fá "Ískaldar"kveðjur svo kaldar að manni dettur í hug Öxará í klakabrynju:Þau kenna sig við Þingvelli ekki satt.Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.10.2007 | 17:11
Í lífsins ólgusjó
Fyrir 83 árum eða 1924 hljóp nýr togari af stokkunum hjá Cook Welton & Gemmell skipasmíðastöðinni í Hull.Eigendur voru Hellyer Brothers Ldt í Hull.Togarinn hlaut nafnið:" Imperialist"H143.Skipið var svo tilbúið á veiðar í febrúar 1925.
Við skipstjórn á hinu nýja og glæsilega skipi tók ungur Íslendingur Tryggvi Ófeigsson aðeins 29 ára gamall.Það vakti mikla athygli er hinir íhaldssömu bræður tóku þennan unga íslenska skipstjóra fram fyrir marga af sínum bestu og aflasælustu manna.Í æfisögu sinni segir Tryggvi frá því er hann.þá sem stýrimaður á Valpole.Mætir hann þá Geir Zoega og Owen Hellyer(annar af 2 Hellyers bræðrum hinn var Orlando) en þeir munu hafa fylgst með honum við störf við að sjóbúa Valpole
Þetta var á vertiðinni 1924.Eftir því sem Tryggvi frétti seinna mun Owen hafa litist vel á hinn unga mann.Geir á að hafa sagt við Owen að þarna sé gott skipstjóraefni fyrir hann,Einum túr seinna er svo Tryggvi boðaður á fund Owens á skrifstofu hans í Hafnarfirði(En þeir Hellyers bræður ráku útgerð sína að hluta í Hafnarfirði á árunum 1924- 1929)Erindi Owens við Tryggva var að bjóða honum skipstjórastarf á einum af togurum félagsins eða"Kings Grey"Ekki var það nýlegt skip en ágætt.Meðal fv skipstjóra á skipinu var landi Tryggva,Jón Oddson..Ákveðið að Tryggvi tæki skipið á vertíð 1925.
Í millitíðinni var hann svo á síld sem skipstjóri á"Helga magra"fyrir Ásgeir Pétursson og síðan eftir síldveiðar aftur stýrimaður á Valpole.Það var svo í nóv þegar þeir á Valpole voru í höfn að hringt var til Tryggva og í símanum var Einar Þorgilson útgerðarmaður í Hafnarfirði sem bað Tryggva aðfara til Englands og sækja þangað skip sem hann var að kaupa af Hellyers bræðrum.Skipið fékk nafnið"Surprise"
Þegar Tryggvi kom til Hull að sækja "Præsan"gerði Owen Hellyers boð fyrir honum.Hann bað hann að koma með sér út í Beverley-smíða dokkina og líta þar á skip sem þeir bræður ættu í smíðum.Þegar Tryggvi hafði skoðað skipið ásamt Owen þá spurði sá síðarnefndi hvernig Tryggva litist á skipiðTryggvi svaraði að sér litist vel á skipið,"Þú átt að taka þetta skip"sagði hinn enski stórútgerðarmaður.Þetta gekk eftir og á þessu skipi skapaði Tryggvi Ófeigsson sér frægð sem farsæll og mikill aflamaður og síðar farsæll útgerðarmaður.
Tryggvi talaði um að "hann"hefði verið vænn við"Hraunið" Það var haft samband við mig og mér sagt að maðurinn á myndinni sem heldur á fiskinum sé sennilega hinn góðkunni togaraskipstjóri Þorsteinn Eyjólfsson.Sem lést 13 apríl í vor rúmlega 100 ára gamall(F:11 sept.1906)Ég sel þetta ekki dýrara en ég keypti það.
Tryggvi var svo með Imperislist til ársins 1929.En það ár hættu Hellyers bræður allri útgerð á Íslandi en Tryggvi gekk inní félag með Lofti Bjarnasyni og Þórarni Olgeirssyni sem1924 höfðu látið smíða skip fyrir sig í Englandi sem hét"Júpiter"
Tryggvi tók svo við skipstjórn á Júpiter af Þórarni Olgeirssyni 1929.Það er af Imperialist að segja að 1931 var hann einn af fleirum enskum togurum sem þátt tóku í björgun skipbrotsmanna sf enska togaranum Howe GY 177 sem strandaði á skerjum út af Bogevik við Bjarnarey þ.19 nóv.1931.Howe sem var á leið á miðin við Bjarnarey hafði lent í miklu óveðri og byl villtist af leið og srandaði sem fyrr segir snemma morguns.Mjög vont veður var á strandstað og hafðist öll skipshöfnin við í brúnni eftir að neyðarkall hafði verið sent.
Enskir togarakallar að láta úr höfn
Loftskeytastöð á eyjunni náði neyðarkallinu og kom því til nærliggandi skipa.Meðan beðið var hjálpar reyndi einn úr áhöfn Howe,George Harmer að komast með taug þá 50-60 metra sem voru í land en sjórinn skolaði honum aftur tilbaka,Þ 21 um morgunninn reynir svo skipstjórinn á Imperialist T.Worthington að koma skipi sínu sem næst hinu strandaða skipi en varð frá að hverfa eftir að hafa rekið sitt skip einusinni niður.
Strandaðu enskur togari(Sargon)
Annar Hulltogari"Tomas Hardy"skipstjóri E.Drinkal náði að komast aðeins nær án þess að taka niðri og tókst að ná 1 lífbát frá Howe með 2 mönnum í.2 menn Ernie Hunter af Tomas Hardy og George Smith af Imperalist reyndu að komast á lífbátnum aftur að hinu strandaða skipi en urðu frá að hverfa.Á meðan höfðu 3 togarar"King Elf"frá Grimsby,"Cape Spartivento"og "Pennine"báðir frá Hull getað sett menn í land á öðrum stað á Eyjunni.Eftir 7 klukkutíma í byl og frosti komust þessir menn á strandstaðinn landmeginn.Þeim tókst að bjarga mönnunum í land og svo voru hinir sjóhröktu menn að fara með þeim sömu leið til baka,
Mönnum bjargað af strönduðu skipi með björgunarstól
King Elf tók svo skipbrotsmennina til Tromsö.Enski konungurinn heiðraði svo marga úr áhöfnum fyrrgreindra skipa1938 er Imperialist svo seld til Frakklands og skírð:"Administrateur De Bournat"1940 er svo skipið hernumið af Enska flotanum.fær nafnið"HMT Bretwalda"og er notað til tundurduflaslæðinga,13 okt
Togarar við tundurduflaslæðingu
1944 lendir skipið í árekstri við hollenskan kafbát á Clyde fljóti.Gerður hafær á ný.1946 kemst svo skipið í eigu St.Andrews Steam Fishing Co Ltd í Hull og fær nafnið"White Nile"H39.Skipið er svo selt til Pollands og fær nafnið Jupiter.Einkennileg tilviljun,Skipið síðan rifið 1960.Þar lýkur sögu skips sem kom við sögu togaraútgerðar á Íslandi
Fylkir 1 hleypur af stokkunum 1947
22 árum seinna hleypur annar nýr togari af stokkunum hjá sömu skipasmíðastöð Skipið fær nafnið"Fylkir"og eigendi er Fylkir h/f í Reykjavík einn af aðaleigendum þess félags var Aðalsteinn Pálsson sem var 1sti skipstjóri á hinu nýja skipi.
Síðan tók ungur maður Auðunn Auðunsson við skipstjórn.Árla morgun 14 nóv.1956 var Fylkir að veiðum 25 sjm N af Straumnesi.Togarinn var búinn að vera á miðunum fyrir vestan í 8 daga en allan þann tíma hafði verið hið versta veður.Þennan morgunn var veður með besta móti,en þó um 10 vindstig og þungur sjór,Kl 0720 voru skipverjar að taka inn belginn á vörpunni.Varð þá skyndilega mjög mikil sprenging undir síðunni.Var hún svo kröftugt að allt færðist úr lagi um borð í togaranum:ljósavél hans stöðvaðist,loftnet slitnuðu niður,þungar hurðir í skipinu fóru af hjörum og þeir skipverjar sem voru í kojum sínum,köstuðust fram á gólf.Það leyndi sér ekki að það myndi hafa verið tundurdufl sem sprakk undir síðu skipsins Hafði það tætt stórt gat á fiskilest þess og fossaði sjórinn þar inn Í fyrstu gerðu skipverjar sér vonir um að unnt yrði að bjarga skipinu það með því að beita öllum dælum þess.
Strax eftir sprenginguna hafði Jörundur Sveinsson sent út neyðarkall en hann var ekki viss hvort nokkur hefði heyrt það vegna þess að loftnetin höfðu slitnað sem fyrr segir,Það var vitað af skipum ekki langt í burtu og því skotið upp neyðarflugeldum.Auðunn hafði eftir að menn höfðu komið björgunarbát og fleka skipað mönnum sínum að yfirgefa skipið.Flestir mannana komust í björgunarbátinn,en nokkrir á flekann.Þeir voru síðan teknir um borð í bátinn.Allir mennirnir,að tveim undanskildum að voru ómeiddir..Ólafur Halldórsson,háseti,sem hafði úr axlarlið og Gunnar Eiríksson sem hafði fallið í sjóinn er hann ætlaði að stökkva um borð í björgunarbátinn.Náðist Gunnar brátt,en þá hafði hann sopið nokkurn sjó og var orðinn þrekaður.Stuttu seinna hvarf happaskipið Fylkir í djúpið.b/v Hafliði undir stjórn Alfreðs Fimbogasonar bjargaði nokkru seinna skipsbrotsnönnum
Fylkir 2 fékk nafnið"Ian Flemming" H396
2 árum eftir þetta og 35 árum eftir að fyrstumtalaða skipið varð tilbúið hljóp nýtt skip af stokkunum hjá Cook Welton & Gemmell í Hull.Það hlaut nafnið"Fylkir"RE 171Eigendur hins nýja skips var Fylkir h/f í Reykjavík.Við skipstjórn á hinu nýja skipi tók fyrrgreindur Auðunn
Hann var svo með skipið í nokkur ár þar til Gunnar Auðunsson bróðir Auðuns tekur við stjórninni,Þ egar þarna er komið sögu var byrjunin á endi"Síðutogarana"að fara á stað1966 er skipið selt Newington Steam Trawling Co Ltd í Hull og fær nafnið:"Ian Flemin"(nafnið á höfundi bókanna um James Bond) H396.25 des 1973 strandar skipið á skeri inn á Havoysundfjord..Á annan dag jóla fóru skipverjar í björgunarbáta sem höfðu verið sjósettir strax eftir strandið.þ15 skipbrotsmenn fóru í annan en David Atkinson skipstjóri ásamt 5 öðrum fóru í hinn.Sá bátur hafði ekki"blásið"sig eðlilega út og hvolfdi og 3 menn druknuðu.David Atkinson (38 ára)missti sín skipstjórnarréttindi í 2 ár.Ian Flemming sökk svo við skerið 5 jan 1973.
Hér líkur sögu þriggja skipa sem áttu það sameyginlegt að hafa verið byggð á sama stað höfðu öll íslenska aflamenn sem sína fyrstu skipstjóra.Þessi upprifjun mín er mest ætluð mér sjálfum til að drepa tíman.Og einnig til að halda á lofti hve áríðandi er að við stöndum vörð um öryggi sjómannsins í dag. Einnig ef einhver hefur nennu til að lesa þetta,að halda á lofti minningunni um þá sem ekki snéru aftur.
Kannske er líka löngun hjá manni til að bæta fyrir áhugaleysi sem allavega ég var þátttakandi í varðani öryggismál..Löngun til að vara við:"ert þú ert sjóhræddu"farsanum.Og ef einhverjum af sjómönnum voguðu sér að skrifa um öryggismál. var hann jafnvel spurður"hver skrifaði þetta fyrir þig"Ég hef undanfarið verið að halda á lofti nauðsyn þess að afætugræðgismenn sem kenna sig við samheldni og heri.Og þeir sem "ríða um héruð"til niðurbrots á sæmilegum lífskjörum manna. fái ekki að svifta okkur þessum degi.sem heitir"Sjómannadagur"og EKKERT annað.Það eru til lög um Sjómannadaginn,þar segir m.a.:" Við tilhögun Sjómannadags skulu m.a. eftirfarandi markmið höfð að leiðarljósi:
"2. grein a) Sjómannadagsráð hefur með höndum hátíðahöld Sjómannadagsins ár hvert í samræmi við stofnskrá um Sjómannadag frá 1937 og lög um Sjómannadag, nr. 20, 26.mars 1987.
- Að stuðla að því að Sjómannadagurinn skipi verðugan sess í íslensku þjóðlífi.
- Að efla samhug meðal sjómanna, hinna ýmsu starfsgreina sjómannastéttarinnar og stuðla að nánu samstarfi þeirra.
- Að heiðra minningu látinna sjómanna, þá sérstaklega þeirra sem láta líf sitt vegna slysfara í starfi.
- Að heiðra fyrir björgun mannslífa og farsæl félags- og sjómannsstörf.
- Að kynna þjóðinni áhættusöm störf sjómanna og mikilvægi starfanna í þágu þjóðfélagsins. ""
Þeir forustu menn Sjómannasamtaka sem góðkenna einhverja:Dagur hafsins,Bryggjudag eru í reynd að brjóta lög.,Á sjómannadeginum á að vekja athygli á slysavörnum.Þar eru Sæbjargar menn í forustu.Björgunum manna úr sökkvandi,brennandi strönduðum skipu Þar eru starfsmenn Landhelgisgæslunnar fremstir meðal jafninga.Þeir hafa sýnt snilld sína dirfsku og karmennsku svo um munar.Megi þessir 2 aðilar vinna saman að öruggari heimi fyrir sjófarendur í dag.Þetta var sagt einusinni eftir eitt sjóslysið
""Þeir berjast við náttúruöflin fyrir björg og brauði.Sjórinn er örlátur og stórgöfull.þegar vasklega er eftir sótt,En hann er líka ósjaldan stórhöggur:"Mik hefir marr/miklu ræntan/grimt es fall/frænda að telja/ svo kvað Egill.Og ófáir eru þeir Íslendingar,sem eins hefðu mátt mæla öll þau ár,sem síðan eru liðin.Og íslenska þjóðin öll finnur:"opið ok ófullt standa sonarskarð"er særinn vann henni nú"".
Og þeir sem lifa í London í vellystingum af sínum parti af stæsta ráni allavega N Alpafjalla og hafa gert alla daga að"degi auðsins"geta haldið sín garden party og Bank Holyday með öðrum.Ég held að Brigg sé dauður en annars hefðu þeir getað þráttað við hann um hvort ránið var stærra hans rán eða þeirra Ef einhver hefur haft nennu til lesturs hingað,sértu kært kvaddur
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.2.2018 kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
2.10.2007 | 12:37
Leiðr.
Eitt er það sem fer í mínar"fínustu" þegar menn eru að slíta orð og annað úr samhengi.Ég féll í þá gryfju í gær að gera það.Mér hefur verið bent á að umfjöllun Jóhönnu Vigdísar í gær var í samhengi við blaðamannafund sem Vinstri Grænir héldu.en ekki í sambandi setningu Alþingis.Ég hafði misskilið málið og hélt að samtalið við Katrínu Jakobsdóttir stæði í sambandi við þingsetninguna.En hafa skal það sem sannara reynist.Kært kvödd
1.10.2007 | 22:11
Vangaveltur dagsins í dag
Mér finnst það með eindæmum hvernig Fréttastofa Sjónvarps"allra landsmanna"gengur fram í að reyna að gera sem minnst úr Frjálslynda flokknum.Í fréttum í kvöld var ekki annað að skilja en stjórnarandstaðan samanstæði bara af 2 flokkum.Katrín Jakobssdóttir bjargaði þó í horn með að láta svo lítið að minna á,að Frálslyndi flokkurinn ætti menn á þingi.
Maður hlýtur að spyrja sig hverra erinda gengur Jóhanna Vigdís Hjaltadóttir.Hún hefur hvað eftir annað sýnt hlutdrægni þegar Frjálslyndiflokkurinn á í hlut.En hana vantaði ekki á landsfund flokksins þegar kjörið var til varaformennsku í honum.Hún lét sig hafa það,þá að vera í dágóðan tíma á fundarstað.þó hún láti nú við setningu Alþingis eins og flokkurinn sé ekki til,Voru úrslitin þá kannske henni ekki að skapi?Tapaði kannske vinkona hennar í þeirri kosningu ?Spyr sá sem ekki veit.Það finnst fleirum en mér þessi fréttakona sýna Frjálslynda flokknum virkilega ókurteisi með sínum vinnubrögðum,á fréttastofu sem kennir sig oft við alla landsmenn.
En nóg um það svo eru það svörtu sauðirnir.Ég meina í orðsins fyllstu merkingu.Ég hef aldrei heyrt þetta með litinn og bragðið.á sviðunum.Er ég þó að hluta alin upp í þorpi þar þjónusta við bændur var mikil(Borgarnesi)Og var byrjaður að hræra í blóðinu 9 ára gamall í einu af 3 sláturhúsum staðarins.En þetta getur vel verið.En hitt er annað mál og það er með lúðuna og kolan.Mér hefur allatíð þótt þeir fiskar betri á hvítu hliðinni og ég fer ekki af af því.En maður á kannske ekki að ræða svona mál nú á tímum svo maður fái ekki á sig "rassistastimpil".
Svo er það stakkals ráðherra dómsmála.Hvaða ósvinna er eiginlega í gangi með hann blessaðan kallinn.Þetta hljóta að vera brögð í tafli.Hvaða heilvita íslending dettur í hug að svara svona í könnunum.Ég var svo dolfallin yfir þessum"brögðum"að ég var hérumbil búinn að missa af boðskap ráðherra fjármála.Þar verða sko ekki nein brögð í tafli.Og skulu nú menn fá að vita það strax,hvoru megin sem þeim finnst sviðin og fiskurinn betri,að það skuli sko ekki leyfður neinn "Byrgis-Grímseyjarferjuaustur"á peningum,Sauðsvörtum eða sauðhvítum verkalýðnum skal ekki lýðast neitt röfl.Þeir skulu sko halda áfram á súpa sinn svipaðan sk.. úr skel hvernig sem hún er litinn.Ekki gram af 30 milljarða hagnaði af rekstri ríkisins skal sko ekki í þeirra vasa.
Það skal sko horft til Lundúna eða þangað sem máttarstólparnir halda sig.Þeir geta étið sínar kartöflur á Eskifirði og grænu baunir á Bíldudal.Og Vestmanneyingar sín söl.Og afgangurinn já,engan dónaskap.Þetta skal þessi misliti almenni verkamaður hafa á hreinu.Ekkert bruðl frekar en verið hefur á fjármálum ríkisins.Og hundskist svo til að éta sviðin,hvort eru svört eða hvít.Kært kvödd
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
Ólafur Ragnarsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
kolbrunerin
-
gudruntora
-
gmaria
-
dala
-
nafar
-
valmundur
-
johannesgylfi
-
gudrunmagnea
-
rheidur
-
gretarmar
-
magnusthor
-
nilli
-
georg
-
lydurarnason
-
reykur
-
johanneliasson
-
helgigunnars
-
hector
- kerfi
-
kallimatt
-
jonsnae
-
jp
-
jaj
-
hva
-
valurstef
-
sigurjonth
-
einherji
-
fiski
-
jakobk
-
harhar33
-
rs1600
-
iceman
-
thorirniels
-
kjartan
-
oliskula
-
1kaldi
-
gretar-petur
-
jon-o-vilhjalmsson
-
skulablogg
-
floyde
-
ragnarb
-
meistarinn
-
palmig
-
aevark
-
morgunbladid
-
zumann
-
jensgud
-
gutti
-
gudni-is
-
saethorhelgi
-
geirfz
-
iceship
-
fuf
-
saemi7
-
ketilas08
-
kokkurinn
-
einarorneinars
-
xfakureyri
-
siggith
-
stormsker
-
valli57
-
markusth
-
luf
-
framtid
-
vefritid
-
jakob
-
postdoc
-
jenni-1001
-
mal214
-
partners
-
iceberg
-
valdivest
-
torfis
-
gattin
-
malacai
-
benz
-
gumson
-
hildurhelgas
-
minos
-
seinars
-
skinogskurir
-
krist
-
thjodarheidur
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (16.6.): 4
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 68
- Frá upphafi: 537309
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 27
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 4
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar