"hve litla athygli kvennafótbolti "

Mér finnst satt að segja með hreinum endemum hve litla athygli kvennafótbolti virðist vekja hér á landi. Ekki það að ég sé eitthvert "fótboltafrík" en mér finnst gaman af fallegu spili,

 

Þegar ég bjó í Svíþjóð var ég eitt sinn í takkaleik við fjarstýriguna á laugardags eftirmiðdag. Þá "datt"ég niður á kvenaknatspyrnuleik milli Umeå og einhvers finnskt liðs. Það endað með að ég horfði á allan leikinn  (ólíkt mér) og hafði mikið gaman af.

 

Stelpurnar voru algerlega óhræddar við að "fara í "andstæðinginn og spiluðu virkilega skemmtileg knatspyrnu. Mig minnir að  þetta Umeå lið hafi verið með þeim betri í Evrópu Kært kvödd


mbl.is „Hélt að ég myndi fara að grenja“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Snæbjörnsson

sæll Óli gamli skólafélagi - ósköp er ég nú mikið sammála þér - á dóttur sem spilar fótbolta með einu af betri liðunum á Seltjarnarnesi Gróttu og verð ég að viðurkenna að í fyrstu var ég nú ekki viss með kvennaspirnuna en nú verur ekki aftur snúið - þeirra "bolti" er ekkert verri en "boltinn" hjá strákunum

ljúfar stundir vinur

Jón Snæbjörnsson, 12.8.2010 kl. 16:34

2 Smámynd: Kolbrún Stefánsdóttir

Sælir báðir tveir. Ég er alveg sammála ykkur. Stelpurnar okkar eru frábærar og mér finnst þær mun skemmtilegri en strákarnir. Kannski eru þær of fáar og of hæverskar ég veit það ekki. Allavega er ekki eins mikill fókus á þeim og þeirra leikjum eins og strákanna. Ég óska þeim góðs gengis og er stolt af þeim. Kveðja Kolla.

Kolbrún Stefánsdóttir, 13.8.2010 kl. 08:42

3 Smámynd: Valmundur Valmundsson

Sæll gamli ven.

Svo eru þær svo undurfallegar!

Valmundur Valmundsson, 13.8.2010 kl. 10:37

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Komið þið öll  sæl  og ég þakka innlitið. Já mér finnst satt að segja þær fá ekki þá athygli sem þær eiga skilið hér á landi. Þær íslensku eiga enga"heimsfrægar" stjörnur að státa sig af en hafa skilað sínu betur en ónefnt lið. Og Jón minn "gamli" skólabróðir til hamingu með stelpuna, og ég veit að hún á eftir að gera þig oft stoltan í framtíðinni. Verið öll ávallt kært kvödd

Ólafur Ragnarsson, 13.8.2010 kl. 22:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Ólafur Ragnarsson

Höfundur

Ólafur Ragnarsson
Ólafur Ragnarsson
Ýmsar hugleiðingar settar fram af manni, sem seint verður kallaður einhver spekingur,en leyfir sér að hafa skoðanir á ýmsum hlutum.Þ.e.a.s elliærum fyrrverandi sjómanni og áhugamanni um gott líf á Íslandi og þá sérstaklega í Eyjum,þar sem hann býr og lifir vonandi í sátt og samlyndi við alla. 
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • ...age_1269290
  • Miss Marple First Image
  • 001

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 54
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 54
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband